06.04.1964
Neðri deild: 74. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 979 í B-deild Alþingistíðinda. (689)
33. mál, skipulagslög
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Þegar mál þetta var hér síðast til umræðu, minntist hv. 3. þm. Reykv. (EOI) á, að í það frv., sem hér liggur nú fyrir um skipulagsl., vantaði sum þau mikilvægustu ákvæði, sem hafa verið í hliðstæðum frv., sem hér hafa verið lögð fram áður til nýrra skipulagslaga. Og hann sagðist mundu flytja hér till. til breytinga á þessu frv. einmitt í þá átt að taka meira tillit til till., sem áður hefðu komið fram. Einar hafði flutt brtt. við frv., áður en hann fór af þingi, en enn þá er ekki búið að útbýta hér á Alþ, þeim brtt., sem hann hafði lagt fram, en ég vænti, að mér leyfist, með leyfi hæstv. forseta, að gera hér grein fyrir þessum brtt. Einars, en þeim mun væntanlega verða útbýtt hér síðar á fundinum.
Þessar till. eru um það, að tekinn verði upp í þetta frv. nýr kafli, sem heiti „Um skipulagssjóði“. Þar er um að ræða 5 nýjar frvgr., sem allar fjalla um þetta atriði. Þessar gr. eru nákvæmlega samhljóða till., sem fram komu í frv., sem lagt var hér fyrir Alþ. um ný skipulagslög árið 1948, en það frv. hafði þá verið samið af mþn., sem hafði starfað alllengi að undirbúningi þessa máls. Og í grg. með frv., sem þá var lagt fram, var á það bent af hálfu þeirrar n., sem það frv. samdi, að hún teldi einmitt, að mikilvægasta ákvæði þess frv. væri einmitt fólgið í þessum till. um skipulagssjóði. En meginatriðið er það að heimila í l. hreppsfélögum og bæjarfélögum að koma upp sérstökum skipulagssjóðum, sem hafi tiltekna tekjustofna, til þess að auðvelda framkvæmd á öllum skipulagsmálum í hinum einstöku umdæmum. En eins og allir þekkja, er einmitt eitt mesta vandamálið við framkvæmd á skipulagi í kaupstöðum og kauptúnum sá fjárhagslegi vandi, sem því fylgir að ætla. að framkvæma þær skipulagstill., sem annars hafa verið ráðgerðar, því að það vill oft og tíðum fara svo, að slíkt er æði kostnaðarsamt, að fara eftir hinu ráðgerða skipulagi.
Brtt. þessar, sem hér er um að ræða, en ég ætla að leyfa mér að lesa þær og gera þá stutta grein fyrir þeim um leið, en þessar brtt. eru á þessa leið, að á eftir 30. gr. komi nýjar gr., er verði VIII. kafli, undir fyrirsögninni „Um skipulagssjóði“, og þær séu svo hljóðandi:
Í fyrsta lagi: Til fjáröflunar í því skyni að greiða kaupverð fasteigna, sem sveitarstjórn kaupir til þess að skipulagsbreytingu verði komið í framkvæmd, þar á meðal til greiðslu bóta fyrir eignarnám, er sveitarstjórn heimilt að gera samþykkt um stofnun skipulagssjóðs fyrir bæjar- eða hreppsfélagið.
Og önnur gr.: Nú er samþykkt um stofnun skipulagssjóðs gerð af bæjarstjórn eða hreppsnefnd, og skal þá samþykktin send félmrn. til staðfestingar. Virðist ráðh. einhver ákvæði samþykktarinnar fara í bága við lög eða vera gagnstæð lögvörðum réttindum manna, endursendir hann samþykktina án staðfestingar og tilkynnir sveitarstjórn ástæður þess, að hann vilji ekki staðfesta hana. Að öðrum kosti staðfestir hann samþykktina, skipar fyrir um birtingu hennar og tiltekur, hvenær hún öðlist gildi. Samþykkt, er ráðh. hefur staðfest, verður aðeins breytt með sama hætti og hún var sett.
Og þriðja nýja gr., sem lagt er til að tekin verði upp, er þannig: Í samþykkt um skipulagssjóð er heimilt að kveða svo á, að sjóðnum skuli aflað tekna með árlegu gjaldi af öllum fasteignum í umdæminu, öðrum en fasteignum annarra ríkja, sem notaðar eru í utanríkisþjónustu þeirra. Upphæð gjaldsins má vera jafnhá fasteignaskatti samkv. II. kafla l. nr. 69 28. apríl 1962 og skal ákveðin í samþykktinni til 5 ára í senn. — Gjalddagi skal og ákveðinn í samþykkt. — Gjaldið er lögtakskræft án undangengins dóms eða sáttar, og fylgir því lögveð í hinni gjaldskyldu eign, á sama hátt og lögveð er fyrir fasteignagjöldum samkv. greindum 1., nr. 69 1962.
Og fjórða nýja gr., sem lagt er til að taka upp, er þannig: Hafi sveitarfélag vegna fyrirhugaðs skipulags keypt fasteign eða látið taka eignarnámi og fasteign þessi síðan seld að nokkru eða öllu leyti, skal hagnaður sá, sem verður af þeirri sölu, renna í skipulagssjóð. Sama gildir um leigutekjur, sem sveitarfélagið kann að hafa af fasteignum, sem það hefur eignazt með þessum hætti. — Enn fremur má ákveða í samþykkt, að tekjur af sölu eða leigu fasteigna, sem sveitarfélagið hefur eignazt með öðrum hætti, skuli renna að meira eða minna leyti í skipulagssjóðinn.
Og fimmta greinin: Við fasteignamat skal meta sérstaklega fyrir hverja fasteign þá verðhækkun, sem á henni er orðin frá síðasta fasteignamati og telja má að stafi af skipulagsbreytingu, hvort sem sú skipulagsbreyting er þegar komin til framkvæmda eða er aðeins ráðgerð á staðfestum skipulagsuppdrætti.— Þegar skipulagsuppdráttur er lagður fram, getur sveitarstjórn látið fram fara sams konar mat, er komi í stað mats samkv. 1. mgr., þar sem kveðið sé á um verðhækkun einstakra fasteigna við fyrirhugaðar skipulagsbreytingar samkv. uppdrættinum. — Slíkt mat skal gert af þriggja manna matsnefnd: einum manni tilnefndum af sveitarstjórn, öðrum af ráðh. sveitarstjórnarmála, en hinum þriðja af hæstarétti, og er hann formaður matsnefndarinnar. Kostnaður við þetta mat greiðist úr sveitarsjóði eða skipulagssjóði, eftir ákvörðun sveitarstjórnar. — Af verðhækkun, sem metin verður samkv. 1. og 2. mgr., skal eiganda fasteignarinnar skylt að greiða allt að 100% í skipulagssjóð, eftir því sem nánar verður ákveðið í samþykkt. — Um gjalddaga á verðhækkunarskatti þessum skal setja ákvæði í samþykkt, og er heimilt að kveða á um gjaldfrest, gegn greiðslu vaxta, og annað varðandi innheimtuna. — Sveitarstjórn getur tilkynnt fjárhæð skattsins til innritunar í veðmálabækur og öðlast þá lögveð í hinni skattlögðu eign, er gangi fyrir öllum síðari veðböndum.
Undanþegnar verðhækkunarskatti samkv. þessari gr. eru einungis fasteignir annarra ríkja, sem notaðar eru í utanríkisþjónustu þeirra. Nú eru gerðar breytingar á fram lögðum og staðfestum skipulagsuppdætti, og skal þá metið á ný, hvort verðhækkunarskattur breytist. Slíkt endurmat skal gert af sömu aðilum sem mátu verðhækkunina samkv. 1. eða 2. mgr.
Ég hef þá lesið upp þær brtt., sem Einar Olgeirsson gerir ráð fyrir að gerðar verði á því frv. til skipulagslaga, sem hér liggur nú fyrir. En eins og ég sagði í upphafi máls míns, er aðalefni þessara brtt. að gefa bæjar- og sveitarfélögum rétt til þess að mega koma upp sérstökum skipulagssjóði á þann hátt, að fasteignir í viðkomandi umdæmi verði skattlagðar með álíka háum skatti og fasteignaskatturinn er nú, enn fremur, að leggja megi sérstakan verðhækkunarskatt á þær fasteignir, sem að mati sérstakrar matsnefndar hafa sannanlega hækkað í verði af völdum skipulagsmála vegna ákvæða skipulagsins. Á þennan hátt er hægt að afla nokkurs fjár til þess að standa síðan undir framkvæmdum í skipulagsmálum.
Eins og nú er háttað, er mjög erfitt fyrir bæjar- og sveitarfélög að fylgja eftir á eðlilegan hátt þeim skipulagsuppdráttum, sem annars hafa verið samþykktir eða staðfestir, og reynslan er sú, að ýmist er verið að víkja meira og minna frá gerðu skipulagi af kostnaðarástæðum eða látið er biða á alveg óhæfilegan hátt að ráðast í skipulagsframkvæmdir vegna þess, að viðkomandi bæjar- eða sveitarfélag treystir sér ekki af fjárhagsástæðum til þess að ráðast í framkvæmd skipulagsins. Auk þess er svo það, að það nær vitanlega engri átt, að verðhækkanir, sem verða á fasteignum beinlínis af völdum skipulagsframkvæmda bæjar- og sveitarfélaga, eigi að falla í hendur þeim, sem eiga þessar eignir. Miklu eðlilegra er vitanlega, að bein verðhækkun þessara eigna, sem stafar af skipulagslegum ráðstöfunum, gangi einmitt í svona skipulagssjóð, eða að verulegu leyti gangi þessi verðhækkun á eigninni sem tekjustofn til skipulagssjóðs, til þess síðan að auðvelda framkvæmd skipulagsmála.
Eins og ég sagði áður, hafa þessar till. komið hér fram áður, verið lagðar fram í stjórnarfrv. samkv. till. n., sem hafði unnið að endurskoðun þessara mála, og ég minnist þess sérstaklega, að í þeirri nefnd voru Jónas Guðmundsson, sem lengi hefur haft með sveitarstjórnarmál að gera, og enn fremur borgarritarinn í Reykjavík, og einhverjir voru það fleiri í nefndinni, sem ég man nú ekki upp að telja. En þetta voru till. þeirra, og það hefur komið hér fram í umr. á Alþ. oft áður, að ýmsir fleiri eru á þeirri skoðun, að það sé í rauninni heldur lítið gagn að skipulagslögum svipuðum þeim, sem hér liggja nú fyrir í frv.-formi, ef einhver slík ákvæði sem þessi varðandi fjárhagshliðina á framkvæmd málanna fást ekki þar samþ. með.
Ég hef gert grein hér í stuttu máli fyrir þessum brtt. Einars Olgeirssonar, sem væntanlega verður útbýtt síðar á þessum fundi, og ég vænti, að málið verði ekki tekið hér til atkvgr., fyrr en þessar till. liggja fyrir í þskj. hjá hv. þm.