20.01.1964
Efri deild: 34. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 760 í B-deild Alþingistíðinda. (445)

108. mál, afnám laga um verðlagsskrár

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Með lögum frá 1954 er svo ákveðið, að gera skuli verðlagsskrár og yfirskattanefndir setja verðlag á búpening og innlenda vöru, sem venja er til, að í verðlagsskrám sé talið. Með nýju skattalögunum frá 1962 voru yfirskattanefndir lagðar niður, en gert ráð fyrir, að skattstjórar tækju við þeim verkefnum yfirleitt, sem þær höfðu. Hins vegar er það svo með hinar svonefndu verðlagsskrár, að það er álit manna, að þær hafi ekki lengur neina hagnýta þýðingu og sé því ástæðulaust að gera sér þann kostnað og fyrirhöfn, sem af samningu þeirra leiðir. Þetta frv. fer því fram á, að verðlagsskrárnar séu afnumdar. Hefur verið leitað álits Búnaðarfélags Íslands um það og stjórn þess látið í ljós, að samning verðlagsskránna hafi ekki lengur neina praktíska þýðingu.

Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.