18.03.1964
Sameinað þing: 54. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 923 í D-deild Alþingistíðinda. (3387)
187. mál, lóðamál sjómannaskólans
Fyrirspyrjandi (Gils Guðmundsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svar hans. Það var að vísu stutt og í því var ekki að fá miklar upplýsingar fram yfir það, sem ég raunar vissi, þegar ég lagði spurninguna fram. Hæstv. ráðh. hefur snúið sér til byggingarnefndar skólans, sem enn er starfandi. Mig langar til þess að beina þeirri fsp. til hæstv. ráðh. nú til viðbótar í tilefni af þessu, hvort það muni vera rétt, sem mér er tjáð, að í rauninni sé þarna ekki um að ræða lengur annað en hluta af byggingarnefndinni, sem upphaflega var á kveðið að vera skyldi 7 manna nefnd. Það munu þrír a.m.k. vera látnir af þeim mönnum, sem upphaflega sátu í byggingarnefnd skólans, og ég veit ekki til þess, að aðrir hafi verið skipaðir í þeirra stað, þannig að það munu ekki vera starfandi nema 4 af þeim 7 mönnum, sem ætlað er að vera í þessari nefnd.
Samkv. því, sem upplýstist í svari hæstv. ráðh., er það rétt, sem ég hélt fram, að lóðamörk þessarar byggingar hafa enn ekki fengizt endanlega ákveðin, enda þótt 22 ár séu liðin siðan fyrirheit var gefið um lóð undir skólann, og það er staðreynd, að það er mjög fast sótt á um það af ýmsum aðilum að fá skákir af þessu svæði til byggingarframkvæmda. Ég hefði talið mjög æskilegt, að það hefði komið fram í svari hæstv. menntmrh., hvort hann vildi nú ekki sem æðsti yfirmaður skólans beita áhrifum sínum í því skyni að fá því kippt í lag, sem þarna virðist vera full þörf á að fá umbætur á: í fyrsta lagi, að staðið verði við það fyrirheit að úthluta skólanum nægilega stórri lóð, og í öðru lagi, að þegar sú lóð hefur verið afhent, verði veitt nægileg fjárveiting til þess að gera hana sómasamlega úr garði, þannig að hún væri ekki öllu lengur til vansa þeim aðilum, sem þar ættu fyrst og fremst um að fjalla, eigendum skólans.