03.02.1964
Efri deild: 42. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 760 í B-deild Alþingistíðinda. (447)

108. mál, afnám laga um verðlagsskrár

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Eins og hv. þdm. mun kunnugt, er aðalefni frv. þess, sem hér liggur fyrir til umr., afnám hinna svonefndu verðlagsskráa. Verðlagsskrárnar höfðu á sínum tíma mikilvægu hlutverki að gegna og eru mikilvæg söguleg heimild um þróun verðlagsmála hér á landi. En tímarnir breytast, og ýmis af þeim hlutverkum, sem verðlagsskrárnar áður áttu að gegna, eru nú úr sögunni, en önnur hlutverk, svo sem mat búpenings, hafa nú verið falin öðrum aðilum, eins og grg. frv. ber með sér. Með tilliti til þessa hefur fjhn. orðið sammála um það, eins og nál. á þskj. 230 ber með sér, að mæla með því, að frv. verði samþykkt óbreytt.