15.04.1964
Sameinað þing: 63. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 943 í D-deild Alþingistíðinda. (3434)

206. mál, atvinnuleysistryggingar

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Það er ánægjulegt til þess að vita, ef sú breyting, sem fyrirhuguð er á l. um atvinnuleysistryggingar, nær fram að ganga, að verzlunarmannasamtökin eignist þar aðild að. Það er þó ekkí sérstakleg þakkarvert, að þessi breyting verði á þessu gerð. Þar með er ólögum hrundið, sem verzlunarmenn hafa átt við að búa nú í ein 8 ár. Þegar verkalýðsfélögin sömdu um atvinnuleysistryggingasjóð, eða raunar var það að frumkvæði þeirrar sáttanefndar, sem skipuð var árið 1955 í sambandi við lausn þeirrar miklu vinnudeilu, sem þá var í aprílmánuði, voru verzlunarmenn ekki aðilar þar að. Þeir sömdu þá í kjölfarið í maímánuði sama ár og áttu þá um það að velja að fá aðild að atvinnuleysistryggingum eða að fá stofnaðan lífeyrissjóð. Þeir tóku þann kostinn, sem ég hygg að þá hafi verið rétt, að velja sinn lífeyrissjóð, sem hefur orðið þeim til mikils framdráttar, sér í lagi í sambandi við íbúðabyggingar. Fljótlega kom þó í ljós, að verzlunarmenn reistu sínar kröfur og töldu sig eiga rétt á að eiga aðild að atvinnuleysistryggingum með tilliti til þess, að Ýmis verkalýðsfélög, svo sem Iðja, fengu þá fljótlega kröfum sínum um lífeyrissjóð framgengt. Það mun hafa verið, að mig minnir, árið 1957. Þegar við í kjarabaráttunni 1957 sendum þessa kröfu fram, vísuðu vinnuveitendur einfaldlega til þess, að í 1., sem sett voru um atvinnuleysistryggingar, stæði, að „félög skrifstofufólks og afgreiðslufólks í verzlunum teljast ekki til verkalýðsfélaga“, og er þetta eitt makalausasta ákvæði, sem ég man eftir að hafa séð í íslenzkri löggjöf. Þess vegna og þar af leiðandi var ekki um það að ræða, að við gætum með frjálsum samningum við vinnuveitendur náð þessari sanngirniskröfu okkar fram, og við það hefur setið, að enn í dag höfum við ekki eignazt þessa aðild, og mér heyrðist á hæstv. félmrh., að enn um hríð verðum við að bíða eftir að fá þessu sanngirnismáli okkar fram komið.

Ég vil svo að lokum taka fram, að það er sannfæring mín, að þegar þetta kemur til kasta hins háa Alþingis, breytingar á 1., þá muni þetta okkar sjálfsagða réttlætismál ná fram að ganga og við verzlunarmenn eignast fulla aðild að atvinnuleysistryggingasjóði.