10.02.1964
Efri deild: 45. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 748 í B-deild Alþingistíðinda. (401)
109. mál, hækkun á bótum almannatrygginga
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra. forseti. Aðeins nokkur orð til andsvara hv. síðasta ræðumanni, hv. 9. þm. Reykv. — Skal ég þá fyrst minna á síðara atriðið af þeim tveimur, sem hann gerði að umtalsefni, þ.e.a.s. það, hvort ekki væri ástæða til að greiða þessa hækkun á bæturnar jafnóðum og þær raunverulega ættu að falla til, þ.e.a.s. mánaðarlega, eins og aðrar bætur. Ég skal vissulega ekki draga það í efa, að bótaþegunum er þörf á því að fá þessa hækkun og fá hana sem fyrst. En það hefur verið ákvarðandi um þetta, að peningarnir í Tryggingastofnuninni eru í fyrsta lagi fyrir hendi og verða tæpast á miðju ári, en þó þannig, að það er talið hægt og forsvaranlegt að miða við þann tíma. Og í öðru lagi held ég, að flestir bótaþegar mundu sætta sig við það, þegar þeir vita, að þeir eiga að fá þessar bætur og þá í einu lagi fyrir sex mánuði, 1. júlí, vegna þess að þeir munu þá geta gert sínar ráðstafanir þannig, að það komi þeim allt að því að eins miklum notum, þó að þetta komi ekki fyrr en allt í einu fyrir sex mánuði.
Um hitt atriðið, um fjölskyldubæturnar, skal ég svo fara nokkrum orðum. Ef fjölskyldubæturnar eru hækkaðar, kemur það í fyrsta lagi fram á þann hátt í skattgreiðslum og útsvarsgreiðslum, að fjölskyldubæturnar eru reiknaðar viðkomandi manni sem tekjur, og eftir því, sem fjölskyldubæturnar eru hækkaðar, er hlutfallslega meiri hluti af fjölskyldubótunum af þeim tekinn aftur. En það er á ýmsan hátt farið með þessi mál annars staðar. Sums staðar eru fjölskyldubæturnar alls ekki taldar fram til skatts, þannig mun það t.d. vera í Svíþjóð og í Danmörku, þannig að skattur eða útsvar er ekki af þeim greiddur. En þar er ekki heldur persónufrádráttur fyrir börn reiknaður neinn. Þetta er talsvert mikið vandamál, hvernig með skuli fara, og hefur verið í athugun og vonandi, að þeirri athugun verði bráðlega lokið. En ég er hreint ekki viss um, að með óbreyttri skattalöggjöf hjá okkur væri þeim meiri greiði ger, barnmörgu fjölskyldunum, að hækka einhliða fjölskyldubæturnar, heldur en að miða persónufrádráttinn við það, að barnmörgu fjölskyldurnar komi sem bezt út í heild, þegar hvort tveggja er tekið saman, fjölskyldubæturnar og persónufrádrátturinn. Það má vel vera, að sú verði niðurstaðan af þessari athugun, að það verði horfið að sama ráði og gert hefur verið í Danmörku og Svíþjóð, þ.e.a.s. láta ekki fjölskyldubæturnar koma til skatts, og þá er náttúrlega sýnilegt, að hver hækkun fjölskyldubótanna kemur að fullum notum. En ef hin leiðin verður áfram farin að telja fjölskyldubæturnar fram sem venjulegar tekjur hjá viðkomandi manni, er ósýnt, hvort kemur betur út að hækka persónufrádráttinn eða hækka bæturnar. En sem sagt, þetta er í athugun, og þeir, sem hafa með þessa athugun að gera, m.a. ráðuneytisstjórinn í félmrn., — en hann er nú einn af þeim, sem fást mest við þessa athugun, — hafa upplýst, að það sé mjög óvíst, hvort að óbreyttu fyrirkomulagi þetta sé réttasta leiðin til að hjálpa hinum barnmörgu fjölskyldum, að hækka fjölskyldubæturnar og láta annað vera óbreytt.