17.04.1964
Efri deild: 70. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1003 í B-deild Alþingistíðinda. (713)
210. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Þetta frv. til i. um breyt. á 1. um tekjuskatt og eignarskatt felur í sér tvær meginbreytingar. Önnur er sú að lækka tekjuskattinn á öllum þorra manna, og í öðru lagi að gera ráðstafanir til þess, að framtöl manna verði betri og að draga úr undandrætti undan skatti. Auk þessara tveggja aðalatriða eru nokkrar fleiri breytingar, og skal ég gera grein fyrir efni frv. með því að fara að nokkru yfir hverja gr. þess fyrir sig.
1. gr. fjallar um skattskyldu barna, og eru þar gerð skýrari ákvæði en eru í gildandi lögum um það, hvernig skuli telja tekjur barna, hvenær þau geti sjálf verið sjálfstæðir skattþegnar og hvenær skuli telja tekjur þeirra með tekjum foreldra. Það er ákveðið svo í gildandi lögum, að ef tekjur barns nema meira en 10 þús. kr. á ári, sé heimilt að telja þau sjálfstæðan skattþegn. Þetta mark er í samræmi við aðrar breytingar frv: um hækkun persónufrádráttar hækkað upp í 13 þús. kr. Þá er ákveðið, að innstæður barna í bönkum, sparisjóðum og innlánsdeildum, svo og vextir af þeim, verði skattfrjálsar án tillits til skulda foreldra. Nú er svo ákveðið í gildandi skattalögum, 21. gr., að undanþegnar framtalsskyldu og eignarskatti séu innstæður í bönkum, sparisjóðum og löglegum innlánsdeildum félaga, svo sem hér segir:
a. Innstæður skattgreiðanda, sem ekkert skuldar.
b. Innstæður skattgreiðanda, er ekki skuldar meira en 200 þús. kr. samtals, enda séu þær skuldir fasteignaveðslán.
c. Sá hluti innstæðu hjá öllum skattgreiðendum, sem er umfram skuldir.
Og undanþegnir framtalsskyldu og tekjuskatti eru allir vextir af eignarskattsfrjálsum innstæðum samkv. þessum ákvæðum.
Með ákvæði 1: gr. frv. er sem sagt lagt til, að innstæður barna verði jafnan skattfrjálsar án tillits til þess, hvað foreldri kann að skulda.
Að öðru leyti eru nokkrar breytingar í 1. gr., þ.e.a.s. 4. gr. gildandi laga, einkum til að gera ákvæðin skýrari og staðfesta framkvæmdavenju.
Í 2. gr. frv. er nýmæli. Fjmrh, er heimilt að ákveða fyrir eitt ár í senn, að vinningur í tilteknum happdrættum teljist ekki til skattskyldra tekna, enda sé öllum ágóðanum af happdrættunum varið til menningarmála, mannúðarmála eða kirkjulegrar starfsemi. Fyrir Alþingi liggur nú erindi frá Öryrkjabandalagi Íslands, stílað til heilbr.- og félmn. Nd., þar sem hún er beðin að flytja frv. um skattfrelsi vinninga í happdrættum 6 öryrkjafélaga á árinu 1964. Eins og hv. þm. er kunnugt, hafa á undanförnum árum margsinnis verið samþykkt lög um slíkt skattfrelsi, þegar líknarog menningarfélög hafa átt í hlut, og til eins árs í senn. Í grg. þessa frv. er birt skrá yfir slík lög á undanförnum árum. Í stað þess að þurfa á hverju þingi að samþykkja sérstök lög um fleiri eða færri félög, sem vilja halda happdrætti til ágóða fyrir starfsemi sína, þykir réttara og handhægara að setja slíka almenna heimild inn í tekjuskattslögin.
Í 3. gr. er ákveðið og lagt til að hækka frádrátt vegna heimilisstofnunar úr 20 þús. upp í 26 þús. kr., en í 13: gr. l. segir: Frá tekjum skal draga, áður en skattur er á þær lagður: A. Kostnað við stofnun heimilis. Skal hann dreginn frá tekjum hjóna á því ári, sem þau ganga í hjúskap, og skal sá frádráttur nema 20 þús. kr.“ Hér er lagt til að hækka hann upp í 26 þús. kr.
4. gr. frv. er um breytingu á 16: gr., og er aðalefni hennar það að hækka hinar skattfrjálsu tekjur manna eða persónufrádrátt, hvort orðalagið sem maður vill nota. Árið 1960 var gerð gerbreyting á tekjuskattslögum og þá ákveðið, að hver einstaklingur skyldi hafa skattfrjálsar 50 þús. af tekjum sínum, hjón 70 þús. kr. og fyrir hvert barn, sem er á framfæri skattþegns og ekki fullra 16 ára, 10 þús. kr. Með þessu frv. er lagt til að hækka þennan frádrátt verulega eða hjá einstaklingum eða einhleypingum um 15 þús. upp í 65 þús. kr., hjá hjónum um 21 þús. upp í 91 þús. kr. og fyrir hvert barn um 3 þús. upp í 13 þús. kr.
5. gr. frv. er endurskoðun á tekjuskattsstiganum, en í gildandi lögum eru gjaldþrepin sex, þ.e.a.s. 5%, 10%, 15, 20, 25 og 30%. Hér er lagt til, að þeim sé fækkað í þrjú, þ.e.a.s. 10, 20 og 30%. Enn frekari samdráttur er gerður í útsvarslögunum eða frv. því, sem hér liggur fyrir um tekjustofna, þ.e.a.s. að fækka þeim þrepum úr 8 niður 2.
Í 6. gr. frv. eru veittar nokkru meiri heimildir til handa skattstjóra og ríkisskattstjóra til þess að sannreyna, hvort framtöl séu rétt, en nú eru í lögum. Það er gert ráð fyrir, að í stað 3. mgr. 36. gr. tekjuskattslaganna komi tvær nýjar mgr. Í fyrri mgr. er aðalbreytingin sú, að skattstjóri getur krafizt þess, að framteljendur leggi fram ekki aðeins bókhaldsgögn sín, eins og nú er í lögum, heldur sérstaklega tekið fram um verzlunarbréf og samninga. Í 2. mgr. 6. gr. eru ákvæði, sem ég tel mjög þýðingarmikil í sambandi við eftirlit með framtölum, en þar eru lagðar ríkari skyldur á framtalsskylda aðila heldur en nú er í l. og m.a. veitt heimild til þess að taka skýrslur af þeim. En ekki síður er mikilvæg sú breyting, sem gerð er varðandi þá, sem ekki eru framtalsskyldir, en þeir aðilar eru margir í þessu þjóðfélagi, sem eru lausir undan skattskyldu og framtalsskyldu. Í framkvæmd hefur oft gengið mjög erfiðlega að fá nauðsynlegar upplýsingar frá slíkum aðilum, sem margir hverjir hafa fjölda starfsmanna í sinni þjónustu og reka umfangsmikla starfsemi. Tilgangurinn með þessum ákvæðum í 2. mgr. 6. gr. er m.a. sá, að allar sömu skyldur séu að þessu leyti lagðar á þá aðila, sem ekki eru framtalsskyldir, eins og á hina, til þess að gefa upplýsingar bæði um laun og hlunnindi starfsmanna sinna og aðra þá vitneskju, sem að gagni gæti komið fyrir ríkisskattstjóra eða skattstjórana til að upplýsa og sannreyna, hvort framtöl eru rétt.
Í 7. gr. er sú breyting á gerð, að hafi skattstjóri grun um, að veruleg skattsvik hafi verið framin, skuli hann senda skýrslu um málið til ríkisskattstjóra, sem siðan tekur nánari ákvarðanir um meðferð þess, í stað þess að í gildandi lögum er gert ráð fyrir, að skattstjóri hefji sjálfur rannsókn þegar í stað og tilkynni ríkisskattstjóra jafnframt um rannsóknina. Þar sem ætlunin er að stofna sérstaka rannsóknardeild við embætti ríkisskattstjóra og hafa þar á að skipa vönum og þjálfuðum starfsmönnum, þykir heppilegra að sameina og samræma á einum stað slíkar rannsóknir, þ.e.a.s. hjá ríkisskattstjóra, og í því skyni er þetta ákvæði sett inn í 7. gr. frv.
Í 8. gr. er lagt til, að breyting verði gerð á 38. gr. gildandi laga, en þar segir svo m.a., að hver sá, sem skýrt hefur frá tekjum sínum eða eignum lægri en vera ber og því greitt minni skatt en honum ber skylda til, skal greiða eftir á skattupphæð þá, sem undan var dregin. Þó skal eigi reikna skatt gjaldenda að nýju lengra aftur í tímann en 6 ár. Í 2. mgr. 1. eru hliðstæð ákvæði um þann skattþegn, sem ekki hefur talið fram og tekjur og eignir þess vegna áætlaðar af skattayfirvöldum. En í því tilfelli má ekki reikna skatt gjaldenda að nýju lengra aftur í tímann en 4 ár. Hér er lagt til að breyta þessu ákvæði í 6 ár til samræmis við hið fyrra, því að það sýnast ekki gild rök fyrir því að hafa það skemmri tíma en um hina.
Í 9. og 10. gr. frv. er lagt til að breyta ákvæðum um kærufresti. Nú er kærufrestur til skattstjóra eða umboðsmanns hans 30 dagar í öllum skattumdæmum, nema 15 dagar í Reykjavík. Nú er lagt til, að verði einn og sami kærufrestur um allt land, og lagt til, að hann verði 14 dagar, eins og nú er ákveðið í l. um tekjustofna sveitarfélaga varðandi útsvör. Það er í 51. gr. þeirra laga ákveðinn 2 vikna kærufrestur, og virðist eðlilegast að hafa hér samræmi milli laganna. Í 10. gr. er svo gert ráð fyrir að breyta einnig kærufresti til ríkisskattanefndar. Hann er nú 30 dagar í öllum skattaumdæmum utan Reykjavíkur, þar er hann 15 dagar, og lagt er til, að hann verði hér eftir 21 dagur alls staðar.
Í 11. gr. er svo ákveðið, að ríkisskattstjóri skuli af sjálfsdáðum rannsaka hvert atriði, sem honum þykir tilefni til, ekki aðeins varðandi lögin um tekju- og eignarskatt, heldur einnig um framkvæmd annarra laga um skatta og gjöld, sem álögð eru af skattstjóra, t.d. söluskatt, aðstöðugjald. Það virðist eðlilegast, að við embætti ríkisskattstjóra sé reynt að sameina þessar rannsóknir varðandi hin ýmsu gjöld, og þarf þetta ákvæði að koma í 1., til þess að ríkisskattstjóri hafi heimildir til rannsókna út af þessum gjöldum öðrum en þeim, sem tekju- og eignarskattslögin fjalla um.
Þá segir í 2. mgr., að við embætti ríkisskattstjórans skuli starfa rannsóknardeild, er hafi með höndum rannsóknir samkv. lögum þessum, eftir nánari ákvörðun ríkísskattstjóra. Eins og ég hef tekið fram, er gert ráð fyrir í þessum l. að rýmka töluvert frá gildandi lögum heimildir ríkisskattstjóra til rannsókna, en enn fremur þykir rétt að hafa þar starfandi sérstaka deild, sem hafi eftirlit og rannsóknir með höndum og veiti aðhald með rétt framtöl. Þar er ætlunin að hafa þjálfuðum mönnum til rannsóknarstarfa á að skipa, svo að tryggð verði örugg og samræmd framkvæmd laganna.
Um þetta mál þarf í rauninni ekki mörgum orðum að fara. Öllum landsmönnum er það kunnugt, að verulegur undandráttur á sér stað, hefur vafalaust alltaf átt sér stað nokkur, en mjög mismunandi mikill. Eftir að lagfæringar voru gerðar á skattal. 1960, brá svo við, að framtöl urðu miklu betri en áður og dró stórlega úr skattsvikum. Um það ber saman þeim mönnum, sem gerst þekkja vegna embættis og skyldustarfa, svo sem skattstjórum og starfsmönnum þeirra og löggiltum endurskoðendum. Þeim ber saman um það, að á árunum 1960, 1961 og 1962 hafi orðið hér veruleg bót á, og telja, að meginorsökina sé þar að telja skattalögin frá 1960 og síðan þær umbætur, sem gerðar voru til viðbótar 1962.
Á síðasta ári varð, eins og kunnugt er, mikil breyting í efnahagsmálum þjóðarinnar og tók að nýju að gæta mjög þenslu í atvinnulífinu, stóraukinnar eftirspurnar eftir vinnuafli, en það er kunnugt, í rauninni kunnara en frá þurfi að segja og reynslan sýnir það og sannar, bæði hér á landi og erlendis, að af vaxandi þenslu, of mikilli eða meiri eftirspurn en framboð er á vinnukrafti og verðbólgu leiðir margvíslega spillingu í efnahags- og fjármálalifinu, m.a. í rangari framtölum en áður og meiri tilhneigingu en fyrr til að draga undan skatti. Í rauninni þarf hér margt til að koma, svo að unnt sé að draga verulega úr skattsvikum og efla skattasiðferði í landinu. Ég tel, að rétt sé á þessu stigi að nefna þrennt. Það er í fyrsta lagi að skipuleggja og samræma sem bezt rannsóknir og eftirlit með framtölum. Það er hins vegar engan veginn einhlítt, ef skattalög eru með þeim hætti, að almenningsálitið telur þau ósanngjörn, og er því annað skilyrðið það að hafa skattalög með þeim hætti, að þau teljist viðunandi, sæmilega sanngjörn. Og í þriðja lagi er svo að sjálfsögðu jafnvægi í efnahagslífinu, sem einnig er nauðsynlegt skilyrði, til þess að unnt sé að ná þeim árangri varðandi rétt skattaframtöl, sem æskilegur er.
Í 12. gr. þessa frv. eru nokkrar breytingar gerðar um viðurlög út af vanrækslu skattþegns að telja fram. Nú eru viðurlög samkv. 47. gr. l. þau, að leggja skal 25% ofan á tekjur manna. Segir svo í 47. gr. gildandi laga, með leyfi hæstv. forseta:
„Ef skattþegn telur ekki fram eignir sínar og tekjur eða bætir ekki úr göllum, sem á framtölum eru, þótt hann hafi fengíð áskorun um það frá skattstjóra, skal með fara sem hér segir: Ef áætlun skattstjóra er kærð innan tilskilins frests, má því aðeins lækka hana, að hún sé hærri en raunverulegar tekjur og eignir skattþegns að viðbættum 25%, og má aldrei miða skatta gjaldþegns við lægra skattmat en raunverulegar tekjur hans og eign að viðbættum 25%“ o.s.frv., og eru nokkur ýtarlegri ákvæði um þetta í gr.
Nú er gert ráð fyrir því, að í stað þess að ákveða þannig sama hundraðshluta sem viðurlög í öllum tilvikum, án tillits til eðlis brotsins, er greint hér á milli. Hámarkið er það sama, en viðurlögin lækkuð, þegar um minni háttar vanrækslu er að ræða.
Í 13. gr. er ákvæði um það, að ríkisskattstjóri skuli ákveða skattsektir í stað fjmrh., en það hefur lengi verið í 1., að þegar menn gerast sekir um röng framtöl, þá skuli þeir sekir um allt að því tífalda skattupphæð þá, sem undan var dregin. Fjmrh, ákveður sektina, nema hann eða hinn seki óski, að málinu sé vísað til dómstólanna. Eftir að stofnað var embætti ríkisskattstjóra og það á að hafa með höndum framkvæmd og yfirstjórn á framkvæmd þessara laga, stjórn rannsóknardeildar o.s.frv., þá þykir eðlilegra að fela ríkisskattstjóra að ákveða slíkar sektir, fremur en það verði í höndum fjmrn. En ég vil undirstrika, að að sjálfsögðu getur sá, sem sektaður er, jafnan krafizt þess, að málið gangi til dómstóla.
Í 13. gr. eru tvö önnur nýmæli. Í 3. mgr. eru ákveðin viðurlög þeim til handa, sem af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi gefa skattayfirvöldum rangar eða villandi upplýsingar um atriði, sem varða skattframtöl annarra aðila. Það er öllum vitanlegt, að varðandi undandrátt undan skatti er það nú orðið oft ekki aðeins framteljandi eða skattgreiðandi sjálfur, sem þar er sekur, heldur er einnig annar í vitorði. Ef t.d. maður ræður sig til vinnu með skilmálum um það, að hann fái auk umsamins kaups samkv. kjarasamningum yfirborgun og hún sé ekki talin fram til skatts, og vinnuveitandi fellst á það, þá eru að sjálfsögðu báðir aðilar sekir. Í þessari gr. er sem sagt ákveðin refsing eða viðurlög þeim til handa, sem gefur villandi upplýsingar um skattframtöl annarra aðila en sjálfs sfn. Þá er í 4, mgr. 13. gr. ákveðið, að hver sá, sem í atvinnuskyni aðstoðar við ranga eða villandi skýrslugjöf til skattyfirvalda, skuli sekur um allt að helmingi þeirrar fjárhæðar, er undan skyldi draga með hinni röngu eða villandi skýrslugjöf. Þessu ákvæði er ekki eingöngu stefnt gegn þeim, sem hafa atvinnu af því að aðstoða við framtöl, heldur getur orðið slíkum mönnum mikill stuðningur, því að það er vitanlegt, að á slíka menn er oft sótt mjög hart af skattgreiðanda eða framteljanda að draga undan, og er það þá slíkum starfsmanni stuðningur, að hann geti bent á, að það sé bæði óltiglegt og refsivert, einnig fyrir hann.
Í 14, gr. er svo ákvæði um það; að ríkisskattstjóri skuli skera úr um skyldu þá, sem um er rætt í 50. gr. l. Ef einhver gegnir ekki skyldu sinni að láta af hendi skýrslur þær, sem skylt er, þá sker fjmrh. úr og getur, ef þörf krefur, lagt við dagsektir, unz skyldunni er fullnægt. Til samræmis við þá breytingu, að ríkisskattstjóri í stað fjmrh, ákveði skattsektir, er einnig hér lagt til, að ríkisskattstjóri skeri hér úr um skilaskylduna og hann leggi við dagsektir, ef þörf er á.
Í 15. gr. er svo ákveðið, að l. skuli koma til framkvæmda við álagningu tekju- og eignarskatts fyrir skattárið 1963, og í 16. gr. að fella lögin, þegar þau hafa öðlazt gildi, inn í meginmál l. nr. 76 frá 1962 og gefa út l. um tekjuskatt og eignarskatt svo breytt.
Ég hef þá rakið meginefni og einstök atriði í þessu frv., og eins og áður er fram tekið, má telja, að meginatriðin séu þau tvö að gera ráðstafanir til þess að skerpa eftirlit með framtölum og stofna rannsóknardeild til þess að fara með slík mál og á hinn bóginn að lækka tekjuskattinn á öllum þorra manna. Ef við lítum á það, í hverju lækkunin er fólgin, er rétt að athuga tvennt, annars vegar, hver áhrif þessi lög mundu hafa á tekjur ríkissjóðs, og hins vegar, hver áhrif þau hafa á skattgreiðslu einstakra gjaldenda. Í fjárl, fyrir árið 1964 er gert ráð fyrir, að tekju- og eignarskattur á þessu ári nemi 255 millj. kr. Það er gert ráð fyrir því, ef þetta frv. verður að lögum, að svipuð upphæð komi í ríkissjóðinn, eins og gert ér ráð fyrir í fjárl. Þegar fjárlögin voru samin, var þessi áætlun gerð með hliðsjón af því, að tekjuskattslögin yrðu endurskoðuð á þessu þingi. Ef við lítum hins vegar á, hvað óbreytt skattalög mundu skila í ríkissjóð, er talið, að það mundi verða um 80 millj. kr. meira. M.ö.o.: sú skattabreyting, sem hér er lagt til að gerð verði, minnkar þannig tekjur ríkissjóðs um 80 millj, frá því, sem væri að óbreyttum lögum, eða á hinn bóginn lækkar eða léttir um 80 millj. tekjuskattsbyrðina á borgurum landsins.
Ef við lítum á áhrifin gagnvart einstökum gjaldendum, er skrá um það á blaðsíðu 9–11 í frv., fskj. B, þar sem rakið er, hver tekjuskatturinn yrði eftir gildandi lögum og samkv. þessu frv. á ýmsar tekjur, bæði fyrir einhleypinga, hjón barnlaus og hjón með 1–5 börn. Ég skal aðeins taka hér örfá dæmi úr þessum lista. Einhleypingar með 65 þús. kr. tekjur, nettótekjur, mundu fá 1000 kr. tekjuskatt samkv. gildandi lögum, eftir frv. verður hann enginn. Með 70 þús. kr. tekjur 1500 kr. eftir gildandi lögum, en 500 eftir frv. Með 80 þús. kr. 2500 eftir gildandi lögum, fer niður í 1500. Með 90 þús. 4000 eftir gildandi l., fer niður í 2500. Af 100 þús. mundi tekjuskattur verða 5500 eftir gildandi lögum, en fer niður í 4000. Þegar komið er upp í 140 þús. kr. tekjur, verður tekjuskatturinn á einhleypingi sá sami eftir gildandi lögum og eftir frv., eða 14500 kr., og þannig helzt það áfram, þannig að á 140 þús. kr. hjá einhleypingi er tekjuskatturinn óbreyttur eftir þessu frv., og sama gildir um tekjur þar yfir. Á öllum öðrum lækkar tekjuskatturinn frá því, sem verða mundi eftir gildandi lögum.
Hjón barnlaus með 91 þús. kr. tekjur mundu fá 1600 kr. í tekjuskatt eftir gildandi lögum, en engan eftir frv. Af 100 þús. mundi það vera 2500, lækkar í 900, af 110 þús. 4000, sem fer niður í 1900, af 120 þús. 5500, fer niður í 2900, af 130 þús. 7500, fer niður í 4800. Ef tekin eru t. d, hjón með tvö börn, sem hafa 117 þús. kr. tekjur, þá mundu þau fá í skatt 2200 eftir gildandi lögum, en engan eftir frv. Hjón með 3 börn og 130 þús. mundu fá 2500 kr. eftir gildandi 1., en ekkert eftir frv. Og markíð hjá hjónum með 4 börn ei 143 þús., mundu verða 2900 eftir gildandi 1., en ekkert eftir frv. Og hjá hjónum með 5 börn er markið 156 þús., sem yrðu skattfrjálsar eftir frv., en mundi þurfa að greiða 3400 eftir gildandi lögum.
Það er auðsætt af þeim tölum, sem ég nefndi, og við lestur annarra, sem í grg. eru, að samkv. frv. verður um verulega lækkun á tekjuskatti alls þorra manna að ræða.
Þegar athugaðar eru þær undirtektir, sem þetta frv. hefur fengið hjá hv. stjórnarandstæðingum í málgögnum þeirra, þá er það skemmst frá að segja, að það er ekki aðeins, að þau telja þetta frv. lítils virði, heldur er því beinlínis slegið föstu, að það sé alls ekki um neina lækkun að ræða. Þannig er t.d. fyrirsögn fyrir ritstjórnargrein Þjóðviljans fimmtudaginn 16. apríl: „Engin lækkun.“ Það er sem sagt lýsingin á þessu frv. Ég tel að sjálfsögðu ekki ástæðu til þess að fara að elta ólar við slíkar fjarstæður í blöðum, þó að það séu opinber málgögn stjórnarandstæðinga. En þar sem þau virðast telja, að þetta frv. sé harla lítils virði og þyrfti að ganga miklu lengra í lækkun á tekjuskattinum, þá hef ég aðeins gert samanburð nokkurn á því, hvern tekjuskatt menn þyrftu að greiða, ef nú væru í gildi þau skattalög, sem giltu, þegar vinstri stjórnin svokallaða var hér við völd, eða á árinu 1958, þegar hún lét af störfum, m.ö.o. hvernig dæmið liti út, ef ekki hefðu verið gerðar þær breytingar á skattalögunum, sem gerðar voru 1960, 1962 og lagt er til með þessu frv. Ég skal nefna hér aðeins nokkur dæmi, til þess að hv. þm. geti betur áttað sig á þeirri gerbreytingu, sem orðið hefur nú á síðustu árum í þesstam efnum.
Ef við tökum fyrst einhleyping með 65 þús. kr. tekjur, mundi hann borga eftir skattal. frá 1958 2870 kr. í tekjuskatt, en eftir frv. er það 0. Einhleypingur með 70 þús. kr. tekjur mundi borga 3382 kr. eftir l. frá 1958, en aðeins 500 kr. eftir þessu frv. Ef við lítum á hjón með ýmsar tekjuupphæðir, mundu hjón með 80 þús. kr. tekjur eiga að borga eftir eldri skattal. 2990 kr., en borga ekkert eftir frv. Með 91 þús. kr. tekjur mundu þau borga 4290 eftir gömlu 1., borga ekkert eftir frv. Með 100 þús. kr. tekjur mundu þau borga 5915 kr. eftir gömlu 1., en 900 kr. eftir frv. Ef við lítum á hjón með 1 barn og 100 þús. kr. tekjur, mundu þau borga 4627 eftir gömlu 1., en ekkert eftir frv., með 110 þús. kr. tekjur 6565 kr. eftir gömlu 1., en 600 kr. eftir frv. Ef við lítum á hjón með 2 börn og 117 þús. kr. tekjur, mundu þau borga 6615 kr. eftir gömlu l., ekkert eftir frv. Af 120 þús. kr. tekjum mundu þau borga 7215 kr. eftir gömlu 1., en aðeins 300 kr. eftir frv. Hjón með 3 börn og 100 þús. kr. tekjur mundu borga eftir gömlu l. 2965 kr., en ekkert eftir frv., með 110 þús. kr. tekjur 4102 kr., ekkert eftir frv., með 120 þús. kr. tekjur 5865 kr., ekkert eftir frv., og með 130 þús. kr. tekjur mundu þessi hjón með 3 börn þurfa að borga 7877 kr. eftir gömlu 1., en ekkert eftir frv. Ef þau hefðu 140 þús. kr., mundu þau borga 10377 kr. eftir gömlu 1., en 1000 eftir frv. Og með 150 þús. kr. tekjur mundu þau borga 13140 kr. eftir gamla laginu, en 2000 kr. eftir frv.
Mér finnst í tilefni af þeim undirtektum, sem sézt hafa síðustu daga frá stjórnarandstæðingum, rétt að láta þetta koma fram, því að þeir virðast fullir hneykslunar á því, að stjórnin skuli ekki ganga lengra í því að lækka tekjuskattinn, og er því rétt að draga upp þessa mynd, til þess að menn sjái þá gerbreytingu, sem hefur orðið varðandi tekjuskattinn á þessum árum siðan 1958.
Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.