06.05.1964
Efri deild: 83. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1088 í B-deild Alþingistíðinda. (763)

197. mál, Ljósmæðraskóli Íslands

Frsm. (Þorvaldur G. Kristjánsson):

Herra forseti. Heilbr: og félmn. hefur athugað frv, það, sem hér er til umr., á þskj. 400. Aðalbreytingin, sem frv. þetta felur í sér frá gildandi 1., er, að ljósmæðraskóli verði tveggja ára skóli í stað eins, sem nú er. N. mælir með því, að frv. þetta verði samþykkt.