03.12.1963
Neðri deild: 23. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í B-deild Alþingistíðinda. (59)
80. mál, hækkun á bótum almannatrygginga
Þórarinn Þórarinsson:
Herra forseti. Það hefur verið látið í veðri vaka af þeim, sem standa að þessu frv., að nauðsynlegt væri að hraða því í gegnum þingið, og ég tel það ekki óeðlilegt, ef á að fara að greiða út bætur mjög fljótlega fyrir þetta ár. En mér virtist það samt koma fram í ræðu hv. frsm., að hann hefði ekki sérstakan áhuga á þessu, vegna þess að nú við þessa 2. umr. hélt hann áfram þeim deilum, sem urðu hér við 1. umr. þessa máls og ekki virtist vera ástæða til að fara að rifja upp að þessu sinni, ef mjög hefði legið á því að hraða afgreiðslu málsins. En fyrst hv. frsm. hefur valið þessa aðferð, þá vona ég, að mér verði ekki láð það, þótt ég gerist hér kannske eitthvað langorðari en ég ella mundi hafa orðið.
Ég vildi svo, áður en ég vík að ræðu hv. frsm., lýsa skrifl. brtt., sem ég leyfi mér að leggja fram til forseta. Efni hennar er, að í staðinn fyrir það, þar sem talað er um 15% hækkun í frv., komi 25% hækkun. Ég vil láta það álit uppi, að ég hefði talið eðlilegt, eins og ég lýsti við 1. umr. þessa máls, að þessi hækkun yrði meiri, en það kom fram við 1. umr., að það var algerlega útilokað, að hæstv. ríkisstj, mundi fallast á að veita lífeyrisþegum að þessu sinni sömu hækkun og opinberir starfsmenn hafa fengið, og þess vegna fannst mér hyggilegt, fyrst auðséð var, að það fengist ekki fram, að reyna hér nokkra millileið. Ég held, að með því að vísa til þess, sem orðið hefur á þessu sumri í efnahagsmálunum, sé mjög auðvelt að rökstyðja það, að hér er farið fram á mjög takmarkaða hækkun, þar sem lagt er til, að þetta verði hækkað um 25%. Á þeim tíma, síðan almannatryggingalögin voru afgreidd frá seinasta Alþingi, í aprílmánuði s.l., hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um 16 stig, eða það lætur nærri, að dýrtíðin hafi á þeim tíma samkv. henni aukizt um 12%.
Nú virðist ekki fjarri lagi að áætla, að ellilífeyririnn sé 40% af eðlilegum framfærslukostnaði og það lágum framfærslukostnaði einstaklings, og ef maður reiknaði fullar bætur, 12% á allan framfærslukostnaðinn, þyrfti ellilífeyrir, sem er 40%, að hækka um 30%, svo að hér er meira að segja ekki gert ráð fyrir því með þessari hógværu till., að lífeyrisþegar fái alla þá dýrtíðaraukningu bætta, sem hefur átt sér stað síðan í apríl í vor, þegar almannatryggingalögin voru sett, en lengra var ekki talið vogandi að ganga, í trausti þess, að hæstv. ríkisstj. og hennar flokkar fengjust þó til að veita nokkru meiri bætur en gert er ráð fyrir í þessu frv. Að sjálfsögðu er svo ætlazt til þess, að ef hækkanir verða á almennu kaupgjaldi hér frá, komi það fram til hækkunar hjá lífeyrisþegum, þó að síðar verði. Ég sé svo ekki ástæðu til þess að sinni að mæla frekar fyrir þessari till., en afhendi hana herra forseta.
Ég ætla þá að víkja nokkrum orðum að því, sem kom fram í ræðu frsm., þegar hann var að halda langan lestur um það, sem hæstv. núv. ríkisstj. hefði áorkað í tryggingamálunum, og færa henni það helzt til gildis. Það voru tvö atriði, sem hv. frsm. nefndi sérstaklega. Annað var afnám skerðingarákvæðanna, hitt var það, að landið hefði verið gert að einu verðlagssvæði. En er það nú rétt af hv. frsm. að þakka núv. ríkisstj. afnám skerðingarákvæðanna? Ég veit ekki betur en það sé allt önnur ríkisstj., sem hefur komið fram ákvæðinu um afnám skerðingarákvæðanna. Ég veit ekki betur en það standi skýrum orðum í almannatryggingalögunum frá 1956, að skerðingarákvæðin skuli niður falla í árslok 1960, og það hafi verið samkv. þeim lögum, sem skerðingarákvæðin féllu niður, en ekki vegna atbeina hæstv. núv. ríkisstj. Það var samþ. á þinginu 1955, þegar almannatryggingalögin frá 1956 voru til umr., að skerðingarákvæðin skyldu ganga úr gildi í árslok 1960, eins og þau líka gerðu. Hæstv. ríkisstj. gerði þess vegna ekkert annað í þessum efnum en framfylgja því, sem önnur ríkisstj. var búin að koma fram, og ég tel, að hún eigi ekki neinar sérstakar þakkir skildar fyrir það. Þetta var ákveðið í almannatryggingalögunum frá 1956, sem voru sett undir forustu Steingríms Steinþórssonar, sem þá var félmrh., og það er þess vegna honum að þakka, en ekki núv. hæstv. ríkisstj., að skerðingarákvæðin eru fallin niður.
Hv. frsm. gerði sér mjög tíðrætt um þá breytingu, að landið hafi verið gert að einu verðlagssvæði, sem var mjög merkilegt mál. Mér finnst, að ég hafi nú sérstaka ástæðu til þess að rifja það mál nokkuð upp, því að það var einmitt í sambandi við það mál, sem ég hlaut þá nafngift í stjórnarblöðunum að vera kallaður 11. þm. kommúnista. Þess vegna finnst mér nokkur ástæða til þess að rekja nokkru nánar aðdraganda þess, fyrst á þetta efni er minnzt.
Í sambandi við löggjöf, sem ríkisstj. setti, þegar hún kom fram viðreisninni svokölluðu á Alþ. í marz 1960, gerði hún nokkra breytingu á almannatryggingalöggjöfinni. í sambandi við það frv. lagði Hannibal Valdimarsson, hv. 5. þm. Vestf., fram þá till. við 2. umr. málsins í þessari hv. d., að landið skyldi gert að einu verðlagssvæði, og þessi till. kom til atkv. hér í þinginu 24. marz 1960. 24. marz 1960 kom til atkv. till. hér í þinginu um að gera landið að einu verðlagssvæði, og hefði ekki mátt ætla, að samkv. þeim mikla áhuga, sem stjórnarsinnar þykjast nú hafa fyrir þessu máli, hefðu þeir staðið sem einn veggur að því að koma þessari breytingu fram, fyrir ekki meira en tæpum þremur árum, 24. marz 1960? En Alþingistíðindin sýna annað. Þau sýna það, að þessir hv. þm. hafa þann 24. marz 1960 greitt atkv. gegn því, að landið yrði eitt verðlagssvæði, og greitt þar atkv. með því, að verðlagsskiptingunni yrði haldið áfram. Og nú les ég nöfn þessara hv. þm., eins og þau eru birt í þingtíðindum, samkv. þeirri röð, sem þar er, og þeir hv. þm., sem þá greiddu atkv. gegn því 24. marz 1960, að landið væri gert að einu verðlagssvæði, eru þessir: Benedikt Gröndal, Birgir Finnsson, Birgir Kjaran, Geir Hallgrímsson, Einar Ingimundarson, Emil Jónsson, Sigurður Bjarnason, Guðlaugur Gíslason, Unnar Stefánsson, Gunnar Gíslason, Gylfi Þ. Gíslason, Ingólfur Jónsson, Einar Sigurðsson, Jónas G. Rafnar, Matthías A. Mathiesen, Ólafur Thors, Pétur Sigurðsson, Ragnhildur Helgadóttir, Sigurður Ágústsson, Sigurður Ingimundarson, Alfreð Gíslason bæjarfógeti og Jóhann Hafstein. Sem sagt, allir stjórnarþm., sem þá áttu sæti í Nd., 24. marz 1960, greiða atkv. gegn því, að landið verði gert að einu verðlagssvæði. Meiri var ekki áhuginn þá fyrir þessu máli heldur en þetta, að með sínu atkv. studdu þeir allir að því, að þetta mál yrði fellt, og það var fyrst, þegar seinustu alþingiskosningar fóru að nálgast, á þinginu 1962, sem þeir tóku þetta upp og létu það ná fram að ganga. En 2 árum þar áður voru þeir ekki lengra komnir í þessum efnum en að þeir fylktu sér um að fella þessa breytingu. Og þegar þessi forsaga hv. stjórnarþm. er athuguð, finnst mér, að þeir geti ekki sýnt neitt sérstakt stærilæti yfir því, að þeir hafi verið baráttumenn fyrir að fella skiptingu landsins í verðlagssvæði úr lögum, þar sem þeir fyrir tæpum þremur árum allir saman hér í Nd. greiða atkv. með því, að landið verði áfram tvö verðlagssvæði.
En það var meira, sem gerðist í sambandi við þetta mál, sem rétt er að vekja athygli á. Það gerðist nefnilega, að ég ásamt 3 framsóknarmönnum öðrum greiddi atkv. með þessari till. Hannibals Valdimarssonar, hv. 5. þm. Vestf., og ég greiddi einnig atkv. með nokkrum fleiri till., sem hann flutti við þetta tækifæri. Hvernig var nú þakklætið, sem ég fékk fyrir þetta í stjórnarblöðunum, að hafa stutt þetta mikla áhugamál, sem stjórnin talar nú um að hafi verið henni fyrr og síðar? Það var þannig, að eftir þetta hlaut ég nafngiftina í stjórnarblöðunum að vera kallaður 11. þm. kommúnista. Það var sem sagt hreint álit stjórnarblaðanna á þeim tíma, að það væri hreint og beint kommúnistískt ódæði að láta sér detta í hug að gera landið að einu verðlagssvæði og sjálfsagt að stimpla þá, sem létu sér detta þá ósvinnu í hug, hreina og beina kommúnista. Fyrir þetta mál var það á sínum tíma, sem ég fékk nafnið 11. þm. kommúnista. Og svo koma þessir menn fram og halda um það langar ræður, að þeir hafi verið miklir áhugamenn og baráttumenn fyrir því að gera landið að einu verðlagssvæði, — menn, sem fyrir þremur árum stimpluðu þetta hálfgert eða algert kommúnistískt ódæði. Ég held, að þegar þessi saga er rakin, þá geti hv. stjórnarsinnar ekki verið neitt hreyknir af sinni framkomu í þessum efnum.
Ég vík þá örlítið að því, sem um var deilt hér við 1. umr. og það var það, hvað hefði gerzt í þessum málum í vinstri stjórninni. Því var haldið þá fram af hæstv. félmrh. að Alþfl-menn hefðu á sínum tíma lagt fram ákveðnar till. í vinstri stjórninni um endurbætur í tryggingamálum. Alþýðublaðið sjálft hefur orðið til þess að fletta ofan af því, hvernig þessu var háttað. Þessu var þannig háttað, eftir því sem Alþýðublaðið segir frá og líka stendur í þingtíðindunum: Ráðh. Alþfl. lögðu til, að það yrði athugað að gera breytingar á almannatryggingalögunum. Og það var líka strax fallist á að gera þessa athugun, því að eins og hv. frsm. skýrði frá áðan, var í þeirri ríkisstj. skipuð sérstök nefnd til athugunar á þessum málum, og þar með var gert það, sem Alþfl. fór fram á, athugun um endurbætur á tryggingalöggjöfinni. Það var strax fallizt á þetta og skipuð nefnd til þess að láta þessa athugun fara fram. En eins og skýrt kemur fram í því, sem Alþýðublaðið hefur um þetta birt innan gæsalappa, var eingöngu talað um að láta fara fram athugun, en ekki gerðar neinar beinar efnistillögur.
Þá var hv. frsm. að víkja að því, sem ég hefði sagt, þegar þetta mál var seinast rætt hér í d., um samanburð á ellilífeyri og dvalarkostnaði á elliheimilinu Grund. Ég nefndi dvalarkostnað á elliheimilinu Grund fyrst og fremst til þess að sýna þær breytingar á framfærslukostnaði, sem orðið hefðu á þessum tíma, því að ég tel, að dvalarkostnaður á elliheimilum sýni miklu réttari mynd af þessu en jafnvel framfærsluvísitalan, vegna þess að framfærsluvísitalan er miðuð við fjölskyldu, sem hefur að ýmsu leyti aðrar þarfir en gamla fólkið. Og gamla fólkið notar nokkuð aðrar vörur t.d. heldur en fjölskyldufólk, — fólk, sem hefur börn, og það vill nú þannig til, að einmitt þær vörur, sem eldra fólkið notar alveg sérstaklega, hafa hækkað langsamlega mest, því að ef við flettum upp í framfærsluvísitölunni, þá sjáum við t.d., að mjög margar matvörur og einmitt þær matvörur, sem mest er keypt af, hafa hækkað síðan í marz 1959 um 88 stig og jafnvel meira. En sá útreikningur, sem ég birti hér á síðasta fundi, þegar þetta mál var rætt, um dvalarkostnað á elliheimilinu Grund, með hliðsjón af elliheimilunum, lítur þannig út, og ég vil taka það fram, að þær upplýsingar, sem ég er hér með um dvalarkostnað á elliheimilinu Grund, eru komnar frá heimilinu sjálfu. Árið 1958 nam ellilífeyririnn hjá einstaklingi á fyrsta verðlagssvæði 9955 kr., en þá var dvalarkostnaðurinn á almennu deildinni á elliheimilinu Grund til jafnaðar á því ári 21900 kr., eða m.ö.o., að á þessum tíma nam ellilífeyririnn 45% af dvalarkostnaðinum. Í ár lítur þetta þannig út, og ég skal taka það fram, að það er miðað við þann ellilífeyri, sem greiddur er nú, en ekki það, sem verður, eftir að þetta frv. er komið í gegn, því að það er fyrst og fremst miðað við daginn í dag, þá er ellilífeyririnn 18240 kr., en dvalarkostnaðurinn á almennu deildinni á Grund er 46800 kr., eða m.ö.o., ellilífeyririnn nú er ekki nema 39% af dvalarkostnaðinum. Það má vel vera, að þetta geti verið eitthvað breytilegt, en ég hygg, að þessar tölur gefi nokkra hugmynd um þá aukningu, bæði á ellilífeyrinum annars vegar og dvalarkostnaðinum hins vegar, sem orðið hefur í landinu á þessum tíma.
Hitt er að sjálfsögðu rétt og það skal fúslega viðurkennt, að hjá þeim sem búa á þeim svæðum, sem áður tilheyrðu 2. verðlagssvæði, lítur þetta nokkuð öðruvísi út. Þar hefur ellilífeyririnn hækkað tiltölulega meira miðað við dvalarkostnaðinn heldur en hér í Reykjavík, en að sjálfsögðu miða ég í framsöguræðu minni vitanlega fyrst og fremst við það kjördæmi, sem ég er fulltrúi fyrir hér á Alþingi.
Eins og ég hef áður rakið, er það ekki hæstv. ríkisstj. að þakka, að þetta ákvæði, að gera landið að einu verðlagssvæði, er komið til framkvæmda, þar sem hún eða hennar flokkar fyrir tæpum 3 árum greiddu atkv. gegn því hér á Alþingi, heldur var það fyrst og fremst barátta stjórnarandstæðinga, sem áorkaði því, að þetta mál næði fram að ganga.
Það væri mikil ástæða til þess að ræða nokkru nánar um þessi mál, en vegna þess að ég hygg, að það sé rétt hjá hæstv. ríkisstj., að það sé nauðsyn á, að þetta mál komist sem fyrst í gegnum þingið, þá vil ég ekki eyða meiri tíma að sinni, enda mun sennilega gefast síðar tækifæri til að ræða nánar um þessi atriði.