16.03.1964
Efri deild: 60. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 929 í B-deild Alþingistíðinda. (578)
156. mál, skemmtanaskattur
Frsm. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Með því frv., sem hér liggur fyrir, er lagt til, að skemmtanaskattur skuli innheimtur með 200% álagi af kvikmyndasýningum og 20% af öðrum skattskyldum skemmtunum, en undanþegnar álaginu eru nánar tilgreindar samkomur, sem um ræðir í niðurlagi 1. gr. frv.
Á undanförnum árum hefur skemmtanaskattsviðaukinn verið framlengdur frá ári til árs. Þetta frv. felur ekki í sér neina breytingu varðandi skattinn sjálfan eða upphæð hans frá því, sem verið hefur, aðra en þá, að með samþykkt þess mundi álagið vera lögfest án tímamarks. Þeir aðilar, sem njóta góðs af skemmtanaskattinum, eru allir þessari tekjuöflun meira og minna háðir. Ég ætla, að um það sé ekki ágreiningur, og ég býst við, að það muni ekki heldur þykja fært að falla frá álaginu eða fella það niður, nema þá jafnframt komi annað í staðinn þeim aðilum til handa, sem álagsins njóta, í tekjum. Hins vegar er það ofur eðlilegt, að ákvæðin gildi án tímamarks eða þar til öðruvísi kann að verða ákveðið í stað þess að framlengja skemmtanaskattsviðaukann frá ári til árs. Með 2. gr. frv. er lagt til, að niður falli orðin: „árin 1957–1963, að báðum árum meðtöldum“, þau orð falli niður úr bráðabirgðaákvæðum laga nr. 57 frá 1957 með breytingu, sem á þeim var gerð seinna, árið 1962, varðandi aðflutningsgjöld af sjónvarpstækjum.
Í þessu bráðabirgðaákvæði laganna frá 1957 ræðir um það, til hvaða aðila skuli renna tekjur þær af aðflutningsgjöldum af útvarpsviðtækjum og sjónvarpstækjum, sem frá greinir í bráðabirgðaákvæðinu. Um þetta ákvæði má að flestu segja það sama og ég áður sagði um skemmtanaskattsviðaukann. Það ákvæði hefur verið framlengt með tímatakmörkunum; en ég ætla, að það megi segja það sama og um skemmtanaskattsviðaukann um þetta ákvæði, að það er eðlilegt, að það gildi án sérstaks tímatakmarks, þangað til öðruvísi kann að verða ákveðið af hv. Alþ.
Menntmn. þessarar hv. d. hefur athugað frv. og leggur einróma til, að það verði samþ.