10.02.1964
Neðri deild: 53. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 864 í B-deild Alþingistíðinda. (533)

130. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Það voru nokkur orð aðallega til þess að svara nokkrum atriðum í ræðu hæstv. ráðh., en hann flutti hér alllanga svarræðu um þessi efni, eftir að ég hafði talað fyrir helgina.

Hæstv. ráðh. sagði, að það væri ekki réttmætt að halda því fram, að hagur bænda stæði verr nú en áður, t.d. áður en núv. stjórnarstefna kom til framkvæmda. Hann sagði, að í þessu sambandi mundu menn mest vitna til þess, sem Hermóður Guðmundsson bóndi í Árnesi í Suður-Þingeyjarsýslu hefði sagt um afkomu bænda, og til talna, sem hann hefði komið fram með í því sambandi. Og fór hæstv. ráðh. æðimörgum orðum um, að niðurstöður Hermóðs Guðmundssonar í þessu tilfelli væru rangar og þar af leiðandi væri þessi dómur um afkomu bændastéttarinnar ekki réttur. Ég vitnaði alls ekki til Hermóðs Guðmundssonar bónda í Arnesi og er ekki nógu kunnugur því, sem hann hefur upplýst um þessi efni, til þess að hafa það á takteinum. En ég kunni satt að segja ekki við, hvernig hæstv. ráðh. talaði um þau efni, og vona ég, að einhverjir, sem kunnugri eru því, sem Hermóður Guðmundsson hefur haldið fram, en ég, verði til þess að svara fyrir hann, þar sem hann hefur ekki aðstöðu til þess að gera það hér. En ýmislegt af því, sem hæstv. ráðh. sagði um það efni, er þannig, að mér finnst því þyrfti að gera nokkur skil. Vona ég, að einhver taki sig til, áður en þessum umr. verður lokið.

En það er undarlegt hlutskipti, sem hæstv. landbrh. hefur valið sér, ekki aðeins í þessum umr., heldur í umr. yfir höfuð um landbúnaðarmál á síðustu árum. Tónninn í því, sem kemur frá hæstv. ráðh. í því sambandi, er nánast sá, að ástandið í landbúnaðinum sé alltaf batnandi og aldrei betra en nú. Og það var svikalaust tónninn í því, sem hæstv. ráðh. hélt fram um þessi efni fyrir helgina.

Ég er alveg steinhissa á hæstv. ráðh. að velja sér þetta hlutskipti og þennan málflutning, og það má svo sem nærri geta, hvernig hæstv. ráðh. gengur að koma fram málefnum bændanna, sem honum er trúað fyrir í ríkisstj. og stjórnarherbúðunum, þegar hann hefur þetta viðhorf sjálfur og hamrar þetta dag út og dag inn, eins og ástandið er þó í þessum efnum, og eins og bændur sjálfir upplýsa um þessi efni, bæði hver í sínu lagi og eins þegar þeir koma saman. Ég er alveg steinhissa á þessu, og sannleikurinn mun vera sá, að þessi undarlegi málflutningur hæstv. ráðh. þvert ofan í staðreyndir, sem fyrir liggja, og glögga vitnisburði, verkar eins og beiskasta storkun í garð bændanna, því að það er ekki til neins að berja höfðinu við steininn í þessum efnum.

Það er öllum augljóst, sem nokkuð þekkja til þessara mála, að það er miklu erfiðara t.d. að fást við þessi efni nú en var áður en þessi nýja stjórnarstefna var tekin upp, t.d. 1958. Og það þarf ekki lengi að leita að ástæðunum fyrir þessu. Ástæðurnar eru fyrst og fremst, eins og ég þóttist sýna fram á og hæstv. ráðh. hnekkti ekki í einu né neinu, sú stórkostlega verðlagsbylting, sem orðið hefur vegna verðbólgu- og dýrtíðarstefnu hæstv. ríkisstj. Og þessi ofsalega verðlagsbylting, sem orðið hefur í landinu, hefur verkað þannig, að allur verðlagsgrundvöllur landbúnaðarins, sem var áreiðanlega ekki áður of hagstæður bændum, hefur skekkzt stórkostlega í óhagstæðari átt fyrir landbúnaðinn. Það þarf ekki annað en sjá verðlagsgrundvöll landbúnaðarins, þennan síðasta, sem gefinn hefur verið út, til þess að sannfærast alveg um þetta og um þá erfiðleika, sem fram undan eru, meira að segja því miður í landbúnaðinum, vegna þessarar verðlagsbyltingar.

Við sjáum t.d., ef við lítum í verðlagsgrundvöll landbúnaðarins, að þar er fyrning reiknuð af húsum af kostnaðarverði, 180 þús. kr. Auðvitað nær þessi húsakostnaður ekki nokkurri átt. Hann er ekkert í áttina við það að vera raunhæfur, eins og nú er komið, 180 þús. kr. Enn fremur er í þessum sama verðlagsgrundvelli t.d. gert ráð fyrir að afskrifa 80 þús. kr. stofnkostnað á vélum, — 80 þús. kr. stofnkostnað á vélum. Það er ekki fyrir einni dráttarvél af minnstu gerð, sem gert er ráð fyrir að bóndinn geti afskrifað af vélakosti sínum í verðlagsgrundvelli landbúnaðarins. Það tekur lítið betra við, ef íhugað er um liði eins og t.d. vextina. Þar er gert ráð fyrir, að þetta bú skuldi ræktunarsjóði 60500 kr. og annars staðar um 51 þús. kr. En hvernig er hugsanlegt, að nokkurt bú, sem hefur orðið að sæta þeim stofnkostnaði, sem nú er orðinn, komist af með að skulda jafnlágar fjárhæðir og hér er gert ráð fyrir? Þetta nær vitanlega engri átt, miðað við ástandið, eins og það er orðið. Þetta eru algerlega úreltar tölur, og verðlagsbylting sú, sem núv. hæstv. ríkisstj. hefur staðið fyrir, hefur skollið á þennan hátt á landbúnaðinum og skekkt á þennan hátt verðlagsgrundvöllinn, að hann er ekki orðinn nærri því að geta staðizt.

Hæstv. ráðh. var að tala hér um einar og aðrar leiðréttingar, sem hefðu verið gerðar á einstökum liðum í verðlagsgrundvellinum. Ég sé nú ekki ástæðu til að fara að ræða um þau atriði fram og aftur, en hitt má segja í því sambandi, að ef einhverjar leiðréttingar hafa orðið á verðlagsgrundvellinum á þessum árum, hafa þær áreiðanlega ekki fengizt fyrir tilverknað hæstv. ráðh. á nokkurn hátt, heldur hefur það verið verk Stéttarsambands bænda einvörðungu, að þær hafa fengist fram. En eitt vil ég segja, og það ætla ég, að hverjum manni sé ljóst, sem þessi mál vill kynna sér af einhverri alvöru, að slíkar leiðréttingar, ef þær hafa fengizt, hafa reynzt hreinasti hégómi samanborið við þær skekkjur, sem komið hafa inn í verðlagsgrundvöllinn vegna stjórnarstefnunnar, vegna verðbyltingarinnar, sem orðið hefur í landinu. Það er verðbyltingin, sem orðið hefur í landinu af völdum stjórnarstefnunnar, sem búin er að grafa algerlega grunninn undan verðlagsgrundvellinum og hefur auðvitað verkað til tjóns margfalt á við þessa einstöku liði, sem hæstv. ráðh. var að benda hér á áðan, að Stéttarsambandinu hefði tekizt að knýja fram eitthvað til lagfæringar, og ég skal ekki leggja neinn dóm á.

Við þetta bætist svo vaxtapólitík hæstv. ríkisstj., sem verkar þannig, að bændur verða að greiða miklu hærri vexti og búa við óhagstæðari lán en áður, og ég vil benda hér á það, út í hvílíka fjarstæðu þetta er komið, að hér er gert ráð fyrir því, að vextir af skuldum til annarra í verðlagsgrundvellinum séu 7200 kr., aðeins 7200 kr. í heild. Þarna sjáum við, hvílík fjarstæða þetta er orðin samanborið við hin nýju kjör, sem landbúnaðurinn þarf að búa við, bæði stofnkostnaðinn og lánskjörin. Ég sé ekki betur en í verðlagsgrundvellinum sé t.d. aðeins reiknað með 111500 kr. skuldum samtals. Hvaða glóra er orðin í þessu, þegar það kostar vafalaust mikið á aðra millj. að koma upp meðalbúi? Það er svona, sem búið er að fara með landbúnaðinn með þessari verðlagsbyltingu, sem orðið hefur, með þessari dýrtíðarstefnu.

Þýðingarlaust er fyrir hæstv. ráðherra í því sambandi að vera að halda því fram, að stjórnarandstaðan eigi verulegan þátt í því, hvernig farið hefur að þessu leyti, og í þeirri dýrtíðarbyltingu, sem orðið hefur í landinu. Þetta er auðvitað hrein fjarstæða. Það var byrjað með því að innleiða hér stórfellda gengislækkun, mikla vaxtalækkun, stórfellda tollahækkun og söluskattshækkun, allt í einu lagi, — byrjað með þessu. Síðan var annarri gengislækkun bætt við. Og stjórnarstefnan hefur frá fyrstu tíð ætíð verið miðuð við að láta dýrtíðina vaxa örar en kaupgjald hækkaði og afurðaverð til bænda, því að allt var þetta byggt á því, að þjóðin lifði um efni fram, sem var falskenning, og það yrði að leiðrétta þetta með því að minnka kaupgetuna í landinu, — og það ætti að gera með því, að verðlagið hækkaði meira en kaupgjald og afurðaverð til bænda. Þannig ætti að lækna þá meinsemd, að þjóðin eyddi meiru en hún aflaði.

Þessi stefna hefur leitt til þessarar verðlagsbyltingar og til þeirrar óðadýrtíðar, sem við höfum búið við, og hlaut að gera það, og var það raunar sjáanlegt fyrir fram og margvarað við því, þó að hæstv. ríkisstj. og hennar fylgilið vildi ekki á það hlýða, þá hefur reynslan orðið svona. Og þetta hefur skekkt m.a. verðlagsgrundvöll landbúnaðarins svo stórkostlega, að þau einstök atriði, sem hæstv. ráðh. ræddi í því sambandi, verða smávægileg, þegar þetta er skoðað ofan í kjölinn.

Ég viðurkenndi í ræðu minni um daginn, að það, sem hæstv. ráðh. var að telja sér til gildis, að innleiddar voru útflutningsuppbætur á landbúnaðarafurðir og oftar umreiknað verð landbúnaðarafurða miðað við kaupgjaldsbreytingar en áður var, væri til bóta og auðvitað hefði ástandið verið enn verra, ef þetta hefði ekki verið gert, en þessi atriði hafa auðvitað ekki megnað að forða landbúnaðinum frá því öngþveiti, sem nú er orðið vegna stjórnarstefnunnar, eins og ég hef sýnt fram á með þeim dæmum, sem ég hef tekið.

Það er alveg þýðingarlaust við þessar aðstæður að berja höfðinu við steininn og halda því fram, að ekkert sé að marka vitnisburði bænda og samtaka þeirra um þann vanda, sem í er komið í þessu sambandi og ég leyfði mér að kalla úlfakreppu, — þykjast ekki sjá þetta og halda því fram, að hér sé ekki um neinn sérlegan vanda að ræða og sízt meiri en áður hefur verið. Það færi betur, að svo væri, en því er sannarlega ekki þannig varið, eins og menn mega af þessu sjá.

Ég vil svo skjóta því hér inn í, vegna þess að ég er að ræða hér almennt um þessi efni og það kom fram hjá síðasta ræðumanni, að afurðasölulöggjöf landbúnaðarins mundi aldrei hafa verið landbúnaðinum sérlega þýðingarmikil eða hagstæð. Ég held, að menn séu þá illa búnir að gleyma, hvernig hér var ástatt, áður en afurðasölulöggjöfin var sett, ef menn telja það. Auðvitað var afurðasölulöggjöfin geysilega þýðingarmikil á sínum tíma og hefur unnið landbúnaðinum mjög mikið gagn. Hitt er annað mál, að það hafa komið fram gallar á löggjöfinni í framkvæmd, þannig að það er lífsnauðsynlegt að breyta löggjöfinni, ekki sízt miðað við hina nýju staðhætti, því að hvernig í ósköpunum á landbúnaðurinn að komast út úr þessari úlfakreppu, sem ég hef verið að lýsa, vegna verðbyltingarinnar, án þess að nýjum tökum sé tekið á verðlagsmálunum? Það er ekki hugsanlegt.

Það er nefnilega eins og ég leyfði mér að benda á um daginn, að það lítur út fyrir það núna, að þessi verðlagsbylting, sem orðin er, krefjist svo mikilla breytinga í verðlagningu landbúnaðarvara, að hún komist aldrei í framkvæmd að óbreyttri afurðasölulöggjöf, því að þessi verðlagsbylting, sem ég hef leyft mér að kalla, hefur grafið grunninn undan framleiðsluráðslögunum.

Ég spurði hæstv. ráðh., hvort hann ætlaði að beita sér fyrir því að koma fram breytingum á afurðasölulöggjöfinni í samræmi við það, sem stjórn Stéttarsambandsins hefur farið fram á, og hæstv. ráðh. svaraði því engu, sagðist bara vilja það bezta í þessum efnum. En hann svaraði því engu, hvort hann ætlaði að beita sér fyrir þessu, og þótti mér það miður, að hann skyldi ekki gefa yfirlýsingu um, að hann ætlaði að gera þetta. Og sannast að segja fannst mér miður um það, sem hann sagði um það, hvað ástandið í landbúnaðinum væri gott og æskilegt, og það allt gaf síður en svo bjartar vonir um skelegga forustu hans til að bæta úr þeim vanda, sem menn standa frammi fyrir.

Ég minnti á, hvað hækkandi vextir hefðu örlagaríkar afleiðingar í landbúnaðinum, og skal ekki endurtaka neitt af því hér. En hæstv. ráðh. kemst aldrei fram hjá þeirri staðreynd, að áður þurftu bændur að borga 3½% af aðallánunum, sem þeir tóku, en núna þurfa þeir að borga 6–6½%. Áður borguðu bændur engan sérstakan skatt af tekjum sínum, persónulegum tekjum sínum, til þess að fá þessi lán með 3½%–4% vöxtum. En nú verða bændur að borga persónulegan skatt til þess að fá lán með 6–6½% vöxtum. Þetta ætla ég, að sé nokkuð mikil og örlagarík breyting á aðstöðu bændanna. Og auðvitað á að leysa lánamál landbúnaðarins fyrir bændurna, fyrir landbúnaðinn. Fyrst og fremst skiptir máli, hvað að landbúnaðinum og bændunum snýr í því tilliti. Ég veit ekki betur en bændur fengju yfirleitt lán úr ræktunarsjóði og byggingar- og landnámssjóði áður, eftir því sem eftirspurnin sagði til, og að því leyti til hafi ástandið ekkert breytzt. Hitt er rétt, að það hefur verið bætt við smálánum til vélakaupa, sem þó hrökkva ekki nema fyrir litlum hluta af þeirri verðhækkun, sem hefur orðið á vélunum, og þannig mætti náttúrlega lengi telja. Það eru ólíkt verri lánskjör, sem landbúnaðurinn býr við nú, þegar á heildina er litið, en áður var, og er það sannast að segja furðulegt, að slíkt skuli hafa átt sér stað, að gengið væri aftur á bak í þeim málum. Og svo sjáum við afleiðingarnar af þessu. Nýju vextirnir komast ekki inn í verðlagsgrundvöllinn, nýi stofnkostnaðurinn kemst ekki inn í hann heldur nema að mjög takmörkuðu leyti, og afleiðingin verður svo sú, að það er klipið af kaupi bændanna til þess að greiða þessi vaxandi útgjöld.

Þetta er myndin, sem við blasir í dag og er algerlega óhrekjanleg, og þarf ekkert annað skjal að skoða í því sambandi en verðlagsgrundvöll landbúnaðarins einan, eins og hann liggur fyrir nú. Þar sjáum við, að þessir liðir eru ekki í neinu sambandi við raunveruleikann eins og hann er í dag. Og svo er þar fyrir utan margt annað, sem ég fer ekki út í, eins og t.d. það, að talið er, að ýmsir einstakir rekstrarliðir séu vantaldir, en út í það skal ég ekki fara fremur en umr. um hina einstöku liði, sem hæstv. ráðh. ræddi í sambandi við verðlagninguna.

Ég sagði, að þegar gengið var fellt, hefði ríkið tekið á sig gengistöpin hjá opinberu lánsstofnununum yfirleitt og nær undantekningarlaust, nema hjá lánastofnun landbúnaðarins, og þetta er rétt. Töpin voru færð yfir á sérstakan reikning í Seðlabankanum, sem ríkissjóður tók á sig að standa undir, en gengistöp landbúnaðarlánasjóðanna voru skilin eftir, af því að það þótti henta til þess að nota það sem áróðursatriði, að sjóðir landbúnaðarins stæðu höllum fæti og þess vegna þyrfti að leggja lánaskatt á bændurna, — framsóknarmenn hefðu skilið þannig við sjóði landbúnaðarins, að þeir hefðu staðið höllum fæti, var sagt, og þsss vegna þyrfti að leggja skatt á bændurna. Þetta var áróðursbragð, ljótt bragð og ómaklegt, að haga sér svona í garð bændastéttarinnar, vegna þess að hún hefur ekki aðstöðu til þess að borga aukaskatt jafnhliða því, sem lánskjör fara versnandi, síður en svo. Þessi mál var hægt að leysa á auðveldan hátt og einfaldan, aðeins með því, að þjóðfélagið tæki á sig gengistöp þessara sjóða eins og hliðstæðra sjóða velflestra, og ekki þá sízt þegar ríkissjóður sjálfur var í ábyrgð fyrir skuldbindingum sjóðanna og var þess vegna í raun og veru skylt að taka þetta á sig eins og aðrar ríkisábyrgðargreiðslur. Það var ekki gert, heldur tekið upp þetta bragð, sem ég var að lýsa. Og bændur mega svo borga brúsann með þessum nýja skatti.

Hæstv. landbrh. ræddi dálítið um, að með þessu frv. væri stigið stórt skref í uppbyggingarmálum landbúnaðarins. Ég vil ekki gera lítið úr því gagni, sem verður af því að hækka jarðræktarframlagið, eins og gert er ráð fyrir í þessu frv., og miðað við 25 ha. hámark, enda er það framhald af þeirri stefnu, sem Framsfl. mótaði í öndverðu. En ég vil benda á, að hér eru þó ekki ráðgerð hærri útgjöld á ári en kringum 13 millj. kr., þannig að hér er náttúrlega ekki um stóra fjárhæð að ræða. En ég vil í því sambandi minna hæstv. ráðh. á það, að nú fyrir örstuttu, nokkrum dögum, var samþykkt að leggja allverulegt fé fram til að bæta hag hraðfrystihúsanna í landinu og 51 millj. til að styðja togaraútgerðina í landinu. Hvernig væri nú, að hæstv. ráðh. beitti sér fyrir því, að eitthvað hliðstæðum fjárhæðum yrði veitt til landbúnaðarins til þess að greiða fyrir uppbyggingu hans, t.d. til að standa undir kostnaði við eitthvað af þeim frv., sem framsóknarmenn hafa lagt fram nú ár eftir ár og ganga í þá átt, en ætíð hafa verið felld?

Ég nefni í því sambandi t.d. nýju jarðræktarlögin, sem Framsfl. hefur flutt, lög um bústofnslánadeild, lög um lagfæringar á vöxtunum í stofnlánadeild landbúnaðarins, og fleiri frv. mætti nefna, sem Framsfl. hefur lagt fram og hann berst fyrir í þessa átt. Hvernig væri að taka nokkra fúlgu og verja henni skipulega og skynsamlega til þess að gera átak í landbúnaðarmálunum og greiða fyrir málefni landbúnaðarins hliðstætt við málefni annarra stétta og velja þá úr það, sem að beztu manna yfirsýn væri talið þýðingarmest fyrir landbúnaðinn? Nú mun hæstv. ráðh. kannske segja, að þetta væri ágætt, ef það væru peningar til að koma þessu í framkvæmd. En ég vil leyfa mér að minna hæstv. ráðh. á, að árið 1962 mun hafa verið um 160 millj. kr. greiðsluafgangur hjá ríkissjóði, og ríkisstj. segist hafa lagt 100 millj. af því á bók. Og á árinu 1963 hefur áreiðanlega einnig orðið mjög verulegur greiðsluafgangur hjá ríkissjóði, þannig að það eru mörg hundruð millj., sem ríkisstj. hefur yfir að ráða af greiðsluafgöngum, sem búið er að taka af þjóðinni með sköttum og er hreint afgangsfé, sem hún hefur til ráðstöfunar.

Hvers vegna ekki að taka eitthvað af þessu fé og verja því til að greiða fyrir uppbyggingu landbúnaðarins, ef menn meina eitthvað með því, að þeir vilji gera það, ef það er eitthvað annað en fögur orð, því að peninga vantar ekki?

Og núna síðast, þegar þessi mál voru til meðferðar, nýjar „bráðabirgða efnahagsmálaráðstafanir“ af hendi hæstv. ríkisstj., voru hamraðar hér fram nýjar álögur, stórfelldar, til þess að þurfa ekki að skerða greiðsluafgangana, þannig að þeir eru til óskertir. Þeir eru þess vegna til óskertir.

Hér á árunum, þegar greiðsluafgangar urðu, og það kom fyrir nokkrum sinnum, beitti ég mér fyrir því, að féð var notað til þess að greiða fyrir ýmsum þeirra mála, sem þá lágu þyngst á. Sumt af því fé var lagt fram í lánasjóði landbúnaðarins og sjávarútvegsins og íbúðarlánakerfið o.s.frv., o.s.frv. Og yfirleitt voru greiðsluafgangar þá notaðir í þessu skyni. Það er sagt núna, að þetta hafi verið hin mesta óráðsía, að haga sér á þessa lund, og hefði heldur átt að liggja á þessum peningum, skilst mér. En ég hef ekki skilið, að við hefðum ráð eða möguleika á því að liggja þannig á peningum með öll þau óleystu verkefni, sem við þurfum hér að sinna, bæði í landbúnaðinum og í öðrum efnum. Og ég held, að það væri skynsamlegra fyrir hæstv. ríkisstj. að fallast nú á það að samþykkja eitthvað af þeim frv. t.d., sem hér liggja fyrir frá Framsfl., með það fyrir augum að verja til þess að standa undir þeim fé af þessum greiðsluafgöngum, eða þá taka eitthvað af greiðsluafgöngunum og verja eftir öðrum leiðum til gagns fyrir landbúnaðinn, ef þær finnast heppilegri en þær, sem við höfum stungið upp á, en sem sagt verja einhverju verulegu af þessu fjármagni til að greiða fyrir landbúnaðinum í þeim vanda, sem þar hefur nú skapazt. Það væri áreiðanlega talsvert hægt að gera fyrir þetta fé, ef menn sameinuðust um að verja því skynsamlega.

Það má vel vera, að hæstv. ráðh. eða einhverjir úr stjórnarherbúðunum mundu vilja segja, að þetta fé megi ekki nota, það verði að liggja ónotað, til þess að það skapi ekki ofþenslu. Mér finnst þetta vera heldur einkennilegar röksemdir, t.d. ef ætti að halda því fram, að það skapaði hættulega ofþenslu að verja einhverju af þessu fé til að styðja aukna ræktun, til að styðja aukna uppbyggingu í sveitunum o.s.frv., það skapi ofþenslu. A.m.k. held ég, að sú stjórn geti ekki borið sér það í munn, sem lætur allt það handahóf og ég vil segja: alla þá eyðslu og sóun viðgangast afskiptalaust, sem nú á sér stað í fjárfestingarmálum á Íslandi. Ég held, að það sé ekki frambærilegt, þegar svona er haldið á málum, að halda því fram, að það mundi valda óeðlilegri ofþenslu að verja einhverju af því fjármagni, sem ríkið raunverulega á ónotað, til þess að greiða fyrir aðkallandi málefnum landbúnaðarins.

Ég sé nú, að fundartími er nú á þrotum, enda skal ég ekki halda hér lengri ræðu, en vildi aðeins segja að lokum út af brtt. frá hv. 3. þm. Austf. um bústofnslán, að ég vildi, að athugað væri í því sambandi frv. það til l. um bústofnslánasjóð, sem framsóknarmenn hafa flutt í Ed. Alþingis, þar sem gert er ráð fyrir að koma upp allmyndarlegum bústofnslánasjóði. Fer ég ekki að rekja efni frv. hér, en aðeins fer fram á, að efni þessa frv. verði skoðað og hvort menn gætu ekki fallizt á að taka efni þess að einhverju verulegu leyti a.m.k. upp í þessa löggjöf.