09.04.1964
Neðri deild: 76. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1147 í B-deild Alþingistíðinda. (821)

20. mál, loftferðir

Frsm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Við 2. umr. þessa frv. gat ég þess í framsögu fyrir málinu af hálfu samgmn., að n. hefði ekki tekið endanlega afstöðu til nokkurra atriða í frv. og mundi athuga það nánar á milli 2. og 3. umr. Nú hefur n. haldið fund um málið á milli umr., en samkomulag hefur ekki náðst í n. um flutning frekari brtt. en gerð var grein fyrir og fluttar voru af hálfu n. við 2. umr. Hins vegar hafa einstakir nm, flutt tvær brtt., og enn fremur hafa verið lagðar fram brtt. á þskj. 413 af hálfu fjögurra hv. þm. Ég hef ekki umboð til þess af hálfu n. að lýsa afstöðu hennar til þessara till., en vil segja það sem mína persónulegu skoðun, að ég teldi bezt á því fara, að ekki yrðu frekari breytingar gerðar á frv. hér í þessari hv. þd. N. hefur ekki, eins og ég sagði, tekið afstöðu til þessara tili., og það verður að koma í hlut hv. þd, að taka afstöðu til þeirra.

Að svo mæltu leyfi ég mér að óska þess, að umr. verði lokið og þetta frv., sem hefur verið alllengi hér í hv. þd., fái sem fyrst þinglega meðferð frá deildinni.