28.11.1963
Neðri deild: 21. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í B-deild Alþingistíðinda. (51)

80. mál, hækkun á bótum almannatrygginga

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Ég skal ekki hafa mörg orð um þetta litla mál nú. Eitt af því, sem hæstv, ráðh. sagði hér áðan, var það, að ég hefði sjaldan sýnt áhuga á umbótum á tryggingunum, en sá hv. þm., sem hér talaði seinast, hv. 2, landsk., Birgir Finnsson, minntist á tvær stórkostlegar umbætur, sem gerðar hefðu verið á almannatryggingalögunum. (Gripið fram í: Í tíð núv. ríkisstjórnar.) Í tíð núv. ríkisstj. Ekki skal ég hafa það af henni blessaðri, ekki eru nú skrautfjaðrirnar of margar. Það er afnám skerðingarákvæðanna og að hafa gert landið eitt verðlagssvæði. Ætli það sé nú ekki hægt að finna það í Alþt., að ég hafi fyrir hönd Alþb., líklega einum 4–5 sinnum, borið fram till. um afnám skerðingarlaganna og að landið yrði gert að einu verðlagssvæði, því að hvort tveggja væri orðið ranglát löggjafaraðferð? Ég hygg, að um þetta verði ekki deilt, þskj, munu herma frá þessu. En jafnoft og ég bar þessa till. fram, felldi Alþfl. hana. Að síðustu, þegar almenningsálitið var orðið algerlega eindregið um þessi atriði, þá lét hann undan og hefur nú tekið þátt í því að afgreiða það, og það var gert einróma á Alþ.

Þá er það annað atriði. Hæstv, ráðh. sagði, að það væru okkar flokksmenn, stjórnarandstöðunnar, Alþb. og Framsfl., sem mestu réðu í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. Þetta getur rétt verið, stjórnarflokkarnir séu þar í minni hluta. En svo mikið er víst, að Bandalag starfsmanna ríkis og bæja bar fram launakröfur fyrir opinbera starfsmenn, sem höfðu verið þaulræddar í öllum „instönsum“ þeirra samtaka og voru bornar fram einróma í umboði allra samtakanna. Þannig eru þær til komnar. En það eru ekki þær kröfur, sem við vorum að óska eftir og krefjast að yrðu yfirfærðar á gamla fólkið. Nei, við fórum aðeins fram á það í allri okkar hógværð, hvort sem við höfum brýnt röddina meira eða minna, þá var það nú ekki hættulegra en það, að við vorum að krefjast, þess, að gamla fólkinu yrðu ákveðnar hækkanir samkv. niðurstöðum launadómenda ríkisstj., en ekki eftir óbilgjörnum kröfum framsóknarmanna og kommúnista í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. Og þess vegna væri ástæða fyrir hæstv. ráðh. að dvelja heldur við niðurstöðu kjaradóms en það, að stjórnarandstaðan nú sé svo óbilgjörn, að hún vilji fara fram á það við hæstv. ríkisstj., að hún ætli gamla fólkinu meðaltal þeirra launabóta, sem opinberir starfsmenn fengu að dómi gengnum, Ósanngjarnari en þetta erum við nú ekki. En ég hygg, að það hafi hér, bæði með upplýsingum hv. 5. þm. Reykv. og mínum, sem vitnaði hins vegar til vísitölunnar, verið sýnt fram á, að ellilífeyrir og örorkubætur hafa síðan í marz 1960 aðeins hækkað um 27%, en matvörur um 75% og fatnaður um 46%, og það eru matvörur og fatnaður, sem gamla fólkið þarf til að framfleyta sér með fyrst og fremst, og svo húsnæði, 27% annars vegar sjálf vísitala ríkisstj., en 75% hækkuð vísitala um matvörur og 46% um klæðnað, og allir vita, hvers konar liður húsnæðiskostnaðurinn er, hvort sem hann er hjá gömlum eða ungum. Og við förum þess vegna fram á það, að gamla fólkinu sé ætluð meðaltalshækkun opinberra starfsmanna, þegar endurskoðun fer fram á tryggingabótum þess.