17.02.1964
Neðri deild: 57. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 779 í B-deild Alþingistíðinda. (490)
131. mál, jarðræktarlög
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða hér í sambandi við þetta mál mikið almennt um landbúnaðarmálin, vegna þess að það var búið að ræða þau allýtarlega almennt í sambandi við frv. til l. um breyt. á l. um stofnlánadeildina. En ég hlýt að segja hér nokkur orð út af ræðu þeirri, sem hæstv. landbrh. flutti og var eins konar ávarp í minn garð, þegar síðast var um þetta talað hér í hv. deild.
Ég þykist vita, að þótt hæstv. landbrh. muni vera nokkurt karlmenni, muni honum veitast allþungt það hlutskipti að vera landbrh. í þessari ríkisstj. Og það get ég skilið, enda kveinkaði hæstv. ráðh. sér nokkuð í þeim umr., sem síðast urðu hér, og kom þá fram hjá honum óneitanlega nokkur illkvittni í minn garð. Lýsti hún sér í því m.a., að hann gaf mér þau ráð að hafa ekki mjög hátt í sambandi við þessi efni, því að mér færist ekki, það hefði ekki verið haldið svo myndarlega á þessum málum, þegar ég hefði ráðið meiru en ég nú réði. Í því sambandi flutti ráðh. smáþátt um, að það væri ekki að sjá, að ég hefði áorkað miklu í þessum efnum, það sýndu hin mörgu smáu býli á Austurlandi o.s.frv. Í þessum tón talaði hæstv. ráðh. Áður var hann að vísu búinn að óska eftir því, að menn héldu sér við efni frv. og væru ekki með eilífan samanburð varðandi það, hvernig nú væri búið að landbúnaðinum og áður hefði verið. En sem sagt, hæstv. ráðh. missti sjálfur þolinmæðina og fór að ræða um þessi efni á þennan — ég vil segja nokkuð nýstárlega hátt.
Út af þessu vil ég fyrst taka fram, að ef það er mér að kenna, að æðimörg bú eru smá á Austurlandi, eins og hæstv. ráðh. virtist vilja halda fram, ætti það eftir sama hugsanagangi, —- ég segi, eftir sama hugsanagangi, að vera mér að þakka, að ærið margir bændur víðs vegar um landið voru búnir að stækka bú sín, áður en núv. ríkisstj. kom til með viðreisnina sína. Sem sagt, ef það er mér að kenna, að æðimargir bændur hafa smábú, þá ætti það eftir sama hugsunargangi að vera mér að þakka, að æðimargir voru þó búnir að koma sér sæmilega fyrir, áður en hæstv. ráðh. tók til með sína landbúnaðarstefnu, því að allir bændur landsins búa við sams konar aðbúnað af hálfu ríkisvaldsins, nema alveg sérstakar ráðstafanir komi til vegna áfalla af völdum harðinda og sauðfjársjúkdóma og þvílíkra búsifja í einstökum héruðum. En á því hafa áreiðanlega engir bændur hagnazt að þurfa á slíku að halda. Þetta segi ég til að sýna, hve lítilfjörlegar svona röksemdir eru.
Það hefur áður verið á það minnzt, að það væri ærið mikið af smáum búum á Austurlandi, og ég get ekki stillt mig um að minnast aðeins á það mál. Þetta hefur komið fram áður í sambandi við önnur efni. Ég vil fyrst og fremst minna á, að þannig er ástatt á Austurlandi, að það er æðimargt bænda þar, sem verða að treysta bæði á sjó og land, sem búa meðfram fjörðunum, og jarðir á þeim slóðum fram með fjörðunum margar eru ekki hentugar til stórbúskapar á landi. Menn stunda jöfnum höndum sjó og land, og þar verða búin, landbúin sjálf, auðvitað miklu smærri en annars staðar, og þetta dregur niður meðaltalið, þegar borin eru saman búin í einstökum byggðarlögum.
Í annan stað vil ég segja það um Austurland og sérstaklega um Fljótsdalshéraðið, að þar herjaði garnaveikin árum saman og felldi nær með öllu sauðféð. Og eins og menn vita, var það svo árum saman, sem menn kunnu engin ráð við garnaveikinni, og það var ekki lagt út í fjárskipti hennar vegna. Það var ekki fyrr en meðulin fundust við henni, að hægt var að byrja að rétta við, því að þótt menn fengju nokkrar bætur, var aldrei hægt að bæta mönnum þetta óskaplega tjón, sem þeir urðu fyrir. Á þessum slóðum, t.d. á Fljótsdalshéraði, var þannig ástatt, að menn gátu ekki fært sig yfir í aðrar búgreinar, eins og þeir gátu víðs vegar annars staðar á landinu. Það var ekki mögulegt í sama mæli og á Suðurlandi, Suðvesturlandi og Norðurlandi sums staðar, þar sem menn urðu líka fyrir miklum búsifjum af mæðiveiki og sums staðar raunar garnaveiki. Menn gátu ekki á Fljótsdalshéraði fært sig yfir í aðrar búgreinar, eins og víða annars staðar í grennd hinna stóru bæja á landinu. Þess vegna hlaut þetta að hafa miklu alvarlegri afleiðingar fyrir menn á þessum slóðum en nokkurs staðar annars staðar. Auðvitað var svo alveg óhugsandi annað en þessi gífurlegu áföll og þetta ástand allt yrði til þess, að framfaraátök yrðu minni en annars staðar. Það hefði verið kraftaverk, ef slíkt hefði ekki orðið.
Ofan á þetta allt bættust svo gífurleg harðindi, meiri en dæmi eru til á þessari öld nokkurs staðar annars staðar á landinu, og ekki í eitt skipti, heldur oftar, þannig að gera varð sérstakar ráðstafanir til þess að fyrirbyggja landauðn af þessum sökum, bæði vegna sauðfjárpláganna og harðindanna. Og þó að nokkrar ráðstafanir væru gerðar til þess að fyrirbyggja það versta., náði það auðvitað alls ekki svo langt, að þarna gæti orðið um voldugar framfarir að ræða á þessum árum. Það er af þessum ástæðum hreinlega, sem bú á þessum slóðum sums staðar eru smærri en annars staðar á landinu, fyrst og fremst af þessum ástæðum, sem ég nú hef verið að rekja. En auðvitað hafa Austfirðingar búið við sömu landbúnaðarlöggjöf og aðrir og eru sízt óvaskari bændur eða til annarra starfa heldur en aðrir landsmenn. Það er ósæmilegt að vera með órökstuddar slettur í þeirra garð. Ég hef nú reyndar ekki orðið var við, að hæstv. landbrh. hafi svo mjög gert það fyrr en nú, en hinir og aðrir hafa leyft sér það. Það, sem ég nú hef sagt um þetta, sýnir, að það er ekki sanngjarnt að bera þessi efni saman án skýringa, þ.e.a.s. skýrslur um bústærð í einstökum landshlutum.
Þá sagði hæstv. ráðh. í sambandi við þessar umr. um daginn, að ég ætti ekki að beita mér svo mjög í þessum málum núna, því að mér færist það ekki, eða eitthvað á þá lund. Það hefði ekki verið svo vel fyrir þessum málum séð, meðan ég hefði haft ríkiskassann, eins og hæstv. ráðh. orðaði það. Þetta gefur mér tilefni til að bera þessi efni nokkuð saman. Það ætla ég að leyfa mér að gera. Ég ætla að bera einmitt saman dálítið í fáeinum orðum, hvernig búið er að landbúnaðinum nú og hvernig búið var að honum, á meðan ég hafði ríkiskassann, eins og hæstv. ráðh. vildi orða það.
Það eru tveir þættir, sem mestu máli skipta varðandi landbúnaðinn og ríkiskassann. Það eru lánskjörin, sem landbúnaðurinn á kost á, sem eru eitt höfuðatriðið í öllu þessu, og það er hinn beini stuðningur ríkisvaldsins við uppbygginguna í landbúnaðinum. Það eru þessir tveir þættir, sem mestu máli skipta í því tilliti, og það skiptir auðvitað höfuðmáli fyrir landbúnaðinn, hvaða stefna er framkvæmd í þessum málum. Ég ætla því að leyfa mér að bera saman í fáeinum orðum, hvernig ástatt var í þessu tilliti, þegar ég hafði ríkiskassann, eins og hæstv. ráðh. orðaði það, og hvernig það er núna, þegar hann beitir sér fyrir þessum efnum og hans félagar.
Það eru þá fyrst lánamál landbúnaðarins. Hvernig eru þau núna, og hvernig voru þau þá? Nú er mönnum ætlað að taka lán til íbúðarhúsabygginga í sveitum með 6% vöxtum. En áður var mönnum séð fyrir lánum með 3½% vöxtum, og það er því engin smávegis breyting, sem hefur átt sér stað til hins verra fyrir landbúnaðinn. Nú er mönnum ætlað að taka lán úr ræktunarsjóði og greiða 6% vexti, en áður, meðan ég og mínir félagar fóru með þessi mál, voru þessir vextir 4%. Þeir hafa hækkað hvorki meira né minna en úr 4% og í 6½%. Þannig er búið að landbúnaðinum núna, og þannig var búið að honum, meðan ég fór með ríkiskassann, eins og hæstv. ráðh. orðaði það. En það er ekki þar með sögð öll sagan í lánamálunum. Nú verða menn að borga sérstakan skatt af tekjum sínum til þess að geta fengið lán með þessum hærri vöxtum. Þá borguðu bændur engan skatt af tekjum sínum til að geta fengið lán með 3½% vöxtum. En nú verða þeir að borga sérstakan skatt, sem nemur um það bil 2% af launatekjum þeirra, til þess að geta fengið lánin með hærri vöxtunum. Það er ekki að furða, þó að hæstv. ráðh. sækist eftir því að bera saman, hvernig þetta var, meðan ég hafði ríkiskassann, og hvernig það er núna. Það er ekki furða.
Og á þetta bætist, að kostnaður við byggingar og aðrar framkvæmdir í sveitunum, eins og annars staðar, hefur hækkað alveg gífurlega á þessu tímabili. Það munar tugum þúsunda á ári, sem sá bóndi verður að borga í vextina eina, sem nú ætti að byggja bú sitt upp að nýju, tugir þúsunda, bara í vaxtamismun, sem hann verður að borga meira en áður. Það er ekki að furða, þótt hæstv. ráðh. sé státinn af þessari frammistöðu.
Ef við svo athugum hinn aðalþáttinn, þ.e.a.s. beinu framlögin, beina stuðninginn við uppbygginguna í sveitunum, tekur ekki betra við. Þá kemur í ljós, að hæstv. ráðh. og hans félagar hafa verið að lækka jarðræktarframlagið skv. jarðræktarlögunum sjálfum. Þeir hafa verið að lækka þetta framlag raunverulega ár frá ári í 5 ár. Ár frá ári í 5 ár hafa þeir verið að lækka þetta framlag. Engum, sem til þekkir, dettur í hug, að það sé nokkuð sambærilegur sá stuðningur, sem menn fá núna, skv. jarðræktarl., við þann stuðning, sem áður var, meðan ég og mínir félagar fórum með þessi efni. Framlögin hafa farið lækkandi ár frá ári, og ekki nóg með það. Þeim er ætlað að fara áfram lækkandi. Það er ætlun hæstv. ráðh. eftir því frv., sem hér liggur fyrir, að þessi framlög haldi áfram að lækka í öllum greinum skv. jarðræktarl., nema til súgþurrkunarinnar einnar.
Síðan kemur stórkostlegur þáttur í þessum efnum, sem ég hefði átt að minnast á í sambandi við lánamálin, lánamál bændanna, og það eru afurðalánin. Á meðan ég hafði kassann, eins og hæstv. ráðh. orðaði það, var búið að byggja upp lánakerfi í því sambandi, byggt á því að lána 67% út á verð afurðanna. Nú hefur þetta verið skorið niður í 52–55% eftir því, hvernig grundvöllurinn er reiknaður, en þó munu þeir, sem til þekkja, fremur telja, að það ætti að nota töluna 52%, vegna þess að grundvöllurinn hefur verið skekktur í framkvæmdinni. Þessi lán hafa verið skorin niður úr 67% niður í 52–55% en fyrirframlánin, sem ætluð eru til að greiða fyrir rekstrarvörukaupum bændanna á vorin, hafa þó verið skorin miklu, miklu meira niður, því að þau hafa verið látin standa í stað í krónutölu þrátt fyrir gífurlegar verðhækkanir á öllum sviðum. Þetta er búið að koma þessum rekstrarfjármálum bændanna í stórkostlegan hnút, sem allir þekkja, og verður auðvitað að reyna að finna einhverja leið til þess að leysa.
Þannig er þessi samanburður í örfáum orðum, og skal ég ekki fara lengra út í hann. En að lokum vil ég svo aðeins benda á, hvernig hæstv. ráðh. bregzt við, þegar menn krefjast þess, að nú verði gerðar nýjar ráðstafanir til að rétta hlut landbúnaðarins. Enginn ber sér það í munn, að hlutur landbúnaðarins standi ekki verr en áður. Það er eingöngu rætt um, hvort þessir eða hinir hafi verið búnir að búa nægilega vel um sig til að mæta þessum áföllum, sem orðið hafa undir stjórn hæstv. ráðh. Það er eingöngu rætt um þetta manna á meðal. Og meira að segja stuðningsmenn stjórnarinnar koma ekki fyrir sig öðrum áróðri í þessum málum en því helzt að segja sem svo: Framsóknarmenn áttu að vera búnir að búa enn betur um landbúnaðinn, til þess að hann gæti þolað betur þessi áföll, sem orðið hafa af völdum stjórnarstefnunnar á síðustu árum. — Það er eiginlega hugsunin í áróðrinum.
En vitaskuld er, að það verður að miða landbúnaðarlöggjöfina við núverandi ástand, en ekki það ástand, sem var. Þess vegna verður að fá fram á henni mjög þýðingarmiklar breytingar. En hvernig tekur hæstv. ráðh. undir þær kröfur? Það hefur verið sýnt fram á, að verðbólguþróunin og hækkun stofnkostnaðarins hafi grafið alveg grundvöllinn undan verðlagningu landbúnaðarafurðanna, þannig að verðlagning þeirra er algerlega komin úr skorðum, vegna þess að nýi stofnkostnaðurinn og nýi rekstrarkostnaðurinn fæst ekki tekinn til greina. Og þetta fæst ekki lagað með óbreyttri löggjöf. Það virðist ekki vera mögulegt að knýja fram á þessu nægilega lagfæringu að óbreyttri löggjöf. Því hafa samtök landbúnaðarmanna farið þess á leit við hæstv. ráðh., að hann beiti sér fyrir breytingu á löggjöfinni, til þess að þeir geti fengið sinn rétt. En hæstv. ráðh. vill ekki sinna þessu né meiri hl. sá, sem hann styðst við, — vill ekki sinna þessu og neitar að beita sér fyrir lagfæringum í þessu efni.
Næst koma svo lánskjör landbúnaðarins, sem hafa verið færð í óviðunandi horf, eins og ég var að lýsa. Það eru kröfur gerðar um, að þessu verði breytt, vextirnir verði færðir aftur í það horf, sem þeir voru, — það er nú ekki hugsað hærra, — og hætt að láta menn borga sérstakan skatt í lánasjóðinn. En hæstv. ráðh. vill ekki sinna þessu. Hann þverneitar að sinna þessu, þverneitar sem sé að sinna óskum bændanna um að breyta afurðalöggjöfinni og þverneitar að sinna því að breyta lánalöggjöfinni til hagsbóta fyrir landbúnaðinn.
Loks kemur svo sá þáttur, sem lýtur að beinum stuðningi við uppbygginguna í sveitunum, þ.e.a.s. jarðræktarlögin. Og þá er það allt og sumt, sem hæstv. ráðh. vill gera, að hann vill slíta eitt atriði út úr till. framsóknarmanna um endurbætur í þeim efnum, varðandi súgþurrkunina. Hann vill slíta það atriði eitt út úr og sinna því, og þó ekki til fulls, en láta annan stuðning skv. jarðræktarl. fara minnkandi áfram. Þetta eru því miður þær undirtektir, sem þessi lífshagsmunamál bændastéttarinnar fá hjá hæstv. ráðh. og þeim meiri hl., sem hann styðst við.