18.02.1964
Neðri deild: 58. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 801 í B-deild Alþingistíðinda. (498)
131. mál, jarðræktarlög
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Umr. hafa nú orðið nokkuð langar við þessa 1. umr. um frv. um breyt. á jarðræktarl., og það er náttúrlega ekkert að undra, þegar athugað er, hvernig málflutningur stjórnarandstöðunnar er.
Hv. 1. þm. Austf. sagði hér áðan, og ég veit, að allir, sem eru hér í hv. d., hafa heyrt það, að landbúnaðinum hafi miðað aftur á bak síðustu árin. Þetta fullyrti þessi hv. þm. En hvað segja skýrslur, sem landbúnaðinn varða? Hefur verið þrengt þannig að honum, að framleiðslan hafi dregizt saman? Hefur ræktunin dregizt saman? Hafa lán til landbúnaðarins dregizt saman? Það er alveg dæmalaust, að maður, sem hefur setið 30 ár á þingi og lengi verið ráðh., skuli leyfa sér að koma með slíkt fleipur eins og þetta fram hér í hv. Alþingi. Þegar litið er í landbúnaðarskýrslurnar, hefur framleiðslan aldrei aukizt meira en síðustu 3—4 árin. Þegar litið er í lánaskýrslur Búnaðarbankans, hafa lánveitingar til landbúnaðarins aldrei numið meiru en nú. Og s.l. ár voru lánaðar um 103 millj. kr. til bænda úr stofnlánadeild landbúnaðarins. 1962 námu þessi lán 70 millj. kr. 1961 námu lán úr sjóðum Búnaðarbankans um 50 millj. kr., og var þá mest, miðað við það, sem hefur verið lánað áður á einu ári. Er þetta samdráttur í útlánum eða framkvæmdum, því að ekki er lánað nema út á framkvæmdir?
Hv. þm. talar um, að jarðræktarframlögin dragist saman og það hafi verið stigið spor aftur á bak. En var ekki styrkur til íbúðabygginga hækkaður 1960? Var ekki styrkur til íbúðabygginga og ræktunar hækkaður 1961? Var ekki styrkur til íbúða í sveitum og ræktunar aftur hækkaður 1963? Og eru þessi frv., sem við höfum rætt hér nú í þessari hv. d. um aukningu á jarðræktarframlögum og styrk til hinna minni býla eða þeirra, sem hafa ekki ræktaða 25 ha., eru þau spor aftur á bak? Það skiptir í sjálfu sér litlu máli, hvað hv. 1. þm. Austf. segir um þetta. Það skiptir miklu meira máli, hvað bændurnir sjálfir segja um það og hvaða álit þeir hafa á því. Bændurnir hafa gert sér grein fyrir því, að það hefur aldrei verið stigið stærra spor í ræktunarmálunum en með þessum frv., aldrei. Framlög til landnámsins eru hækkuð með því fyrra frv., sem hér var flutt, um allt að 80%, og framlög samkv. seinna frv. eru næstum því hálfdrættingur við það, sem frv. mþn. var, en ætlazt var til, að væri flutt eitt út af fyrir sig. Þegar þetta er nú athugað, hygg ég, að menn séu ekki í neinum vafa um, að það voru öfugmæli, sem hv. 1. þm. Austf. mælti hér áðan.
Hv. 1. þm. Norðurl. v. segir, að það sé skröksaga, að búnaðarsjóðirnir hafi verið gjaldþrota. Ég undrast það, að jafnreikningsglöggur maður og þessi maður er skuli fara með slíka staðleysu. Það liggur fyrir samkv. opinberum skýrslum og reikningum, að ræktunarsjóður og byggingarsjóður áttu 31 millj. minna en ekki neitt, þegar gert var upp, — og hvers vegna á þá að vera að þrátta um þetta, úr því að það liggur fyrir samkv. opinberum skýrslum? Hvers vegna þarf að þrátta um það? Getur það verið rangt? Það getur ekki verið rangt. Og þess vegna getum við sparað okkur öll orð um þetta, að það liggur fyrir útreiknað, að sjóðirnir áttu 31 millj. kr. minna en ekki neitt, og það hafa menn leyft sér að kalla gjaldþrot. Og það verður ekkert annað en gjaldþrot, þótt 1. þm. Norðurl. v. vilji kalla það eitthvað annað.
Nú er hv. 1. þm. Norðurl. v. bókhaldsfróður maður og þess vegna því undarlegra, að hann skuli bera þetta fram. Hvernig stendur á því, að hv. framsóknarmenn leggja sig svo mikið fram að gera allt svart, sem að landbúnaðinum lýtur? Þeir sjá ekkert nema svart og vilja ekki viðurkenna neitt, sem til bóta má verða fyrir landbúnaðinn. Hv. 3. þm. Vestf. sagði hér í gær: Enginn óvitlaus maður lætur sér detta í hug að byrja búskap í sveit. — Þetta er söngurinn, sem er kveðinn af hv. framsóknarmönnum. Þetta er það, sem menn geta næstum á hverjum degi lesið í Tímanum. E.t.v. halda þessir menn, að þeir séu að vinna fyrir landbúnaðinn, þeir séu að tryggja framtíð sveitanna með þessu.
En það er þó virðingarvert, að það er einn hv. þm. í liði framsóknarmanna, sem sagði hér fyrir fáum dögum: „Barlómurinn er mesti bölvaldur landbúnaðarins,“ — og það er það. Þessi áróður gegn sveitunum er hættulegur, ef tekið væri mark á honum. Með þessum áróðri er stöðugt verið að vinna gegn því, að fólk vilji vera í sveitunum. En sem betur fer er árangur af þessum áróðri framsóknarmanna og skrifum Tímans næsta lítill, því að það er ekki rétt, að fólki hafi fækkað meira nú í sveitunum en áður, fleiri jarðir farið í eyði nú en áður. Miklu fremur má marka það, að nú sé verið að veita viðnám og koma í veg fyrir, að jarðir fari í eyði. Og ég vildi óska þess, að augu framsóknarmanna opnuðust fyrir því og þeir gerðu sér grein fyrir því, að þeir eru að vinna skemmdarverk með þessum barlómi og með því að telja ungum mönnum og eldri trú um, að það sé alls staðar betra að vera en í sveitinni, að allir hafi betri kjör en bændurnir og að jafnvel verkamaðurinn á eyrinni sé öfundsverður, ef kjör hans eru borin saman við kjör bænda. Það er illt verk, sem hér hefur verið unnið, og það er mál til komið, að hv. framsóknarmenn taki sig nú saman og reyni að bæta fyrir þetta og viðurkenni það, sem vel er gert fyrir landbúnaðinn, og standi með þeim, sem að því vilja vinna.
Hv. framsóknarmenn geta ekki bætt fyrir ódugnað sinn í sambandi við landbúnaðinn, meðan þeir höfðu ráð, með því nú að reyna að snúa öllum staðreyndum við. Ég vitnaði í gær í umsagnir ýmissa forustumanna ræktunarmála í landinu, sem voru hér á fundi í síðustu viku. Þeir hafa lesið þessi frv., sem hér er um að ræða. Þeir hafa gert sér grein fyrir því, að þau munu marka tímamót og ræktunin fá nýjan fjörkipp, eftir að þessi frv. hafa verið lögfest.