08.04.1964
Sameinað þing: 59. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 934 í D-deild Alþingistíðinda. (3419)

810. mál, greiðslur vegna ríkisábyrgða

Fyrirspyrjandi (Gils Guðmundsson):

Herra forseti. Fsp. mín á þskj. 387, 4. tölul., fjallar um sama efni og næsta fsp. hér á undan. Hún er einungis víðtækari að því leyti, að hún tekur til tveggja ára. Spurt er um greiðslur úr ríkisábyrgðasjóði árið 1962 auk ársins 1963.

Eins og fram hefur komið, hefur það um nokkuð langt skeið verið venja, að í ríkisreikningnum hafa birzt ár hvert skýrslur um greiðslur vegna ríkisábyrgðalána. En þetta féll niður frá og með árinu 1962, eftir að ríkisábyrgðasjóður tók til starfa. Hins vegar verður það að teljast mjög óeðlilegt, og þess vegna var það, sem endurskoðunarmenn ríkisreikninga gerðu aths. um þetta efni við ríkisreikninginn árið 1962, og hæstv. fjmrh. svaraði því til, að hann teldi aths. eðlilega og mundu verða gerðar ráðstafanir til þess, að framvegis yrðu slíkar skýrslur birtar með ríkisreikningunum.

Ég hef nú fyrir 1–2 mínútum fengið í hendur þessar skýrslur fyrir árin 1962 og 1963, og það er að sjálfsögðu bæði vegna þess, hve skammt er síðan ég fékk þær í hendur, og svo vegna þess, hve fyrirspurnatími er skammtaður, þá er ekki fært að fara að ræða þessar skýrslur eða draga miklar ályktanir af þeim.

Ástæðurnar til þess, að ég taldi rétt, að Alþingi og þjóðin fengi nánari grg. um þessar greiðslur vegna ábyrgðarlána, eru fyrst og fremst þær, að þessar greiðslur hafa hækkað ískyggilega ört á síðari árum. Árið 1958 námu þær til að mynda 23.2 millj. kr., en eru nú meira en tvöfaldar, að því er mér virðist, og jafnvel töluvert fram yfir það. En hin ástæðan til þess, að eðlilegt er, að Alþingi og þjóðin fylgist nokkuð með þessum málum, er sú, að svo virðist, m.a. af þeim skrám, sem þegar liggja fyrir, allt til og með árinu 1962, að einstaklingar og fyrirtæki, sem ekki hafa séð sér fært að standa við skuldbindingar sínar og ríkissjóður og ríkisábyrgðasjóður verða að greiða fyrir milljónir króna ár eftir ár, þessir sömu aðilar geta á sama tíma, að því er virðist, komizt yfir fjármagn til þess að leggja í nýjar stórframkvæmdir. Þeir geta keypt ný og dýr skip á ábyrgð hins opinbera, reist nýjar síldarverksmiðjur og fiskvinnslustöðvar, jafnvel fyrir tugi millj. kr. Menn spyrja því eðlilega: Hvernig getur þetta skeð og hversu lengi getur það gengið, að aðilar, sem láta milljónaábyrgðir falla á ríkissjóð, geti, eins og ekkert hafi í skorizt, aflað sér fjármuna til tugmilljóna nýrrar fjárfestingar og fengið stöðugt nýjar ríkisábyrgðir til skipakaupa og til margvíslegra annarra framkvæmda? Þetta m.a. hefur valdið því, að það er eðlilegt og sjáifsagt, að Alþingi og þjóðin fái að fylgjast með því, hvernig háttað er þeim greiðslum vegna ábyrgðarlána, sem falla á ríkissjóð eða ríkisábyrgðasjóð ár hvert.