10.02.1964
Efri deild: 45. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 746 í B-deild Alþingistíðinda. (400)
109. mál, hækkun á bótum almannatrygginga
Alfreð Gíslason:
Herra forseti. Ég vil láta í ljós ánægju mína með, að þetta frv. hæstv. ríkisstj. er fram komið. Ég hafði satt að segja ekki búizt við, að hæstv. ríkisstj. brygði svo fljótt við sem raun varð á í þessu efni. Ég hafði um sömu mundir og þetta frv. var lagt fram hér á Alþingi að loknu jólaleyfi lagt fram frv. sama efnis að mestu leyti, þ.e.a.s. um 15% hækkun tryggingabóta, en eins og hæstv. ráðh. tók fram hér, er sá aðalmunurinn á þessu frv. og mínu, að í mínu frv. er gert ráð fyrir, að þessi hækkun, 15%, nái til allra bótafjárhæða tryggingalaganna.
Ég vil aðeins drepa lítillega á þetta atriði og minna á, að fjölskyldubæturnar eru smám saman að rýrna og nálgast það að verða sáralítil hjálp. Að krónutölu hafa fjölskyldubæturnar verið látnar standa í stað síðan á miðju ári 1961, og allir vita um dýrtíðaraukninguna síðan. Það er óhætt að segja, að á þessum tíma, sem liðinn er síðan á miðju ári 1961, hefur kaupmáttur þessara bóta minnkað um svo að segja helming, og er þá miðað við vísitölu framfærslukostnaðar. Þetta gefur nokkuð glögga hugmynd um, hvert stefnir með verðgildi þessara bóta. Bótafjárhæðir voru auknar um 7% í júlí 1962. í apríl 1962 var samþykkt veruleg hækkun á bótum tryggingalaganna almennt. Í des. s.l. voru bætur hækkaðar um 15%. Og nú er enn lagt til, að þær hækki um 15%. Í öll þessi fjögur skipti, sem ég taldi upp, eru fjölskyldubætur undanskildar hækkuninni. Mér finnst ekki óeðlilegt, að ókunnugir spyrji: Hvers eiga barnmörgu fjölskyldurnar að gjalda? Það er lagt til, að bætur almennt hækki nú um 15% í des. Ég minni bara á þessi tvö skipti. En fjölskyldubæturnar hafa hækkað um ein 15% síðan í marz 1960, á meðan aðrar bætur hafa hækkað svo sem ég hef nefnt dæmi um.
Með þessu finnst mér greinilega stefnt að því að gera fjölskyldubæturnar verðlausar, og það er kannske gert, í ákveðnum tilgangi. Skýring hæstv. ríkisstj. er sú, að það standi til að breyta lögum um skattálagningu á þann veg að hækka persónufrádrátt vegna barna við álagningu útsvars og skatta. Þetta var boðað við síðustu bótahækkun og þetta er boðað enn í dag. En það er ekki komið.
Við þetta hef ég auk þess ýmislegt að athuga, þessa leið að hækka persónufrádráttinn, en láta fjölskyldubæturnar standa í stað. Ég skal fyrst minna á, að það mun hafa verið árið 1962, sem persónufrádrátturinn, eins og hann er nú í krónutölu við skattaálagningu, var ákveðinn. Síðan hafa þessi hlunnindi barnmargra fjölskyldna rýrnað um a.m.k. 35%, svo að út af fyrir sig finnst mér full ástæða til að taka það mál upp aftur og það sem allra fyrst að endurskoða og hækka persónufrádrátt við álagningu skatta vegna barna. Það er ástæða til þess. En ég sé ekki, að það sé ástæða til að láta fjölskyldubæturnar verða lítils sem einskis virði af þeirri ástæðu.
Ef við viljum halda því, sem var árið 1962, eigum við m.ö.o. að hækka bæði persónufrádrátt verulega og fjölskyldubætur verulega. Við eigum að auka persónufrádráttinn a.m.k. um 35%, og við eigum að auka fjölskyldubæturnar um a.m.k. 50%, til þess að þessi hjálp við barnmargar fjölskyldur verði svipuð og hún var 1962.
Nú mætti kannske segja sem svo, að það megi að meinlausu gera fjölskyldubæturnar verðlausar, því að svo mikið megi auka persónufrádrátt. Ég hef ekki trú á því út af fyrir sig, að persónufrádrátturinn verði hækkaður það mikið, að það vegi upp á móti rýrnun beggja þessara þátta. En svo er annað. Hæstv. ráðh. tók það fram hér áðan, að persónufrádrátturinn og fjölskyldubæturnar væru samhliða aðgerðir. Þetta er rétt, en aðeins að vissu marki. Ég skal aðeins nefna, að fyrir tekjulága, barnmarga fjölskyldu er ekki alveg sama, hvor þátturinn er gerður verðlaus og hvor er hækkaður. Það skiptir þvert á móti mjög miklu máli. Ég held þess vegna, að það sé gott að sýna báðum þessum þáttum í hjálpinni við barnmargar fjölskyldur fullan sóma, hækka fjölskyldubætur nú og hækka einnig, áður en þessu þingi lýkur, persónufrádráttinn við álagningu skatta vegna barna. Þetta vildi ég aðeins mega benda á nú, vegna þess að hæstv. félmrh. er staddur hér, en þegar ég mælti fyrir mínu frv. hér fyrir nokkru, var hann ekki viðstaddur, en þá minntist ég á sumt af þessu í sambandi við fjölskyldubæturnar.
Það er annað atriði, sem ég vildi minnast á fáum orðum, annað atriði, sem mér finnst skipta nokkru máli. Í ákvæðum til bráðabirgða er gert ráð fyrir því, að Tryggingastofnuninni sé heimilt að greiða þá 15% bótahækkun, sem felst í frv. þessu, í einu lagi fyrir tímabilið 1. jan. 1964 til 31. júní 1964 með bótagreiðslum fyrir júlímánuð. Í þessu felst, að hækkunin á ekki að komast í hendur bótaþeganna eða þarf ekki að komast í hendur bótaþeganna fyrr en í júlí í sumar. Auðvitað er þetta gert eingöngu til hægðarauka fyrir greiðandann. En út á það hef ég ekki í sjálfu sér að setja. En ég vil bara spyrja: Liggur bótaþegunum ekkert á að fá þessa peninga? Geta þeir beðið hálft ár? Hafa þeir svo litla þörf fyrir þetta, að það megi allt eins vel geyma það í sex mánuði að greiða þeim hækkunina? Ég er þeirrar skoðunar, að svo sé ekki. Bótaþegar hafa fulla og brýna þörf fyrir að fá þessa hækkun. Og ég teldi, að hér þyrfti að gera breytingu á í frv., gera ráð fyrir því, að þetta fé verði greitt bótaþegunum, sem áreiðanlega flestir hafa fulla þörf fyrir það, svo fljótt sem unnt verður, helzt strax mánaðarlega frá 1. jan. eða a.m.k. með einhverjum minni biðtíma en hér er gert ráð fyrir. Væri t.d. ekki unnt að fara meðalveginn og miða við apríl í staðinn fyrir júlí?