09.03.1964
Neðri deild: 66. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 817 í B-deild Alþingistíðinda. (511)

131. mál, jarðræktarlög

Frsm. meiri hl. (Gunnar Gíslason):

Herra forseti. Landbn. flytur á þskj. 359 brtt. við jarðræktarlagafrv. um, að 1. gr. frv. orðist eins og þar segir. Þessi brtt. er flutt samkv. ábendingu og að tilmælum stjórnar vélasjóðs. Í jarðræktarlögunum segir, að styrkhæfur rekstrarkostnaður við skurðgröft skuli ákveðinn og samþykktur af stjórnendum vélasjóðs. Það mun hafa verið svo yfirleitt, að skurðgröfturinn mun hafa verið framkvæmdur með gröfum vélasjóðs. Þó hefur orðið á þessu nokkur breyting, því að bæði búnaðarsambönd og einstaklingar hafa eignazt skurðgröfur og vinna einnig þetta verk, þannig að það eru fleiri aðilar en vélasjóður einn, sem annast skurðgröftinn, og er því vélasjóður orðinn samkeppnisaðili um þessi verk. Er því eðlilegt, að öðrum en stjórnendum sjóðsins sé falið að ákveða og samþykkja þann kostnað, sem styrkur er greiddur á. Það er lagt til í brtt., að stjórn Búnaðarfélags Íslands verði falið þetta, enda má það líka kallast eðlilegt, því að samkv. jarðræktarlögunum er framkvæmd þeirra í höndum Búnaðarfélagsins í umboði landbrn.

Þá segir einnig í brtt., að ríkisframlög á vélgröfuskurði, sem ræktunarsambönd og búnaðarfélög og einstaklingar láta grafa með eigin vélum eða leiguvélum, greiðist ekki á hærri kostnað en þann, sem Búnaðarfélag Íslands telur eðlilegan á viðkomandi ræktunarsvæði. Stjórn vélasjóðsins telur, að þetta ákvæði miði að því að halda kostnaðinum við skurðgröftinn innan eðlilegra marka, og hefur hún því óskað þess, að landbn. flytti þessa brtt. við jarðræktarfrv.

Ég sé ekki ástæða til að segja fleiri orð um þetta, en vænti þess, að hv. þd. geti fallizt á að samþykkja þessa brtt.