11.02.1964
Neðri deild: 54. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 878 í B-deild Alþingistíðinda. (539)
130. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins
Gísli Guðmundsson:
Þessi aths. skal vera örstutt, herra forseti. Það getur vel verið, að hæstv. ráðh. haft einhverjar afsakanir fyrir því, að hann sagði það, sem hann sagði á fimmtudaginn var, að einhver hafi gert honum gramt í geði í þessu máli með því að nota tölur þær, sem hafðar voru eftir Hermóði Guðmundssyni, á þann hátt, sem ekki er hægt að nota þær. Ég þekki það ekki. Ég vil aðeins mælast til þess við hæstv. ráðh. og skal svo ekki segja fleira um þetta mál, að hann hlutist til um það, að eins og fréttastofa ríkisútvarpsins birti umsögn hans á fimmtudaginn var um, að Hermóður Guðmundsson hafi farið með rangar tölur, eins birti hún nú þær upplýsingar, sem fram hafa komið og sýna það, að Hermóður Guðmundsson fór með réttar tölur.