13.04.1964
Neðri deild: 77. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1174 í B-deild Alþingistíðinda. (832)
20. mál, loftferðir
Sigurvin Einarson:
Herra forseti. Hv. frsm. gerði grein fyrir þeim till., sem samkomulag varð um að mæla með í samgmn., þ.e. allir nm. voru sammála um. Hins vegar gerði hann eðlilega ekki grein fyrir afstöðu einstakra þm. til annarra till., sem n. mælir ekki með, og það var ekki heldur til þess ætlazt, en um þær till. eru nokkuð skiptar skoðanir. Þegar þetta mál var til umr. fyrir nokkrum dögum, gerði ég grein fyrir brtt., sem ég flyt við 7. gr. frv. á þskj. 594. Þar gagnrýndi ég aðallega þetta orðalag um félög, sem eiga loftför á Íslandi: „aðrir, sem verða samkv. gr. þessari settir á bekk með þeim,“ þ.e.a.s. settir á bekk með íslenzkum aðilum eða ríkisborgurum. Mér fannst þetta óeðlilegt orðalag og vildi fá þessu breytt. Hæstv. flugmálaráðh. mælti heldur gegn því, að brtt. mín yrði samþ., á þeim forsendum, að það fælist ekkert annað í henni en væri í gr., — till. væri sama efnis, því að þessir aðilar, sem talað er um í 7. gr., séu auðvitað íslenzkir aðilar, sagði hæstv. ráðh. Ég kalla það betra en ekki neitt að fá þetta fram, þessa skoðun hans á því, að þarna sé um íslenzka aðila að ræða, en ég taldi, að hér hlyti að vera átt við útlenda aðila. Ef ágreiningur verður síðar meir um þetta í framkvæmd, mætti vitna til umr. hvað þetta snertir. En sé þetta rétt hjá hæstv. ráðh., er gr. efnislega á þá leið, eins og ég sagði um daginn, að setja megi íslenzka aðila á bekk með íslenzkum aðilum, og ef hv. þm. vilja hafa gr. þannig, þá þeir um það.
Þá flyt ég till., eins og ég gerði grein fyrir um daginn, ásamt hv. 5. þm. Vesturl., um að fella niður seinni hluta 160. gr. Það er um hinar óhæfilegu refsingar fyrir að vera óstundvís til vinnu. Þar sem ég talaði fyrir þeirri brtt. þá, sé ég ekki ástæðu til þess að fara að endurtaka það nú. En málum hefur nú skipazt þannig síðan, að nú eru allir orðnir sammála um að fella þetta niður, svo að væntanlega gengur sú brtt. fram auðveldlega, og er það ágætt. — En á þskj. 413, frá þeim fjármenningunum, er frekari brtt. við þessa gr. Hún er um að fella alla gr. niður. Fyrri hluti þessarar gr., sem samgmn. leggur ekki til að fella niður, hljóðar þannig, með leyfi forseta:
„Nú leiðir maður, sem skuldbundið hefur sig til starfa í loftfari, hjá sér að taka til starfa eða halda starfa áfram, og skal hann sæta sektum eða varðhaldi allt að 6 mánuðum.“
Þetta er fyrri hluti gr. Ég skil þennan hluta gr. svo, að hér sé eingöngu átt við starfa á flugi, þ.e. uppi í loftinu. En seinni hluti gr. á við starfa á jörðu niðri; þar sem um óstundvísi er að ræða til vinnu eða farið er frá starfi án leyfis. Það er ekki þægilegt að hlaupa heim til sín frá vinnu t.d. á miðri leið milli Bandaríkjanna og Íslands, svo að það er, held ég, alveg ótvírætt, að seinni hl. gr. á við starfa á jörðu niðri, en fyrri hl. á við starfa í loftfari á flugi. Mér sýnist því, að skipta megi í tvö horn refsingum í þessu tilviki. Ef á að hafa harðar refsingar við vanrækslu eða óhlýðni, — og þær eru sannarlega margar harðar í þessu frv., — er ekki hægt að neita því, að það sé þó helzt, ef menn fara að neita að gegna skyldu sinni, þegar loftfar er á flugi fullt af farþegum, og af því er ég ragur við að fella þetta niður. En seinni hl. gr. tel ég hins vegar sjálfsagt að fella, eins og ég hef áður sagt. Samt er það svo, að þátt þessi fyrri hl. gr. yrði felldur líka, sé ég enga hættu á ferðum, því að í næstu gr. á eftir koma álíka hörð viðurlög fyrir óhlýðni. Og í 170. gr. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Nú vanrækir flugstjóri eða flugverji starfsskyldur sínar með ítrekuðum eða óhæfilegum hætti eða fremur annars konar óhæfu í starfa sínum, án þess þó að ákvæði 152.–169. gr. taki til, og skal hann sæta sektum eða varðhaldi.“
Það eru a.m.k. tvær greinar þarna, sem geta komið til, jafnvel þó að öll 160. gr. yrði felld niður. En ég er ekki að mæla með, að það að felldur niður nema seinni hl. gr. Hins vegar hafa þeir fjórmenningarnir ekki lagt til að fella þessar greinar úr frv., 161, eða 170 gr., og það eru þó sannarlega álíka harðar refsingar þar. En þó að fyrri hl. 160. gr. verði felldur, eru þó hinar gr. eftir, sem ég sé ekki betur en miði að hinu sama.
Á þskj. 413 eru nokkrar brtt., sem hv. 1. flm. gerði mjög rækilega grein fyrir hér í dag, og eftir hans ræðu skýrðist málið reglulega vel. Samgmn. hafði að vísu fjallað um málið á fundi í dag, og það var til bóta. En það var mjög ýtarlega gerð grein fyrir þessum brtt, hjá hv. frsm. í dag.
Fyrsta brtt., a-liður, er um það, að ef á að taka mann til rannsóknar, skuli hann fá aðvörun um það, áður en vakttíma hans lýkur. Ég vil segja það um þessa brtt., að þetta væri mjög æskilegt, ef hægt væri að gera þetta. En ég er hræddur um, að það verði ekki tækifæri til að koma slíkri aðvörun við, vegna þess að vakttíma flugmanna lýkur mjög skömmu eftir að flugvél er sezt á flugvöll. Sé maðurinn þá farinn heim til sín, verður þessu ekki komið við. Þá er ekki hægt að aðvara hann lengur, og þar af leiðandi getur þessi rannsókn ekki farið fram. Það er aðeins þess vegna, sem ég er ragur við að samþykkja þessa till. Ég held, að þetta verði dauður bókstafur, ef á að gera það að skilyrði, að slíkri aðvörun verði komið við svo fljótt, því að það getur komið í ljós síðar, að slíkrar rannsóknar þurfi við, en þá er hún útilokuð.
B-liður þessarar brtt. er um það, að ef flugverja er tekið blóð, skuli honum óheimilt að hefja flug næstu 12 klst. á eftir. Þetta er gert í öryggisskyni af hálfu flugmanna, að óska eftir þessari breytingu, og það er virðingarvert að fá sem flestar bendingar um það, sem getur orðið til fyllsta öryggis í flugi. En mér sýnist, að það séu önnur ákvæði í frv., sem tryggi, að slíkur maður, sem tekur eitthvað nærri sér eða verður miður sín við blóðtöku, fljúgi ekki, þau komi í veg fyrir það, að hann fljúgi. Í 36. gr. frv. segir:
„Flugmálaráðh. ákveður, hverjum skilyrðum flugverjar, er í loftfari starfa, skuli fullnægja um ríkisfang, aldur, líkamlegt og andlegt hæfi“ o.s.frv.
Sá maður, sem verður miður sín vegna blóðtöku, hefur ekki lengur þetta hæfi til að fljúga, og yfirmaður slíks flugverja má þá ekki láta hann fljúga, jafnvel þó að ekki væri samþykkt þessi brtt. En auk þess segir í 41. gr.:
„Nú verður læknir þess vís, að flugverji er haldinn slíkri heilsubilun, að hætta stafi af starfa hans í loftfari, og ber lækninum að vara hann við og tilkynna vitneskju sína flugmálastjórn eftir reglum, er flugmálaráðh. setur.“
Þarna sýnist mér enn vera tryggt, að slíkur maður, sem vegna blóðtöku er eitthvað miður sín, megi ekki fljúga, og lækni þarf þó til að taka honum blóð, og verði hann var við, að manninum verði svona mikið um það, er læknirinn skyldugur að aðvara manninn fyrst og síðan flugmálastjórnina, svo að mér sýnist ekki hætta á ferðum, þó að þessi till. yrði ekki samþ. Auk þess vil ég benda hv. 1. flm. á, að í brtt. segir:
„Þyki ástæða til að ætla, að flugverji hafi brotið ákvæði 1. mgr. þessarar gr., er lögreglunni heimilt að færa hann til læknis“ o.s.frv.
Það má þó aðeins samkv. brtt. flytja mann til læknis, ef hann hefur brotið 1. mgr., en þó að hann hafi brotið 2. mgr., er það ekki heimilt eftir brtt. En 2. mgr. þessarar gr. er um það, að bannað er flugverjum að neyta áfengis 18 klst. áður en störf eru hafin, svo að mér sýnist, að brtt. sé ekki fullnægjandi, hvernig sem á hana er litið, því að það getur þurft rannsókn út af því að brjóta pá mgr. alveg eins og hina, en eins og brtt. er, nær hún ekki nema til 1. mgr. Ég sé því enga hættu á ferðum, þó að þessi brtt. nái ekki samþykki, eins og ég sagði áðan, vegna þessara ákvæða í tveimur öðrum gr. frv., sem eiga að tryggja það, að slíkur maður megi ekki fljúga. Og það er skylda læknis að sjá um, að hann fljúgi ekki, ef honum verður mikið um blóðtöku. En hvað er svo um hina, sem ekkert verður um blóðtökuna, eru jafnbrattir eftir sem áður? Flugverja verður bannað að fljúga í 12 tíma samkv. brtt., og ég veit ekki, hvort það er alveg sanngjarnt, — ef ekkert er að honum, fullfrískur og brattur, þá má hann ekki fljúga í 12 tíma, ef brtt. er samþykkt.
2. brtt. a er hv. frsm. n. búinn að gera grein fyrir, að n. mælir einróma með því, að hún verði samþ., en það er um það, að hafi flugverji slasazt fjarri heimili sínu, skuli vinnuveitandi greiða allan kostnað við læknishjálp, sjúkrahúsvist og flutning heim.
Þá kem ég að 2. till. b, og það er um vinnutímann. Ég skal fúslega játa, að ég átti í erfiðleikum með að gera mér grein fyrir, hvort ætti að setja þarna inn ákveðinn vinnutíma. Engar till, fékk n. um það, hver slíkur vinnutími ætti að vera, fyrr en útbýtt var þessu þskj., hún hafði aldrei séð neinar till. um það fyrr. Þegar svo þessar till. koma um vinnutímann, verð ég að segja, að mér þykir hann eiga að vera nokkuð langur, og ég átta mig ekki á þessu, hvernig stendur á því, að flugmenn óska eftir svona löngum hámarksvinnutíma. Þar sem aðeins er einn flugmaður í áhöfn, má láta hann fljúga eða starfa allt að 12 klst. hvíldarlaust, þar sem tveir flugmenn eru í áhöfn, má láta þá fljúga allt að 14 klst., og ég veit ekki betur en þeir megi ekki víkja frá, þótt þeir séu tveir, þ.e.a.s. annar þeirra má ekki hvíla sig, annar má ekki sofna eðs þess háttar. Þeir verða báðir að vera alltaf til taks. Svo stendur: „Tveir flugmenn og fleiri í allt að 16 klst. Ég veit ekki, hvort þetta „og fleiri“ þýðir, að aðstoðarflugmaður eigi að vera sá þriðji. Það kann að vera. En þó held ég, að það sé svo, að hinir raunverulegu flugmenn tveir megi ekki hvílast, þ.e.a.s. þeir megi ekki sofna, og þá er nú tíminn orðinn langur, ef má ætla þeim að fljúga í 16 klukkutíma í lotu. Einmitt vegna þessa, hve þetta er langur tími, vil ég ekki samþykkja þessa till., og mér er tjáð, að þetta sé mun lengri tími en nú tíðkast hjá flugfélögunum, — mun lengri. Nú er þess að gæta, að auk þessa eru flugmenn, sem eru ekki í þjónustu annarra, heldur fljúga einkaflug og fljúga með farþega og eru ekki háðir öðrum vinnutíma, það getur verið hætt við því, að þeir vilji nota sér hámarkstímann, sem settur yrði í lög, ef þetta yrði lögfest. Mér finnst of lítið öryggi í því, ef hámarkstímanum yrði nú fylgt, sem hér er lagt til. Af þessum ástæðum er það, sem ég get ekki fallizt á till. Hins vegar álít ég nauðsyn á því að tryggja flugmönnum nauðsynlegan hvíldartíma, og mér hefur dottið í hug, hvort það muni ekki vera hægt. Ég skal ekki fullyrða um það, en líklegt, að rétt væri að samþykkja síðari hluta till., þ.e. um lágmarkshvíldartíma, þótt ekki verði samþykktur hámarksvinnutími. Ég sé a.m.k. ekkert á móti því að samþykkja þann hluta till., sem fjallar um hvíldartímann.
Þá kemur loks 3. till., um loftferðadómstól í staðinn fyrir rannsóknarnefnd, sem nú er í frv., þ.e. 140. gr. Þessi breyt. var samþ. við frv. um daginn: „Skylt er flugmálaráðh. að skipa rannsóknarnefnd kunnáttumanna til að kanna orsakir flugslyss, ef manntjón hefur orðið.“ Þetta þykir flugmönnum ekki nóg og vilja, að lögfest séu ákvæðin um loftferðadómstól.
Eins og fram kom í framsöguræðu hv. formanns n. í dag og hann orðaði mjög réttilega, er þetta matsatriði, og sama ætla ég, að hv. 11. þm. Reykv. hafi sagt í sinni ræðu. Þetta er matsatriði. En ég held, að það sé ekki matsatriði, að það er miklu meiri festa og miklu meira öryggi í því að hafa loftferðadómstól en að hafa rannsóknarnefnd. Ég er því mjög fylgjandi því, að þessi brtt. verði samþ. um loftferðadómstól. Það hefur helzt verið fært sem rök gegn því, að það muni vera erfitt að finna sérfræðinga í slíkan loftferðadómstól. En ef það er ekki hægt að finna sérfræðinga í hann, hvernig á þá að finna sérfræðinga í rannsóknarnefnd? Ég held, að það sé sama, hvernig maður veltir því fyrir sér, það eru sömu vandkvæðin í báðum tilfellum.
Ég hef þá gert grein fyrir skoðun minni á þeim till., sem ekki voru sérstaklega til umr. af hálfu frsm. í dag, og sé þá ekki ástæðu til þess að orðlengja þetta lengur.