07.04.1964
Efri deild: 65. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í B-deild Alþingistíðinda. (565)

130. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Hv. 1. þm. Vesturl. beindi sérstaklega til mín nokkrum fyrirspurnum, sem mér er vissulega mjög ljúft að svara.

Það var í fyrsta lagi fyrirspurn um það, hvort ekki mætti fljótlega vænta afgreiðslu á veðdeildarlánaumsóknum, sem borizt hefðu jafnvel fyrir síðustu áramót og nokkur dráttur hefur orðið á afgreiðslu á. Varðandi þetta mál vil ég láta koma fram það atriði til skýringar því, að dráttur hefur orðið á afgreiðslu þessara lánaumsókna, að svo sem hv. þdm. er vafalaust kunnugt, þá var sá háttur á hafður með lausaskuldalán bænda, að veðdeild Búnaðarbankans veitti þessi lán. Þetta voru samtals 65 millj. kr., og fyrsta afborgun af lánum þessum féll í gjalddaga nú s.l. haust. Eigendur skuldabréfanna eiga aftur á móti kröfu á greiðslu 2. jan. Niðurstaðan varð sú, að allmargar millj. kr. voru ógreiddar af þessum árgjöldum bænda um áramót. Og veðdeild bankans varð því að leggja út þetta, sem á skorti, sem munu hafa verið um 3 millj. kr., því að vitanlega tjóaði ekki að neita eða fresta að greiða afborganir af veðdeildarbréfunum, þó að lántakendur hefðu ekki staðið í skilum. Þetta hefur valdið því, að veðdeildin hefur verið mjög fjárþrota, því að það fé, sem henni var séð fyrir á s.l. ári, hafði allt verið lánað út og ekkert að sjálfsögðu lagt til hliðar til þess að mæta áföllum sem þessum. Þetta er fyrst og fremst ástæðan til þess, að nokkur dráttur hefur nú um skeið orðið á veitingu veðdeildarlána. En ég vonast til, að það þurfi ekki að vera lengi sá dráttur. Og þá má geta þess hér, að það hefur verið gert ráð fyrir því, þó að ekki sé niðurstaða fengin í þeim málum enn þá, í sambandi við nauðsynlega fjáröflun til stofnsjóða Búnaðarbankans eða stofnlánadeildarinnar á þessu ári, að deildinni yrði veitt aðstaða til þess að geta, eins og á s.l. ári, veitt veðdeild bankans töluverða fyrirgreiðslu. En án þeirrar fyrirgreiðslu er raunverulega um sáralítið fé að ræða, sem veðdeildin hefur yfir að ráða. Og það má kannske geta þess í því sambandi, það er atriði, sem kemur til nánari athugunar nú við frv., sem liggur hér fyrir Alþingi um skyldusparnað, að veðdeildin hefur orðið fyrir allverulegum áföllum af því, að henni var á sínum tíma falið eða í rauninni má segja gert skylt að ávaxta skyldusparnaðarfé, sem til fellur í sveitum, og þetta fé hefur verið lánað út með venjulegum vaxtakjörum veðdeildarinnar, en hins vegar er hér orðið um stórkostlegan árlegan halla að ræða, sem veðdeildin verður að borga, og mundi sá halli einn út af fyrir sig nægja í æðimörg lán úr veðdeildinni, vegna þess að þess hefur ekki verið gætt, þegar þetta var ákveðið, að vísitölutrygging er á þessu fé og í raun og veru gersamlega útilokað að taka á móti fénu og endurlána það með þeim skilyrðum, sem hér hefur verið gert. Þetta atriði kemur að sjálfsögðu til athugunar, þegar um þetta mál verður rætt hér í þingi. En sem sagt, ég vonast til þess, að það þurfi ekki lengi að bíða eftir afgreiðslu þeirra lána eða lánsumsókna, sem þegar liggja fyrir, en það er auðvitað, eins og hv. fyrirspyrjandi veit mætavel, ekki nýtt mál, að lánsumsóknir úr veðdeild hafi orðið að bíða alllengi, og það því miður stundum árum saman, vegna þess að veðdeildin hefur alltaf verið fjárþrota. En ég tel, að það sé mikil nauðsyn, að svo verði ekki, og það verður áreiðanlega reynt, eftir því sem föng eru á, að leysa úr þeim vanda.

Varðandi annan lið fsp. hans, um afgreiðslu stofnlána, sem ekki voru afgreidd fyrir áramót, þá vil ég taka það fram, að stofnlánin voru afgreidd fyrir áramót með nákvæmlega sama hætti og verið hefur undanfarin ár, þannig að allar umsóknir, sem komnar voru inn fyrir 1. des., voru afgreiddar. Á árinu 1963 var það vel ástatt með fé, að það hafði verið rúmlega áætlað fyrir framkvæmdum, sem þá voru, og það var til nokkurt fé um áramót eftir, þannig að það var hægt að afgreiða þá þegar í jan. og febr. allar þær lánsumsóknir, sem höfðu borizt fyrir 1. des. Hins vegar hefur það jafnan verið svo undanfarin ár, að afgreiðsla lánsumsókna, sem borizt hafa í des. og eftir áramót, hefur dregizt nokkuð fram eftir ári eða verið framkvæmd eftir því, sem innborganir á lánum frá bændum hafa fallið til. Oftast nær hefur átt sér stað töluverð innborgun á slíkum árgjöldum í marz og apríl vegna rukkana, sem þá voru sendar út af hálfu bankans til þeirra, sem eftir eiga að greiða, og eru þá settir úrslitafrestir með greiðslu. En það skal játað, að það hefur verið erfitt um vik nú enn sem komið er að afgreiða umsóknir, sem eftir voru frá því í des., og ekki þá fremur þær, sem hafa komið eftir áramót, vegna þess, eins og hv. þdm. mun einnig vel vera kunnugt, að á s.l. ári urðu allt að því 50% meiri framkvæmdir en áður hefur verið, og ef hefði átt að fullnægja lánsumsóknum eða lánhæfum framkvæmdum algerlega, því sem komið var fyrir áramót, þá hefði það numið nálægt 120 millj. kr. Það voru lánaðar 103 millj. kr. Til samanburðar má geta þess, að árið áður voru lánaðar 70 millj., og var það, þá hæsta útlánaár, sem verið hafði. En það veit ég, að hv. fyrirspyrjandi mun fúslega fallast á, að þessi geysilega aukning útlána, þegar það er haft í huga, að í áætlun fyrir stofnlánadeildina í byrjun ársins hafi verið reiknað með, að útlán yrðu 80 millj., þá gefur það auga leið, að það hefur verið erfitt um vik, enda ekki hægt nema með ýmiss konar bráðabirgðaráðstöfunum og sérstakri aðstoð frá sparisjóðsdeildinni og bráðabirgðaaðstoð frá Seðlabanka að leysa þessar umsóknir, sem komnar voru fyrir 1. des., og lána þessar 103 millj. Þetta auðvitað veldur því, að það verður mjög erfitt um vik. Enda þótt ýmsir af hinum föstu tekjustofnum deildarinnar komi að sjálfsögðu smám saman inn og hafi byrjað strax eftir áramót, þá vil ég ekki lofa því, að þetta geti orðið alveg strax, að þetta leysist. En það er hins vegar fullur vilji bankastjórnarinnar, að þetta dragist ekki, og við gerum okkur fullkomlega ljósa nauðsyn þess, að þetta verði leyst sem skjótast. En þetta eru ástæður, sem ég hygg að hv. þm. muni viðurkenna að séu nokkur rök fyrir því, að erfiðlega hafi gengið að leysa þetta nú strax eftir áramótin.

Varðandi dráttarvélarnar get ég á þessu stigi aðeins sagt, að það er vissulega ætlunin að lána út á þær með sömu reglum og gert var í fyrra. Hvort verður hægt að gera það jafnóðum eins og þá, skal ég ekki heldur nákvæmlega um svara, vegna þess að við vitum ekki, hvað mikið verður hér um að ræða. Í fyrra voru fluttar til landsins, að ég hygg, um 700 dráttarvélar. Að vísu var ekki tekið lán út á þær allar, en dráttarvélalánin ein námu hjá okkur um 13 millj. kr., og ég geri ráð fyrir eða a.m.k. get ég ekki lofað því, að það geti ekki orðið einhverjir erfiðleikar á því, ef um jafnmikinn innflutning verður að ræða nú, að þessi dráttarvélalán geti komið til núna alveg í þessum eða næsta mánuði. Það verður að sjálfsögðu reynt að leysa það, sem föng eru á, og það mun liggja fyrir núna alveg á næstunni, hvaða vandamál er hér um að ræða, vegna þess að við höfum gert ráð fyrir því. Og svo sem hv. þdm. vita, hefur verið auglýst eftir umsóknum um lán, þannig að við munum væntanlega um miðjan þennan mánuð vita, hvaða fyrirætlanir eru uppi hjá bændum varðandi kaup á dráttarvélum. Ef það verður ekki í jafnstórum stíl og í fyrra, auðveldar það auðvitað mjög að leysa þann vanda, og það er fullur skilningur á því, að hér er um vandamál að ræða, sem nauðsynlegt er að leysa sem fyrst, vegna þess að dráttarvélarnar þarf auðvit.að að flytja inn að vorinu.

Ég vonast til, að hv. fyrirspyrjandi telji þetta eftir atvikum fullnægjandi svör.