04.02.1964
Neðri deild: 51. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 736 í B-deild Alþingistíðinda. (391)
109. mál, hækkun á bótum almannatrygginga
Þórarinn Þórarinsson:
Herra forseti. Mér finnst rétt að vekja athygli á því, áður en þetta frv. verður afgreitt frá d., að þrátt fyrir það að bætur vegna almannatrygginga hafi farið hækkandi í krónutölu að undanförnu, hefur hagur bótaþega farið versnandi á undanförnum árum. Þetta var mjög rækilega rakið í umr. þeim, sem urðu hér fyrr á þessu þingi, þegar bætur vegna almannatrygginga voru hækkaðar þá, og tel ég ekki nauðsynlegt að rifja það rækilega upp að þessu sinni, sem þá var sagt um þessi mál. Ég vil hins vegar vekja athygli á því, að við meðferð þess máls var flutt till. hér í Nd. og eins í Ed. af hálfu okkar framsóknarmanna, þar sem lagt var til, að þessar bætur væru þá ákveðnar verulega hærri en lagt var til í því stjfrv., en það náði þá ekki fram að ganga, og þess vegna hefur ekki þótt ástæða til að reyna að fá þessar bætur frekar hækkaðar að þessu sinni, þó að ástæða væri til, þar sem búast mætti við, að afstaða ríkisstj, sé óbreytt og hún vilji ekki hækka bæturnar meira en gert er ráð fyrir í þessu frv.
Mér finnst rétt að rifja það upp einu sinni enn í stuttu máli, hvernig bætur vegna almannatrygginga hafa farið rýrnandi, þrátt fyrir það að þær hafi hækkað í krónutölu. Og nú eins og fyrr finnst mér rétt að miða þetta við áþreifanlegt dæmi, ekki við tilbúið dæmi, eins og t.d. framfærsluvísitala hagstofunnar er, heldur við áþreifanlegt dæmi, þar sem er framfærslukostnaður á elzta og helzta elliheimili landsins. En ef maður ber saman árið 1958, bæturnar þá, við það, sem verður, eftir að þetta frv. verður að lögum, kemur þetta dæmi til með að líta þannig út: Á almennu deild elliheimilisins Grundar var dvalarkostnaðurinn árið 1958 21900 kr. Ellilífeyrir einstaklings þá var 9955 kr., eða m.ö.o. þurfti dvalarþeginn á þeim tíma að borga 12 þús. kr. umfram ellilífeyririnn, sem hann fékk. Nú lítur þetta dæmi hins vegar þannig út, að dvalarkostnaður fyrir einstakling á elliheimilinu Grund er nú 46800 kr. Ellilífeyrir verður, eftir að búið er að samþykkja þetta frv., 24122 kr., eða m.ö.o. þarf dvalarþeginn nú að borga um það bil 23 þús. kr. umfram ellilífeyrinn, þannig að nú þarf hann að borga um 11 þús. kr. meira umfram ellilífeyrinn en hann gerði árið 1959. Hygg ég, að þessar tölur varpi glöggu ljósi á það, hvernig hagur bótaþega hefur farið versnandi, þrátt fyrir það að bæturnar hafi farið hækkandi í krónutölu á undanförnum árum, þar sem t.d. dvalarþegi á elliheimilinu Grund, á almennu deildinni þar, þarf nú að borga um 11 þús. kr. meira umfram það, sem hann þurfti að borga 1958, þegar búið er að draga ellilífeyrinn frá í bæði skiptin. Þetta sýnir þá sorglegu staðreynd, að þannig hefur verið haldið á málum af þeim aðilum, sem hafa ráðið í landinu á undanförnum árum, að þrátt fyrir það að bætur samkv. almannatryggingalögum hafi hækkað verulega í krónutölu, þá er hagur bótaþega verri nú en var fyrir nokkrum árum.
Ég vil svo að lokum segja það, að ég dreg í efa, að sá útreikningur sé réttur, sem þetta frv. byggist á, að kaupgjald í landinu hafi almennt ekki hækkað nema um 32% á s.l. ári. Ég hygg, að þetta sé lágmarkshækkun, sem hefur átt sér stað á árinu, en ekki meðaltalshækkun. Og þetta byggi ég á því, að t.d. er talið, að laun hjá opinberum starfsmönnum hafi hækkað til jafnaðar a, m. k. um 45% á s.l. ári, og ég hygg, að það sé ekki tekið til greina, þegar fundin er út sú meðaltala, sem hér er reiknað með. Ég minnist þess einnig, að nú fyrir nokkrum dögum hélt hæstv. sjútvmrh. því fram hér í þinginu, að kaupgjald hjá hraðfrystihúsunum hefði hækkað til jafnaðar um meira en 40% á s.l. ári, en ekki um 32%, eins og hér er gert ráð fyrir. Það er enn ekki séð fyrir, hver kauphækkunin verður hjá verzlunarfólki, en almennt hygg ég, að það sé reiknað með því, að verzlunarfólkið fái meiri hækkun en var t.d. hjá verkamönnum á s.l. ári, eða a.m.k. telja forsvarsmenn verzlunarsamtakanna það nokkurn veginn öruggt. Ég held þess vegna, að þegar þessar staðreyndir allar eru athugaðar, þá sé frekar reiknað hér með lágmarkshækkun, sem hefur átt sér stað, — þessar bætur séu miðaðar við lágmarkshækkun, en ekki við þá meðaltalshækkun, sem hefur átt sér stað í landinu á þessum tíma. Þetta verður þess vegna til þess, að bótaþegar samkv. almannatryggingunum dragist frekar aftur út en hið gagnstæða.
Því miður er ekki aðstaða til þess hér eftir í þessari d. að athuga þetta nánar, en ég vildi í tilefni af þessu segja það, að mér fyndist ástæða til, að sú nefnd, sem fær þetta til athugunar í Ed., tæki það til gaumgæfilegrar athugunar, hver hafi orðið raunveruleg meðaltalskauphækkun í landinu, sem hækkun á bótum almannatrygginganna er miðuð við, og hvort sú athugun mundi ekki leiða í ljós, að það væri ástæða til að hafa þessar bætur nokkru hærri en gert er ráð fyrir í þessu frv., þó að ekki sé miðað við annað en þær meðaltalskauphækkanir, sem hafa orðið í landinu á þessum tíma. Ég hef hins vegar látið þá skoðun uppi, að ég teldi vera miklu eðlilegra en að miða við þetta atriði, að það væri tekið fyrst og fremst tillit til þess, hver hefði orðið aukning dýrtíðarinnar í landinu, og bæturnar væru miðaðar við það, að bótaþegar stæðu a.m.k. ekki lakar eftir en áður.
Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri að sinni, en mér fannst sérstök ástæða til að vekja athygli á þessu, áður en málið fer hér úr deildinni.