24.04.1964
Efri deild: 73. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1195 í B-deild Alþingistíðinda. (881)

209. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Karl Kristjánsson:

Herra forseti. Mér finnst sjálfsagt af þessari hv. d. að verða við þeirri ósk hæstv. fjmrh. að taka þetta mál til 1. umr., þó að hann geti ekki sökum veikinda tekið þátt í henni. Að vísu er það miklu verra að geta ekki á fyrsta stigi málsins hér rætt um efni frv. við hann. En þetta eru mjög eðlilegar ástæður, og verður ekki um þær sakazt.

„Skattur og útsvör lækka,“ sögðu blöð hæstv. ríkisstj. um daginn, þegar komið var að því, að lögð yrðu fram á Alþ. stjórnarfrv. tvö um breytingar á l. um tekju- og eignarskatt og í öðru lagi frv. til laga um tekjustofna sveitarfélaga.

„Loksins, loksins lyftist vorsins brá,“ hugsuðu skattþegnarnir. Frv. virtist bara falleg sumargjöf eftir skrautlegum umbúðum, sem þau voru reifuð í af Morgunblaðinu, Vísi og Alþýðublaðinu. Svona sumargjöf gefa mínir menn þjóð sinni, sögðu stuðningsmenn hæstv. ríkisstj. þar og brostu í breiðara lagi. Engum er alls varnað, sögðu stjórnarandstæðingar, dálítið vantrúaðir á svipinn að vísu. Ekki má vanþakka allt, bættu þeir við, og það er alveg rétt. En svo var farið að taka umbúðirnar utan af. Fyrst var byrjað á frv. um breytingar á tekju- og eignarskattslögunum. Þá urðu ýmsir nokkuð langleitir, af því að innan úr kom ekki skattalækkun, heldur skattahækkun, — skattalækkun aðeins borið saman við meiri hækkun. „Snuð,“ hefðu krakkar sagt sín á milli um slíka gjöf. „Snuð!“

En þá var frv. um breyt. á l. um tekjustofna sveitarfélaga eftir. Hvað er í þeim sumargjafarböggli? Blöðin gáfu í skyn, að það væri mikilsverð lagfæring, lækkun útsvara, fyrst og fremst á þeim, er þess þyrftu mest með, og álagningin gerð fjórum sinnum auðveldari og léttari fyrir alla hlutaðeigendur, skildist manni helzt, með því að fækka þrepum útsvarsstigans úr 8 í 2 þrep. En hvers vegna þrepið var ekki haft eitt, úr því að svona vel tókst að fækka þrepunum; það nefndu blöðin ekki. Það hefur kannske þótt ofrausn svona í einu. En sennilega verður þess ekki langt að bíða í höndum sömu smiða. Væri það ekki hin fullkomnasta jafnaðarmennska að hafa skattaprósentuna eina og sömu prósentu fyrir alla?

Nú liggur þetta frv. hér fyrir, og athugum nú þessa sumargjöf ofur lítið nánar. Léttist álögubyrðin hjá sveitarfélögunum, ef frv. verður að lögum, eins og fólk álítur eftir túlkun stjórnarblaðanna að verða muni? Auðvitað léttist hún ekki um eina einustu krónu, frekar hið gagnstæða, eins og ég mun síðar koma að.

Öll álögð gjöld hjá sveitarfélögunum voru árið 1963 781307779 kr., og þessi upphæð lækkar ekki, hún hækkar v afalaust stórlega. Tekjuútsvörin voru 1963 596687446 kr., eignarútsvörin 18711420 kr., fasteignaskattur 34143660 kr. og aðstöðugjald 181765253 kr. Þetta gerir samtals, eins og ég sagði áðan, 781307779 kr.

Á engan hátt er með frv. þessu dregið úr þörf sveitarfélaganna fyrir tekjuöflun. Hitt er ljóst, að með þeirri óhemju dýrtíð, þeim óhemjulega dýrtíðarvexti, sem átt hefur sér stað síðan í fyrra, að sveitarfélögin lögðu á áðurnefndar gjaldfúlgur, hefur álöguþörfin stórlega vaxið. Sjálft Alþingi hefur bætt á byrðina með hækkun gjalda sveitarfélaganna til almannatrygginga og enn fremur með 5.5% söluskattsviðauka.

Tryggingartillagið er hár liður í útgjöldum sveitarfélaganna. Mér skilst, að sá liður út af fyrir sig verði um 60% hærri 1964 en hann var í fyrra. Eftir fréttum að dæma af áætlunum sveitarfélaganna á þessu ári hækkar útgjaldahlið áætlananna stórlega. Til þess að mæta þeirri hækkun þurfa sveitarfélögin að hækka útsvarsfúlguna, því að hún er aðaltekjuöflunin og hinir tekjuliðirnir eru óhreyfanlegir frá ári til árs. Ég er með fréttir af því úr mínu kjördæmi, að á Akureyri er áætlað, að útsvarsfúlgan hækki um 32%, og á Húsavík er talið, að hún þurfi að hækka um 40%. Þetta eru fjölmennustu sveitarfélögin í Norðurlandskjördæmi eystra. Og allt mun í þessu efni vera á eina leið alls staðar í landinu, hækkun á hækkun ofan. Þetta fylgir núverandi stjórnarstefnu ófrávíkjanlega eins og draugur, og hæstv. ríkisstj. kveður ekki þann draug niður á sviði sveitarfélaganna með þessu frv.

Í frv. er ekki lækkað það, sem jafna þarf niður á gjaldendur, en álögusviðið er þrengt. Öðrum megin frá er það þrengt með því, að gjaldendum er eitthvað fækkað með því að taka upp ákveðinn persónufrádrátt frá hreinum tekjum, sem nemur 25 þús. kr. fyrir einstakling, 35 þús. kr. fyrir hjón og 5 þús. kr. fyrir hvert barn innan 16 ára. Sízt er nú þetta of mikill frádráttur, þegar litið er til þess, hve lífskostnaðurinn er orðinn hár í krónutölu. Aftur á móti má búast við, að til séu sveitarfélög, sem þoli illa að fella alveg niður útsvör hjá nokkrum, sem borið hafa útsvör að undanförnu. Kemur þá einnig til greina, að reynsla er fyrir því, að menn telja misjafnlega rétt fram tekjur sínar og hafa komizt upp með það. Vitanlega herða þessi ákvæði frv: á nauðsyn þess, að menn geti ekki með röngu framtali komizt niður fyrir álögumarkið og orðið útsvarsfríir í skjóli þess.

Sveitarfélögum er samkv. gildandi l. heimilt að bæta allt að 30% ofan á útsvör, sem lögð hafa verið á eftir fullnýttum gildandi útsvarsstiga, ef þau nægja ekki til að ná þeirri heildarfjárhæð, sem sveitarfélagið þarf á að halda. Samkv. frv. er heimildin til ofanálags færð úr 30% niður í 20% og þannig þrengt sviðið frá þeirri hliðinni. Tekjustofnalögin hafa gilt í 2 ár. Á þeim gildistíma hafa sveitarfélögin ekki þurft að grípa til heimildarákvæðisins. En hver veit, hvað kann að verða nú, þegar dýrtiðin hefur tekið hástökk og þyngdar hafa verið af löggjafans hálfu byrðar sveitarfélaganna, en gjaldendum á að fækka með hækkuðu lágmarki útsvarsskyldra tekna? Ég er ekki á móti þessari þrengingu, ég tek það fram, á álögusviðinu, þótt ég bendi á, að ekki sé tryggt, að vel reynist. Ég tel þetta tilraunavert.

Síðan tekjustofnalögin komu til framkvæmda, hafa öll sveitarfélög getað bæði gildisárin lækkað útsvör frá hinum lögboðna útsvarsstiga og álagningu samkv. honum. Ég hef kynnt mér þetta og séð, að lækkunin 1963 var frá 8% upp í 87%. Eitt sveitarfélag hefur þannig þurft að nota stigann að 92%, en annað ekki nema 13% af honum. Svo misjöfn hefur álöguþörfin reynzt. Þessi munur sýnir, hve torvelt er að sníða þeim öllum sameiginlegan álöguskatt. Ég fyrir mitt leyti hef alltaf talið vafasamt, að rétt væri af löggjafanum að gera það, hef talið, að fámennari sveitarfélögin hefðu sérstöðu, sem samrýmdist ekki reglum fyrir hin fjölmennari. En um það skal ég ekki ræða nú, heldur frv., eins og það liggur fyrir í sambandi við þau lög, sem gilda í dag.

Vel getur maður látið sér detta í hug, að þau sveitarfélög, sem þurftu s.1. ár að leggja á, svo að ekkert teljandi væri eftir af útsvarsstiganum, lendi yfir hann samkv. frv., ef það verður að lögum og í raun og veru er það sagt í grg. frv., að höfundar þess búist við því, að það geti komið fyrir. Og ef sveitarfélögin lenda 20% yfir stigann, hvað þá? Þá á jöfnunarsjóður að bæta við því, sem á vantar. Ég bendi á þetta, af því að það sættir mig við, að þrengt sé álögusviðið þrátt fyrir óvissuna um það, hve álöguþörfin kann að stíga hátt af völdum hinnar ofsalegu verðbólgu og kröfugerðar á hendur sveitarfélögunum. Ég álít, að jöfnunarsjóðurinn eigi meira og meira að koma til sögunnar til að jafna álöguþungann hjá sveitarfélögunum og jafna framkvæmdagetu þeirra í þágu byggðarlaganna. En til þess að það megi verða, þarf að efla jöfnunarsjóðinn, eða honum miklu meiri tekjur en nú er gert. Það þarf að ætla honum víðtækari landsútsvör og meiri hlutdeild í söluskattinum til jöfnunar innbyrðis. Landsútsvörin gerðu aðeins 27 millj. 1962. Ég hef ekki getað fengið upplýsingar um það, hvað þau muni gera fyrir 1963. En 1962 varð hlutur sveitarfélaganna 27 millj. í landsútsvörunum, en hann er 3/4 hvers útsvars. Hlutdeild jöfnunarsjóðs í söluskatti er, eins og menn vita, bara 1/5 hluti, og það var ekki ætlaður til sveitarfélaganna 1/5 hluti af þeim 5.5% viðbótarsöluskatti, sem hæstv. ríkisstj. beitti sér fyrir, að lögleiddur var í vetur, og tel ég það rangt. Tel ég sveitarfélögunum misboðið með því, eins og ég gat um við umr. þess máls, þar sem vitanlega hækkar þessi söluskattur tekjuþörf sveitarfélaganna. Mundi ég í sambandi við frv. þetta vilja prófa, hvort ekki er vilji fyrir því að auka eitthvað tekjur jöfnunarsjóðsins, því að efling hans er áreiðanlega það, sem koma skal.

Ég hef þá, að ég held, minnzt á það, sem telja má aðalatriði frv., vil þó aðeins drepa á fleira.

Ég er samþykkur því að færa aðstöðugjald fiskiðnaðar úr hámarksheimild, sem er 11/2%, niður í 1% hámarksheimild, eins og lagt er til í 2. gr. frv.

Ég tel mjög umdeilanlegt, að rétt sé að fækka útsvarsstigaþrepunum úr 8 niður í 2, en þessi 2 þrep verða 20% og 30% af útsvarsskyldum tekjum, eins og 6. gr. frv. gerir ráð fyrir. Með því verður álagningin að vísu einfaldari í framkvæmd, en hún verður grófari og ónákvæmari, tekur minna tillit til tekjumunar, verður ójafnaðarmennskulegri í þess orð venjulegu og beztu merkingu. Ef litið er á útreikningana í grg., má sjá þetta glöggt, en meira verður það þó áberandi, ef 20% álagningarhækkuninni er bætt við, eins og rökrétt er að gera ráð fyrir að geti orðið að einhverju leyti, jafnvel öllu. Mér finnst, að Alþfl. muni í þessu eins og fleiru nú í stjórnarsamstarfinu hafa sett sjónauka sinn fyrir blinda augað.

Þá er 8, gr. frv. Hana tel ég, að fella eigi niður. Hún er um það að skylda sveitarfélögin til að endurgreiða skattyfirvöldunum kostnað af álagningu útsvara og aðstöðugjalda. Tekinn var með 1. um tekjustofna sveitarfélaga, er gengu í gildi 1962, rétturinn af sveitarstjórnum til að jafna niður útsvörunum nema þar, sem íbúatala var ekki yfir 500, skattstjórum þess í stað falið að ganga frá útsvarsskrám. Enn fremur var skattstjórum falið að annast álagningu aðstöðugjalda í öllum sveitarfélögum, sem þær álögur nota. Þetta var misviturleg ráðstöfun. Á landsþingi sveitarfélaga s.l. sumar mátti glöggt heyra, að sveitarstjórnarmenn töldu þetta hafa gefizt illa, tafið álagningu útsvara og verið sums staðar meira að nafninu til en í reynd í höndum skattstjóranna. Ég tel, að ákvæðinu um þetta ætti að breyta, en býst þó naumast við, að þeir, sem settu ákvæðin, vilji strax ganga inn á það, ef ég þekki þá rétt. Aftur á móti vil ég vænta þess, að þeir vilji sýna sveitarfélögunum þá sanngirni að auka ekki útgjöld þeirra með því að gera þeim reikningskröfur fyrir óumbeðna og yfirleitt mjög vafasama greiða í þessum efnum. Það að gera sveitarfélögunum reikning fyrir þetta væri naglaskapur fyrir hönd ríkissjóðs í garð sveitarfélaganna. Í þessu sambandi skiptir ekki máli, þótt hið nýja skattstjórafyrirkomulag kunni að hafa reynzt dýrt og hafi ekki verið til sparnaðar, eins og gert var ráð fyrir að yrði af þeim, sem komu því á. Engin ástaeða er til að velta vegna þess kröfum yfir á sveitarfélögin að neinu leyti.

Ég hef nú ofurlítið skoðað í sumargjafaböggulinn, sem stjórnarblöðin vöfðu skreyttum umbúðum. Öllum má ljóst vera, að hér er um enga lækkun á útgjaldabyrðum sveitarfélaga að ræða. Eins og ég þykist hafa rökum stutt, eru sum atriði frv. þó fremur til bóta. Önnur orka aftur á móti tvímælis, og til eru þar ákvæði, sem alls ekki á að lögleiða, en þar á ég einkum við 8. gr. frv.

Ég hef með nokkrum háðshreimi að vísu kallað frv. þetta sumargjöf vegna þess, hve mikið var af því gumað. En ég skal játa, að engin von er til þess, að hæstv. ríkisstj. geti lagt fram frv. til l. um fjármál sveitarfélaga, sem fögnuð veiti eins og góðar sumargjafir, meðan hún er háð efnahagsmálastefnu, sem elur óðaverðbólgu.