28.10.1963
Efri deild: 6. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 731 í B-deild Alþingistíðinda. (357)

13. mál, lækningaleyfi

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Þetta litla frv. á að greiða fyrir því, að nauðsynlegar skýrslur um heilbrigðismál berist til landlæknis, en hann hefur talið verða á því nokkurn misbrest og leggur því til, að þessi breyting verði gerð. Ég vonast til, að frv. fái vinsamlega athugun, og legg því til, að því verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.