15.04.1964
Sameinað þing: 63. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 941 í D-deild Alþingistíðinda. (3431)

206. mál, atvinnuleysistryggingar

Fyrirspyrjandi (Óskar Jónsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt hv. 1. þm. Norðurl. e., Ingvari Gíslasyni, að bera fram fsp. til hæstv. félmrh. á þskj. 439, sem er svo hljóðandi:

„1) Eru lögin um atvinnuleysistryggingar í endurskoðun? Ef svo er, er árangurs af þeirri endurskoðun að vænta á þessu þingi?

2) Hefur verið tekið tillit til þess við endurskoðun laganna, að verzlunarmannasamtökin eiga nú aðild að Alþýðusambandi Íslands, og þeim tryggð þátttaka í atvinnuleysistryggingasjóði á sama hátt og öðrum verkalýðsfélögum?“

Núgildandi lög um atvinnuleysistryggingar eru að meginefni til frá 7. apríl 1956. í 4. gr. þessara l. er sérstaklega tekið fram, að félög skrifstofu- og afgreiðslufólks í verzlunum skuli ekki teljast til verkalýðsfélaga og því eigi hlutgeng sem aðilar að lögunum. Nú hefur hins vegar sú skipan orðið á, að samtök þessa fólks hafa verið viðurkennd fullgildir aðilar að Alþýðusambandi Íslands og þar með sem verkalýðsfélög. En einmitt það atriðið að vera í Alþýðusambandinu virðist hafa ráðið um það, þegar lögin um atvinnuleysistryggingar voru sett, hverjir skyldu eiga aðild að lögunum, þ.e.a.s. að atvinnuleysistryggingasjóði. Með því að verzlunarmannastéttin hefur nú hlotið inngöngu í Alþýðusambandið, virðist sjálfsagt og eðlilegt, að verzlunarmannastéttin öðlist réttindi til þess að vera hlutgeng að atvinnuleysistryggingasjóði, enda er ríkur áhugi fyrir því meðal stéttarinnar.

Af framangreindum ástæðum eru þessar fsp. fram bornar, svo að kannað sé, hvort á þetta sjónarmið hafi verið litið við endurskoðun, þar sem heyrzt hefur, að l. hafi þegar verið endurskoðuð. Dreg ég eigi í efa, að hæstv. félmrh. gefi um þetta efni greinargóðar upplýsingar.