06.05.1964
Sameinað þing: 73. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 964 í D-deild Alþingistíðinda. (3467)

219. mál, frestun verklegra framkvæmda 1964

Fyrirspyrjandi (Eysteinn Jónasson):

Herra forseti. Mér þykir miður, að hæstv. ráðh. skuli ekki geta gefið mönnum upplýsingar um þetta, því að það hefði verið afar æskilegt fyrir þm. að fá hugmynd um stefnu ríkisstj. í þessu, áður en þeir fara heim af þingi. En e.t.v. gæti stjórnin í næstu viku eða síðustu viku þingsins, sem kannske verður næsta vika, gefið þessar upplýsingar. En ég vil nota þetta tækifæri, um leið og ég stend upp aftur, til að segja. að mín skoðun er sú, að ástandið í skólamálum, sjúkrahúsmálum, samgöngumálum, hafnarmálum og þvílíkum efnum, sem fé er veitt til á fjárl., sé slíkt, að ekki eigi að koma til mála að láta takmarkaðar fjárveitingar til þessara mála á fjárl. standa ónotaðar. Mín skoðun er sú, að sé skortur á vinnuafli, beri að draga úr öðrum framkvæmdum en þessum, sem minni þýðingu hafa þjóðhagslega, svo að vinnuaflið gæti fengizt í þessar framkvæmdir, sem fé er veitt til, og einnig handa sjálfri framleiðslunni. Þetta vil ég, að komi fram í sambandi við þetta mál.