12.03.1964
Neðri deild: 68. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1144 í B-deild Alþingistíðinda. (814)

20. mál, loftferðir

Frsm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Það er aðeins eitt atriði, sem fram hefur komið í þessum umr, sem ég vildi fara um örfáum orðum. Hv. 3. þm. Reykv. (EOI) spurði, hvort samgmn. hefði rætt um, hvaða hvíldartími væri hæfilegur fyrir flugmenn. Þetta bar verulega á góma innann., m.a. af því tilefni, að hv. 3. þm. Reykv. hafði við 1. umr. málsins hreyft því, að nauðsynlegt væri að setja ákvæði í lögin um lágmarkshvíldartíma flugmanna. Ég hygg, að það hafi verið sameiginleg skoðun nm., að það sé mjög þýðingarmikið, að flugmönnum sé tryggð nægileg hvíld, þannig að þeir vinni jafnan störf sín vel hvíldir. Hins vegar taldi n. sig ekki hafa aðstöðu til þess að dæma um það, þannig að hún gæti flutt um það brtt. við þetta frv., hver lágmarkshvíldartími flugmanna ætti að vers. Það er nú þannig, að yfirleitt er vinnutími einstakra stétta ákveðinn með samningum þeirra við vinnuveitendur sína: Ég veit, að í einstökum tilfellum hefur löggjafinn sett ákvæði um lágmarkshvíld einstakra starfshópa, eins og t.d. togaravökulögin á sínum tíma. Engu að síður taldi samgmn. sig ekki hafa aðstöðu til þess, a.m.k. á þessu stigi málsins, án þess þá að hafa fengið frekari upplýsingar frá samtökum flugmanna og flugfélögunum um það, hver lágmarkshvíldartími ætti að vera. N. taldi, að stigið væri verulegt spor í rétta átt með því að leggja til, að ráðh. setti í reglugerð ákvæði um lágmarkshvíldartíma flugmanna, til að tryggja fyllsta öryggi. Það er vissulega spor í rétta átt, og mér þykir ólíklegt, að hæstv. ráðh., hver sem hann væri á hverjum tíma, mundi setja slíkar reglur án þess að hafa við það samráð við aðila. Ég held, að gangur málsins hlyti að verða sá, að flugmálaráðherra mundi, áður en hann setti slík reglugerðarákvæði, hafa samráð við samtök flugmanna og vinnuveitendur þeirra, flugfélögin.

Ég hygg, að ég hafi með þessu svarað fsp. hv. 3. þm. Reykv., en vil endurtaka það, að okkur nm. greinir ekki á við hv. þm. um það, að nauðsynlegt sé að tryggja, að flugmenn njóti lágmarkshvíldartíma, þannig að þeir hafi jafnan aðstöðu til þess að vinna störf sín óþreyttir og þannig, að hins fyllsta öryggis sé gætt.

Um samningu frv. vil ég svo að lokum segja það, að það er a.m.k. mín persónulega skoðun, að þetta frv. sé mjög vel samið og að í það hafi verið lögð geysileg vinna. Mikill fróðleikur um flugmál og alþjóðareglur um loftferðir feist í grg. frv., sem allir hv. þm. hafa haft aðstöðu til þess að kynna sér. Ég álít, að Gizur Bergsteinsson hæstaréttardómari hafi unnið frábserlega gagnlegt starf með samningu þessa frv. og það eigi að geta orðið merkilegt spor til umbóta á loftferðalöggjöf okkar í framtíðinni.