27.01.1964
Neðri deild: 45. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 733 í B-deild Alþingistíðinda. (372)
120. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1964
Forsrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Segja má, að þetta frv. sé einungis formsatriði. Það hefur nú í mörg ár verið föst venja að bera slíkt frv. fram. Það hefur tíðkazt, að regluleg þing hæfust að hausti, og þeim hefur ekki verið lokið á þeim tíma, sem stjórnarskráin ætlast til þess, að þing komi saman, ef lög kveða ekki á um annað. Svo er einnig að þessu sinni. Þing kom saman í fyrri hluta október, og er ljóst, að því verður ekki lokið fyrir 15. febr. Eðlilegt er að gera ráð fyrir, að næsta þing komi saman um svipað leyti og nú hefur tíðkazt undanfarin ár mörg, og er þetta frv. flutt í samræmi við það. Ég tel víst, að um frv. verði enginn ágreiningur. Mér er nær að ætla, að í mörg ár hafi frv. þessu líkt ekki verið sett til n., og sé ég ekki ástæðu til þess. Málið er svo einfalt í eðli sínu og um það enginn ágreiningur. Ég vil leggja til, að frv. verði afgr. til 2. umr., án þess að það sé sett í n., en ef einhver óskar þess, þá er sjálfsagt að verða við því.