30.01.1964
Efri deild: 41. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 728 í B-deild Alþingistíðinda. (353)

119. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins o.fl.

Frsm. minni hl. (Helgi Bergs):

Herra forseti. Ég hafði gert ráð fyrir því, að það væri ráðgerður kvöldfundur um 3. umr. þessa máls, og hirti því ekki um það að koma á framfæri við 2. umr. þess nokkrum aths. Ég skal ekki á þessum tíma lengja þessar umr. mikið og ekki hafa kvöldmatinn lengi af hv. þdm., en það voru þó nokkur atriði í ræðu hæstv. forsrh., sem ég vil aðeins gera að umræðuefni.

Hæstv. forsrh. sagði m.a., að hann hefði einhvers staðar séð, að reiknað hefði verið út, að vaxtalækkunartillaga okkar framsóknarmanna í sambandi við þetta mál svaraði til 2% hækkunar á fiskverðinu. Að vísu tók hann fram, að ég hefði ekki haldið þessu fram í minni ræðu, enda gerði ég það ekki, ég varaðist það, vegna þess að ég taldi ekki þörf á að fara út í neinn útreikning á því. En hann vildi mjög vefengja þennan 2% útreikning, sem hann hefur væntanlega séð í Tímanum í morgun, því að þar sá ég hann, og taldi, að það væri um 1% hækkun að ræða. Mér er þá engin launung á því, að ég hef reiknað þetta dæmi, þó að ég hafi ekki í ræðu minni áðan fullyrt um þetta, og ég skal fullyrða það nú, að reikningur hæstv. forsrh. er algerlega rangur. Ég veit ekki, hvort má komast eitthvað nærri útkomu hæstv. forsrh. með því að taka aðeins tillit til þess hluta vaxtalækkunarinnar, sem kemur fram við það, að vextir á 55% af framleiðsluverðmætinu lækka úr 7 eða 7½% og í 5 eða 5½%, en ef tekið er tillit til þess einnig, að gert er ráð fyrir, að lánin hækki úr 55% og upp í 67% og á þessum hluta verður vaxtalækkunin úr víxilvöxtum og niður í afurðalánavexti, þá mun koma í ljós, að hæstv. forsrh. hefur reiknað dæmið mikið skakkt.

Hæstv. forsrh. ætlaði nú ekki að fara út í það neitt að gera upp viðreisnina, eins og hann orðaði það. Hann gat þó ekki á sér setið að tala um kosti hennar, sem hann fann í fljótu bragði, og það var fljótgert hjá hæstv. forsrh. En hann upplýsti okkur um, að það væri þó meira vöruúrval í landinu. Vörukaupaferðir til útlanda væru þó nokkrar og eitthvað af smygli væri að vísu, en það væri miklu minna en áður hefði verið. Um þetta skal ég láta hæstv. forsrh. hafa sína skoðun í friði, en bara segja honum frá því, ef honum þætti það einhver fróðleikur, að ég hafði aldrei á ævi minni heyrt það nefnt, að fólk brygði sér til útlanda til að fara í búðir gagngert fyrr en nú á seinustu tveimur árum.

Ég skal ekki fara að rekja mörg atriði þessa máls. En það voru þó einkum tvö atriði, sem ég skal nefna, sem gáfu mér tilefni til að fara í ræðustólinn. Annað var það, sem hæstv. forsrh. sagði um 6. gr. í þessu frv., sem hann taldi ekki vera neina nýjung, og hann benti á það, að þegar flokksbróðir hans, Jóhann Þ. Jósefsson, var fjmrh. 1947, hefði verið í 22. gr. fjárl. heimild af svipuðu tagi. Nú veit ég ekki, hvort hæstv. forsrh. finnst, að ástandið í efnahagsmálum okkar Íslendinga núna sé svipað og það var 1947, en þá urðum við Íslendingar, eins og kunnugt er, fyrir einhverjum mestu efnahagsáföllum, sem við höfum orðið fyrir, vegna hruns stríðsmarkaðanna og þeirrar uppbyggingar matvælaframleiðslu, sem þá átti sér stað í nágrannalöndum okkar. Á nokkrum árum um þetta leyti minnkaði þjóðarframleiðslan um 15% og verðmæti hennar eða þjóðartekjurnar um 25%. En þess er líka að gæta í sambandi við árið 1947, að þá var töluvert öðruvísi ástatt í framkvæmdamálum þjóðarinnar. Þá var það ekki ríkið eitt, sem tók það á sig að draga úr framkvæmdum sínum, heldur var af þessari sömu ríkisstj., sem hæstv. núv. forsrh, sat í, komið á mjög ströngu fjárfestingareftirliti og fjárfestingarleyfakerfi. Þessar framkvæmdir þeirrar hæstv. ríkisstj. voru að vísu ekki til neinnar fyrirmyndar, en hún hafði það sér til afsökunar, að það voru neyðartímar. Nú ætlar hæstv. forsrh. að telja ákvæði 6. gr. þess frv., sem hér er til umr., sambærilegt við þetta, og hygg ég, að flestir sjái þar nokkurn mun á.

Þá skal ég að endingu segja nokkur orð í sambandi við þá yfirlýsingu hæstv. forsrh., að það væri ekki með neinu móti hægt að fallast á þá till. okkar, sem nú hefur verið felld, um 8 manna n. og þær viðræður, sem þar var gert ráð fyrir, vegna þess að framsóknarmenn hefðu ekki verið til viðtals um að samþykkja tekjuöflunina. Nú hefur tekjuöflunargreinin verið samþykkt, þó að við værum ekki til viðtals um það. Hæstv. forsrh. og hans liðsmenn gátu vissulega samþykkt þá grein, þó að þeir hefðu einnig samþ. brtt. okkar um 8 manna n. Að vísu hefðu þeir þá gert allt starfið erfiðara, vegna þess að þá hefði verið búið að taka þá kollsteypu, sem fólgin er í 300 millj. kr. nýjum álögum.

Ég skal ekki lengja mál mitt. Hv. 10. þm. Reykv. gaf að vissu leyti nokkurt tilefni til að halda áfram viðræðum við hann, en eins og á stendur núna með fundartíma, þá sé ég nú ekki ástæðu til að lengja mikið orðræður okkar, en mér þótti kattarþvottur hans í sambandi við nefndarstörfin vera heldur vesældarlegur.