23.01.1964
Neðri deild: 43. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1105 í B-deild Alþingistíðinda. (778)

110. mál, sjúkrahúsalög

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Ég er þeirrar skoðunar, að ýmislegt í þessu frv. sé til bóta frá gildandi heilbrigðismála- og sjúkrahúsalöggjöf, þó að nokkur atriði frv. kunni að orka tvímælis. Ég skal líka taka það fram í upphafi míns máls, að ég tel hafa verið feng að því fyrir hv. þd. að fá þá yfirlitsskýrslu, sem hæstv, heilbrmrh. gaf um það, hvernig við værum á vegi stödd um byggingar nauðsynlegs sjúkrahúsnæðis og hversu gífurleg fjárframlög þarf til þess að koma vissum þáttum þeirra mála í sómssamlegt og viðunandi horf. Það er alveg greinilegt, að þessum málum hefur ekki verið gefin sá gaumur, sem þörfin heimtar, og við höfum dregizt þarna aftur úr, og verður því áreiðanlega á næstu árum að gera allmikið átak til þess að vinna upp það, sem úrskeiðis hefur gengið. Þetta stafar ekki af öðru en því, að fjárveitingavaldið hefur ekki gert sér nægilega grein fyrir þeirri sívaxandi þörf, sem þarna hefur kallað að, og henni hefur ekki verið mætt af fjárveitingavaldsins hendi með nægilegum fjárveitingum. Annað er ekki, sem hefur gerzt, og því verður þarna úr að bæta og taka á sig þyngri byrðar.

Það er eitt efnisatriði þessa frv. að skipta sjúkrahúsum landsins í þrjá flokka. Þar ræður sýnilega fjölbýlið mestu um þá flokkun, og mér virðist við fljóta athugun, að í fyrsta flokkinn komi ekkert sjúkrahús utan Reykjavíkur nema sennilega sjúkrahús Akureyrarkaupstaðar, fjórðungssjúkrahús Norðurlands. Hin fjórðungssjúkrahúsin býst ég við eftir þeirri deildaskiptingu, sem gerð er að skilyrði, að komi í annan flokk og svo í þriðja flokkinn þau sjúkraskýli eða smærri sjúkrahús, sem eru undir gæzlu og stjórnvörzlu héraðslæknanna víðs vegar um landið. Mér er ekki alveg ljóst, hvort ákvæði gildandi laga og framkvæmdaratriði um fjórðungssjúkrahús eru numin í burtu með þessari þrískiptingu sjúkrahúsanna, og vildi biðja hæstv. ráðh. að skýra frá því hér á eftir, hvort gengið er á rétt nokkurs þess sjúkrahúss, þann rétt, sem sjúkrahús í landinu nú hafa, og hann skertur sérstaklega með þessari flokkun sjúkrahúsanna í þrjá flokka. Ég vil vona, að svo sé ekki, því að það lá vissulega hugsun á bak við það að efla eitt sjúkrahús í hverjum landsfjórðungi. Með því var hugsunin sú að jafna nokkuð aðstöðu landsbyggðarinnar með það að hafa a.m.k. eitt sjúkrahús allvel búið að sérfræðiþekkingu og tækjum, þannig að heilbrigðismálaaðstaðan, að því er sjúkrahús snerti, væri sem jöfnust í landinu. Þessi hugsun byggist á þeirri staðreynd, sem hér er dregin fram í aths. við þetta frv., að sérþekking nútímans í læknisfræði nýtur sin einungis í stórum og vel útbúnum og deildaskiptum sjúkrahúsum. Þetta er hárrétt, og með því að ekki þótti fært að láta landsbyggðina alla fara á mis við það að hafa fullkomið, vel útbúið sjúkrahús að tækjum og sérfræðilegri þekkingu, var einmitt þetta form tekið upp, að efla eitt sjúkrahús a.m.k. í hverjum landshluta, leggja á það auknar skyldur um útbúnað og einnig kröfur um, að þar verði tryggð betur en á hinum smærri og verr útbúnu sjúkrahúsum fjölbreytileg sérfræðileg þekking í læknisvísindum.

Það má vel vera, að það sjónarmið sé rétt að hafa styrkina til sjúkrahúsanna alls staðar jafna, hafa byggingarstyrkina til sjúkrahúsanna t.d. ekki lægri í kaupstöðum en í hinum fámennari byggðarlögum. En vissulega er þó hægt að skjóta rökum undir þá skipan, sem nú er, að í fémenninu sé nauðsyn til þess að hafa sjúkrahús eins fullkomin og verða má, en þar sem hinir fáu séu á bak við slíka stofnun, þurfi að veita þeim riflegri aðstoð til þess að koma þessu nauðsynlega menningartæki upp en þar sem þessi útgjaldabyrði hvílir á fleiri herðum, sem sé í kaupstöðunum. Það má vei vera, að réttara þyki þó að fara yfir á þá braut, sem mörkuð er í þessu frv., að þarna sé veitt sams konar aðstoð á hinum fámennari stöðum og hinum fjölmennari og ekki munur gerður þar á. En sjónarmiðið er hægt að rökstyðja, og á því byggist sú skipan, sem hingað til hefur gilt um þetta, að minnka heldur aðstoðina við sjúkrahúsbyggingarnar hjá hinum stærri kaupstöðum, en veita ríflegri hjálp í fámenninu.

Hæstv. ráðh. gat um það, að einn þeirra manna, sem hefðu starfað í mþn., hefði verið þeirrar skoðunar, að rekstrarstyrki til sjúkrahúsanna úti um landið ætti að ákveða sem hundraðshluta af rekstrarhalla landsspítalans. Ég skil vel þetta sjónarmið, og ég tel það að mörgu leyti réttmætt sjónarmið. Ég játa að vísu, að landsspítalinn er meira en sjúkrahús. Hann er að nokkru leyti einnig deild úr Háskóla Íslands. Hann er kennslustofnun öðrum þræði, þar sem verðandi læknar eru menntaðir, og það leggur auðvitað margvíslegar byrðar á landsspítalann sem stofnun, sem ekki hvílir á öðrum sjúkrahúsum. Þess vegna væri ekki rétt að heimta til annarra sjúkrahúsa en landsspítalans hliðstæða styrki frá hendi ríkisins og landsspítalinn nýtur, bæði sem aðalspítalí landsins og þá jafnframt væntanlega sá fullkomnasti, bezt búinn að tækjum og ráðandi yfir fjölbreytilegastri sérfræðilegri læknisvísindalegri þekkingu, en einnig bezt búinn að fjölbreytilegum tækjum. En hann er jafnframt sem sé deild úr háskólanum, skóla- og menntastofnun.

En að því leyti, sem hægt er að miða við landsspítalann sem fullkomið og vel rekið sjúkrahús, og eftir því sem kostnaðurinn við rekstur hans eykst, er ekkí óeðlilegt, að styrkveiting til annarra sjúkrahúsa hækkaði í réttum hlutföllum við aukinn kostnað á þessari hlið af rekstri landsspítalans. Ég skil vel sjónarmið Björgvins Sæmundssonar bæjarstjóra á Akranesi, sem samkv. því, sem hæstv. ráðh. upplýsti, hélt þessu sjónarmiði fram, en varð í minni hluta um það.

Ég vil víkja aftur að hugmyndinni um fjórðungssjúkrahúsin og segja það sem mína skoðun, að ég er löngu orðinn sannfærður um, að það er rétt stefna að efla eitt sjúkrahús, bæði um útbúnað allan og sérfræðilega þekkingu í læknisvísindum, í hverjum landshluta, og tel, að annað skref í þá sömu átt þurfi að stíga, hvenær sem það þykir fært, nefnilega að gera þessi fjórðungssjúkrahús að fjórðungsdeild Landsspítala Íslands, þannig að þau væru alls ekki talin sérstakar stofnanir, þessi fjórðungssjúkrahús, heldur bókstaflega hluti af landsspítalanum og til þeirra væri gert á sama hátt nokkuð jafnríflega, þau jafnvel útbúin eins og í raun og veru hliðstæðar deildir í landsspítalanum. Þetta hefði þann meginkost m.a., að betur væri og jafnar séð fyrir sjúkrahúsaþörf landsmanna og í annan stað betur skapaðir möguleikar til betri hagnýtingar á þeirri fullkomnu, sérfræðilegu, læknisvísindalegu þekkingu, sem landsspítalinn ræður yfir og hann gæti þannig fært, ýmist í einstökum tilfellum eða tíma og tíma, til fjórðungsdeilda landsspítalans í hinum ýmsu landshlutum. Með þessu móti væri verið að gera Reykjavík og landsbyggðinni nokkuð jafnhátt undir höfði í þessum efnum og veita áreiðanlega landsbyggðinni mikið öryggi. Ég mundi segja, að þetta væri ein af þeim stoðum, sem ætti að skjóta undir hugmyndina um jafnvægi í byggð landsins, eins og svipaðar aðgerðir ætti að gera í mennta- og menningarmálum, að því er það sjónarmið snertir að gera aðstöðu landsmanna, hvar sem þeir búa í landinu, eftir því sem unnt er, sem jafnasta að því er snertir atvinnumál, samgöngumál, heilbrigðismál og menningarmál. En vafalaust mundi þessi hugmynd fyrst og fremst mæta andspyrnu út frá því, að hún mundi leggja þyngri fjárhagslegar byrðar á íslenzka ríkið, og má vera, að ekki væri hægt að hlaupa að því á skömmum tíma að framkvæma þetta. En mjög hef ég sannfærzt um það við að hugsa um þetta mál, að með þessu væri rétt stefnt, ef menn annars vilja jafna aðstöðu fólksins á öllum þýðingarmiklum sviðum, hvar sem það býr á landinu.

Ég skal svo ekki fjölyrða meira um þetta mál. Ég mun hugleiða efni þess, þangað til það kemur aftur frá nefnd, og e.t.v. þá bera fram brtt. við það. En ég tek undir það, að það er lofsvert, að hæstv. heilbrmrh. gaf hér merkar og góðar og glöggar yfirlitsupplýsingar um ástand heilbrigðismálanna, einkanlega að því er snertir heilbrigðisstofnanirnar, og einnig glögga grein fyrir efnisbreytingu þessa frv, frá því, sem gildandi löggjöf ákveður. Mig langar svo til þess að biðja hann að segja mér um það, hvort í þessu frv. er skertur nokkuð réttur þeirra sjúkrahúsa, sem nú starfa, t.d. sjúkrahúsanna í hinum þremur landsfjórðungum.