07.04.1964
Efri deild: 65. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 927 í B-deild Alþingistíðinda. (569)

130. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Frsm. minni hl. (Páll Þorsteinsson):

Ég skil það svo, herra forseti, að ég eigi eftir ræðutíma, en þetta verður örstutt athugasemd. Ég vil ekki fullyrða, hvort orð mín féllu þannig, að ég segði, að málsókn væri hafin í umboði bændasamtakanna eða bændasamtaka. En ég vil hafa það, er sannara reynist og rétt er, og vil fallast á, að greininum sé sleppt, en eftir stendur það, að það er í umboði bændasamtaka, þar sem nokkur búnaðarsambönd standa að því.