17.10.1963
Neðri deild: 3. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1137 í B-deild Alþingistíðinda. (809)
20. mál, loftferðir
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Ég hygg nú, að það sé ekki ákvæði um vinnutíma í loftferðalögum þeirra þjóða, sem þetta frumvarp er sniðið eftir. Hitt er svo alveg rétt, sem hv. þm. sagði hér áðan, að flugmenn og flugáhafnir mega ekki hafa það langan vinnutíma, að öryggi sé ekki fullkomið þess vegna. En eins og hv. þm., sagði, mætti vitanlega í reglugerð ákveða vinnutímann og ekki síður í samningum á milli flugfélaganna, flugstjóra og annarra áhafna flugvélanna. Að sjálfsögðu tekur samgmn. þetta atriði til athugunar, hvort ástæða þykir til breytinga í því efni frá því, sem er í frv., en ég hygg, að þessu takmarki megi ná, sem hv. þm. nefndi hér áðan, þótt það sé ekki sett í lögin.