08.05.1964
Neðri deild: 94. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1068 í B-deild Alþingistíðinda. (738)
210. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. minni hl. (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Eins og fram kom hjá hv. frsm. meiri hl. fjhn., höfum við ekki skilað sameiginlegu nál. um það frv., sem hér er til umr., um breyt. á I. um tekjuskatt og eignarskatt. Við í minni hl. n. erum að vísu samþykkir því, að frv. nái fram að ganga, en við flytjum við það tvær meiri háttar brtt., sem hv. meiri hl. gat ekki fallizt á að standa að með okkur, þess vegna eru nál. tvö. Ég mun leyfa mér í örstuttu máli að gera grein fyrir nál. minni hl., enda þótt
því hafi enn ekki verið útbýtt til hv. alþm. Stafar það ekki af því, að það hafi verið of seint tilbílið frá okkar hendi, heldur munu örðugleikar í prentun og starfsemi Alþ. þessa síðustu daga valda því, að nokkur dráttur er á útbýtingunni. Þær brtt., sem ég mæli hér fyrir, mun ég því afhenda forseta skriflega, og verður leitað fyrir þeim afbrigða, ef með þarf, þ.e.a.s. ef þskj. verður ekki útbýtt, áður en þessari umr. lýkur.
Í skattalögunum 1954 voru ákvæði um það, að umreikna skyldi tekjutölur, skattstiga og persónufrádrátt til samræmis við þær breyt., sem orðið hefðu á kaupgjaldsvísitölu frá árinu 1953. Með þessu ákvæði var þannig raunverulega komið í veg fyrir, að tekjuskattsbyrðin þyngdist af völdum aukinnar dýrtíðar, þannig að tekjuskatturinn var í reynd óbreyttur allan þann tíma, sem þessi lög voru í gildi, eða frá 1954. Arið 1960 beitti svo núv. hæstv. ríkisstj. sér fyrir breyt, á skattalögunum. Það var settur nýr skattstigi, og þessi fyrirmæli um umreikning, sem ég nú hef nefnt, voru felld niður. Þetta hefði út af fyrir sig ekki komið að neinni sök, ef tekizt hefði að standa við það loforð hæstv. ríkisstj. að halda dýrtaðinni í skefjum. Ef dýrtíð hefði ekki vaxið frá því, að þessi skattalög voru upp tekin, þá þyrfti að sjálfsögðu engan umreikning. En það tókst ekki að efna loforð um að halda dýrtíðinni í skefjum, öðru nær. Vöxtur dýrtíðarinnar hefur orðið langtum meiri á undanförnum 4 árum en nokkru sinni fyrr og mun nema u.þ.b. 15% hækkun að meðaltali á ári. Afleiðing þessa kemur suðvitað fram í mörgum myndum. Það, sem hér skiptir máli, er sú afleiðing, að tekjuskatturinn hefur stöðugt verið að þyngjast síðan 1960, vegna þess að skatturinn er stighækkandi og vegna þess að umreikningurinn var felldur niður. Og samkv. því frv., sem hér liggur fyrir, verður skatturinn einnig hærri, eftír að þær lagfæringar eru gerðar, sem þó er þarna talað um, — þá verður hann samt hærri en hann var árið 1960. Þetta vil ég leyfa mér að sanna með örfáum dæmum, sem ég mun nú gera grein fyrir.
Í fyrsta dæmi hugsa ég mér einhleypan mann, sem hafði 75 þús. kr. nettótekjur árið 1963. Ef tekjuskattur þessa manns væri reiknaður eftir lögunum frá 1960 og upp væri tekinn umreikningur samkv. vísitölu framfærslukostnaðar, eins og till. okkar í minni hl. fjhn. gera ráð fyrir, þá mundi upphæð skattsins árið 1964 vera 405 kr., en samkv. frv. verður skatturinn 1000 kr., eða 147 % hærri en ef reiknað væri með þeirri aðferð, sem ég er hér að lýsa.
Í öðru dæmi hugsa. ég mér hjón, sem höfðu 100 þús. kr. nettótekjur árið 1963. Ef tekjuskattur hjónanna væri reiknaður samkv. lögunum frá 1960 með þeirri viðbót, sem okkar till. gerir ráð fyrir, þ, e. umreikningi samkv. vísitölu framfærslukostnaðar, væri skatturinn árið 1964 315 kr. En skv. frv. verður tekjuskatturinn 900 kr. Þarna er hækkun um 186%.
Ef ég hugsa mér svo þriðja dæmið, og það verður það síðasta, sem ég tek til að sýna fram á þetta, þá hugsa ég mér, að það séu hjón, sem eigi 2 börn og hafi haft 130 þús. kr. nettótekjur árið 1963. Ef tekjuskattur þeirra væri reiknaður eftir lögunum frá 1960 með umreikningi samkv. vísitölu framfærslukostnaðar, þá væri upphæð tekjuskattsins 485 kr., en skv. frv. verður skatturinn 1300 kr. Þarna er hækkun sem nemur 169%.
Þannig hafa þessi dæmi, sem ég hygg, að ekki verði hrakin, sýnt, að tekjuskatturinn á þessu ári, 1964, þó að frv, verði að lögum, verður raunverulega hærri en hann var árið 1960. Og ég skal taka það fram, að hér hefur verið reiknað með frekar lágum tekjum, eftir því sem nú gerist. Ef tekin eru dæmi af hærri tekjum, verður munurinn í krónutölu náttúrlega miklu meiri, en verður hlutfallslega eitthvað minni. Ég vil, að þetta komi fram, ég hef reiknað það, enda þótt ég taki ekki það dæmi hér sérstaklega fram. Ef þessi væntanlegu lagaákvæði gilda svo óbreytt fyrir árið 1965, þá þyngist tekjuskatturinn mjög verulega það ár, þar sem vísitala framfærslukostnaðar, kostnaðurinn við það að framfleyta sér og fjölskyldu sinni, sem var að meðaltali 134.66 stig, vísitalan árið 1963, þessi vísitala er nú komin upp í 161 stig og sýnilegt, að áframhald verður á þeirri þróun, sem að undanförnu hefur átt sér stað, að vísitalan hækkar. Þess vegna er það, að við í minni hl. fjhn. teljum rétt, að tekjuskatturinn verði núna lækkaður, þannig að hann verði ekki þyngri en hann var ákveðinn með skattalagabreyt., sem gerð var árið 1960. Þetta teljum við vera réttlætismál og þeim mun meira réttlætismál, þegar það er haft í huga, að árið 1960 var tekjuskattur nokkuð lækkaður vegna þess, hversu óbeinir skattar voru þá stórlega hækkaðir og hafa síðan stórlega hækkað.
Það er því alveg augljós réttlætiskrafa, að ekki verði gert hvort tveggja, að halda áfram að hækka óbeinu skattana, svo sem gert hefur verið og ekki er neitt lát á, — síðast í febrúarmánuði s.l. voru lagðar á 400 millj. kr. í nýjum óbeinum sköttum, — að ekki sé jafnhliða þessu haldið áfram að þyngja skattabyrðina eftir leið hinna beinu skatta. Þess vegna er það till. okkar í minni hl., að umreikningur sá, sem ég hef hér leyft mér að gera grein fyrir, verði nú tekinn upp og að skattarnir verði færðir til samræmis við það, sem þeir voru á árinu 1960. Þetta verður auðveldast að gera á þann hátt, sem ég skal nú gera grein fyrir: annars vegar að taka upp aftur umreikning bæði á tekjutölum skattstiga og persónufrádrætti til samræmis við vísitölubreytingar síðan 1959 og hins vegar að fella 5. gr. þess frv., sem hér liggur fyrir til umr., þar sem í henni eru ráðgerðar breyt. á skattstiganum, sem valda hækkun á skatti miðað við skattskyldar tekjur. Um sönnun fyrir þessu leyfi ég mér að vísa til nál. minni hl. fjhn. hv. Ed., sem lagt hefur verið fram á þskj. 495, en þar eru tekin dæmi þessu til staðfestingar.
Eins og ég hef áður greint frá í þessari framsöguræðu, var í lögum 1954 miðað við umreikning á tekjutölum skattstiga og persónufrádrætti samkv. kaupgjaldsvísitölu. Nú er ekki hægt að miða við kaupgjaldsvísitölu, vegna þess að hún er ekki lengur reiknuð, hennar er ekki lengur þörf, eins og lagaákvæðum er nú hagað. Þá kemur vitanlega til álita, við hvaða vísitölu eigi að miða, ef umreikningurinn verður tekinn upp. Þegar þetta frv. var til meðferðar í hv. Ed., bar minni hl. fjhn. þar fram till. um að miða umreikning persónufrádráttar við breyt. á vísitölu framfærslukostnaðar, eins og hún hefði breytzt frá því 1960. Þessi till. bar felld, og eftir að hún hafði verið felld, þá bar sami minni hl, fram till. um að miða umreikning á persónufrádrætti við meðalvísitölu verðlags vöru og þjónustu. Og sú till. var, eins og kunnugt er, einnig felld.
Við munum hér gera tilraun til þess að fá lögfest ákvæði um umreikning á tekjutölum skattstiga og persónufrádrætti til samræmis við vísitölu framfærslukostnaðar, og eins og ég hef áður tekið fram, þá eru þau dæmi, sem ég hef leyft mér að minna hér á, reiknuð skv. breyt. þeirrar vísitölu. Í frv. á þskj. 452 er lagt til, að persónufrádrátturinn hækki um 30%. Þessi hækkun vegur ekki á móti hækkun á vísítölu framfærslukostnaðar, vegna þess að vísitala framfærslukostnaðar var að meðaltali 33.96% hærri árið 1963 en hún var árið 1959. En í þessu sambandi ber að miða við meðalvísitölu ársins 1963, þar sem álagning 1964 er að sjálfsögðu gerð á tekjur ársins 1963. Sé miðað við árið 1964, er meðalvísitalan vissulega miklu hærri, eins og ég hef raunar áður sagt. Auk þess sem hækkunin á persónufrádrættinum er þannig nægileg til þess að vega á mótt hækkun framfærslukostnaðar frá árinu 1960, þá eru í þessu frv. ákvæði í 5 gr., sem valda verulegri hækkun á tekjuskattinum, a.m.k. í mjög mörgum tilfellum. En þar sem hækkunin á persónufrádrættinum eyðist ekki að fullu með hækkun skattsins, þá munum við greiða atkv. með samþykkt þessa frv., því að í því felst lagfæring, þó að hún nái ekki alla leið. Þess vegna er það till. okkar í minni hl. fjhn., að frv. verði samþ., en við æskjum þess, að það verði samþ. með þeim breyt., sem ég mun nú leyfa mér að gera grein fyrir:
„Við 4. gr. Greinin orðist þannig:
Á eftir 3. mgr. 16. gr. komi ný mgr., svo hljóðandi:
Nú breytist vísitala framfærslukostnaðar til hækkunar eða lækkunar frá því, sem hún var að meðaltall árið 1959, og skal þá framangreindum frádráttarupphæðum breytt í réttu hlutfalli við vísitölubreytingarnar. Brot úr hundraði skal fella niður af útkomu, þegar reiknaðar eru út frádráttarupphæðir.“
Önnur brtt., sem við leyfum okkur einnig að bera fram, er svo hljóðandi, — hún er við 5. gr., að greinin orðist svona, það er við 25. gr. laganna:
„Nú breytist vísitala framfærslukostnaðar til hækkunar eða lækkunar frá því, sem hún var að meðaltali árið 1959, og skal þá tekjutölum framangreinds skattstiga breytt í réttu hlutfalli við það. Brot, sem nemur minna en hálfu þúsundi, falli niður við útreikning tekjutalna, en stærra brot hækki í þúsund.“
Hér er sem sagt lagt til, að tekin séu upp á ný ákvæði skattalaganna frá 1954 um umreikning tekjutalna og persónufrádráttar, alveg óbreytt að öðru leyti en því auðvitað, að hér er miðað við árið 1959, en í lágunum var miðað við árið 1953, og að hér kemur vísitala framfærslukostnaðar í stað kaupgjaldsvísitölu áður, vegna þess, eins og fyrr segir, að sú vísitala er ekki lengur reiknuð.
Ég hygg, að ekki fari á milli mála, að það sé nauðsynlegt að hafa slíkan öryggisventil sem umreikningurinn er í skattalögum á slíkum verðbólgutímum eins og þeim, sem nú eru hér á landi. Sé það ekki gert, verður afleiðingin óhjákvæmilega sú, að skattabyrðin þyngist með hverju árinu sem líður vegna stighækkunar skattsins. Þær tekjur, sem taldar votu hátekjur árið 1960, þegar lögin voru sett, eru nú aðeins þurftartekjur eða kannske tæplega það. T.d. voru ráðherralaun það ár kr. 103630.50, laun samkv. hæsta stiga þágildandi launalaga voru 109 þús. kr. Það samsvarar núna launum í 12. launaflokki, þegar launaflokkarnir eru 28. Það er sem sagt fyrir neðan meðallag að segja má. Þessi aukna skattbyrði án umreiknings er óhagganlegt lögmál. Og það er vegna þess lögmáls, sem hæstv. ríkisstj. verður nú að bera fram þetta frv., sem hér liggur fyrir, til þess að skila aftur nokkrum hluta af því, sem verðbólgan hefur tekið af mönnum í formi tekjuskatts umfram það, sem lögin sjálf gera ráð fyrir.
En þessi endurgreiðsla, sem frv. ræðir um, er ekki algjör skv. frv., vegna þess í fyrsta lagi, að persónufrádrátturinn er aðeins hækkaður um 30%, en dýrtiðin hefur vaxið um 33.96% miðað við árið 1963, og einnig vegna þess, að ekkert tillit er tekið til dýrtíðaraukningarinnar að því er snertir þann hluta teknanna, sem er umfram persónufrádráttinn, þ.e.a.s. þann hluta teknanna, sem tekjuskatturinn er lagður á. Ef frv. hæstv. ríkisstj. verður nú samþ. án nokkurs varnagla, eitthvað svipaðs þeim, sem brtt. okkar í minni hl. fjhn. gera ráð fyrir, þá verður misræmið enn þá meira á næsta ári en það er núna, eins og ég hef áður gert grein fyrir, vegna þess að meðalvísitala framfærslukostnaðar ársins 1964 verður miklu hærri en meðaltalið var 1963 og ákvæði frv. duga þá ekki einu sinni til þess að lagfæra ástandið miðað við meðalvísitöluna 1963. Þess vegna þarf þá að bera fram aftur nýtt frv. um hækkun persónufrádráttar eða eitthvað annað, sem hefur sömu áhrif. Þá þarf aftur að fara fram stórkostleg endurgreiðsla, vegna þess að verðbólgan hefur þá enn afskræmt skattareglurnar enn þá meira en hún hefur þó gert núna.
Hæstv. ríkisstj. hefur lýst því yfir, að hún vilji draga úr beinum sköttum, það sé hennar stefna. Ef þessi yfirlýsing er eitthvað meira en orðin tóm, hlýtur hæstv. ríkisstj. að vilja gera ráðstafanir til þess, að skattþunginn aukist ekki, síðan l. frá 1960, sem nú eru í gildi, voru sett. Ég hef þegar sýnt fram á það, að þau ákvæði, sem gert er ráð fyrir með frv., duga ekki til þessa, þau hrökkva of skammt. Nei, eina leiðin til þess að jafna þessi met og til þess að færa skattþungann niður í það, sem hann var 1960, og til þess fyrir hæstv. ríkisstj. að vera trú þessu lögmáli sínu og stefnuskráratriði er að taka upp umreikning í því formi, sem við gerum till. um. Auðvitað getur sýnzt sitt hverjum um það, hvaða viðmiðun eigi að hafa. Ég skal fallast á, að það getur verið, að þau sé ekki endilega vísitala framfærslukostnaðar. Það má vel vera, að t.d. vísitala vöru og þjónustu sé réttari mælikvarði, ég legg ekki dóm á þetta. En ef það á að koma í veg fyrir, að skattþunginn aukist, verður að taka upp umreikning miðaðan við verðhækkanir í einhverju formi.
Því hefur verið talsvert haldið á lofti af stjórnarliðum núna síðustu dagana, að einkennileg sé afstaða framsóknarmanna til þessa frv.; þar sem þeir séu fylgjandi frv., en haldi því þó fram, að það gangi í þá átt að hækka skatta. Ég hef sérstaklega tekið eftir þessu í Alþýðublaðinu að undanförnu, að það telur hníf sinn hafa komizt verulega í feitt í þessu efni. Hér er alls ekki farið með rétt mál, því fer víðs fjarri. A.m.k. hef ég engan mann heyrt halda því fram, hvorki framsóknarmann né annan, að frv. mundi hækka skattana frá því, sem þeir mundu verða að óbreyttum skattareglum. Slíkt er hrein fjarstæða, og mér dettur ekki í hug, að nokkur maður haldi — því fram. Ég hef t.d. reiknað það út, að hjón með nettótekjur 125 þús. kr. og tvö börn ættu að greiða eftir l. óbreyttum 3250 kr., en þau eiga að greiða eftir frv. aðeins 800 kr., þannig að vitanlega er hækkunin á persónufrádrættinum til mikilla bóta, það dettur engum í hug að halda öðru fram. En þessi hjón voru skattfrjáls 1960, og samkv. stefnu hæstv. ríkisstj. ættu þau auðvitað að halda áfram að vera skattfrjáls, ekki sízt þegar búið er að leggja á þau stórfelld gjöld í formi óbeinna- skatta.
Það, sem við framsóknarmenn hér á Alþingi höldum fram, er þetta, að þrátt fyrir þær lagfæringar, sem í frv. felast, verði skattþunginn þó meiri nú en hann var 1960, þegar l. voru sett, vegna þess að leiðréttingin skilar ekki aftur nema nokkrum hluta af því, sem skattþunginn hefur aukizt á tímabilinu vegna verðbólgunnar, og þannig hafi ríkisstj. fjarlægzt það stefnuskráratriði sitt að beita sér fyrir lækkun beinna skatta, eins og ég hef hér sýnt fram á. Þetta er hverjum sem er velkomið að reyna að hrekja, ritstjórn Alþýðublaðsins sem öðrum. Nei, við framsóknarmenn teljum að sjálfsögðu betri hálfan skaða en allan, jafnt í þessu máli sem öðru. Þess vegna mælum við í minni hl. fjhn. með því, að frv. verði samþykkt, en helzt vildum við auðvitað, að dæmið væri leiðrétt til fulls, og þess vegna berum við fram þær brtt., sem ég hef nú hér leyft mér að gera grein fyrir.
Ég mun svo ekki fjölyrða meira um þetta á þessu stigi, heldur leyfa mér að afhenda hæstv. forseta brtt. okkar minni hl. fjhn. skriflegar, með því að útbýting hefur, að ég held, ekki þegar farið fram.