30.04.1964
Efri deild: 77. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1204 í B-deild Alþingistíðinda. (885)
209. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Frsm. meiri hl. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Árið 1960 voru gerðar róttækar breytingar á reglum um álagningu útsvara. Með þessari breytingu var afnumin sú regla; sem lengi hafði verið í 1., að útsvörum væri jafnað niður á gjaldendur eftir efnum og ástæðum, eins og það var orðað í útsvarslögunum. Útsvarsstigarnir, sem niðurjöfnunarnefndirnar höfðu sett sér sjálfar, voru allt að því jafnmargir og sveitarfélögin, og ósamræmi var mikið milli einstakra staða í álagningu útsvara. Hinar nýju reglur miðuðu fyrst og fremst að því að samræma útsvarsálagninguna hjá sveitarfélögunum, með því að lögfestur var útsvarsstigi með heimild til almenns afsláttar eða álags, eftir því sem þarfir hinna einstöku sveitarfélaga til tekjuöflunar sögðu til um. Útsvarsstigarnir voru ákveðnir 3: einn fyrir Reykjavik, annar fyrir kaupstaði utan Reykjavíkur og sá þriðji fyrir hreppana og þó með nokkru valfrelsi fyrir sveitarfélögin milli útsvarsstiga. Þrep útsvarsstiganna voru misjöfn, 5 ætla ég að hafi verið í Reykjavikurstiganum, og allt upp í 11 þrep. Hinum nýju reglum var ætlað að gilda um takmarkaðan tíma, eða þar til allsherjarendurskoðun skatta-, tolla- og útsvarsmála, sem ríkisstj. hugðist beita sér fyrir, hefði átt sér stað.
Árið 1962 var svo lagt fram á Alþ. frv. um tekjustofna sveitarfélaga og afgr. sem lög frá Alþingi. Nýju tekjustofnalögin höfðu að geyma mörg merk nýmæli, sem óþarft er að rekja hér, enda hv. þm. öllum kunn, og m.a. var þá útsvarsstigi með 8 stighækkandi þrepum lögfestur, einn fyrir allt landið. Nú er fengin tveggja ára reynsla af tekjustofnal. Eins og við var að búast, hefur hún sýnt, að ástæða er til að gera á þeim nokkrar lagfæringar, og hafa enda síðan verið gerðar á þeim nokkrar breytingar. Með því frv., sem hér er til umr., er lagt til, að á tekjustofnal. verði gerðar breytingar, sem reynsla hefur sýnt, að eðlilegt og sanngjarnt er að gera. Sumt af því er raunar staðfesting á framkvæmd, sem orðið hefur í vissum efnum.
Varðandi aðstöðugjöldin, sem á sínum tíma komu í stað veltuútsvara, er í 2. gr. frv. lagt til, að hámark aðstöðugjalda af fiskiðnaði sé lækkað úr 11/2 % í 1% af rekstri og að viðmiðun eða binding aðstöðugjalda við veltuútsvör, eins og þau voru á árinu 1961, verði afnumin í 3 árlegum áföngum, þ.e.a.s. það síðarnefnda er í bráðabirgðaákvæði.
En veigamestu breyt. samkv. frv. eru í 5. og 6. gr. og eru varðandi álagningu útsvara. Samkv. núgildandi i. er veittur tiltekinn fjölskyldu- eða persónuafsláttur af útsvari, eftir að það hefur verið reiknað út eftir útsvarsstiganum. En í 5. gr. þessa frv. er lagt til, að persónufrádráttur sé veittur af tekjum gjaldanda, áður en útsvarið er lagt á tekjurnar, sama frádráttaraðferð og siðan 1960 hefur verið viðhöfð um persónufrádrátt í tekjuskatti. Og í 5. gr. er lagt til, að frádrátturinn verði 25 þús. kr. fyrir einstaklinga, 35 þús. kr. fyrir hjón og 5 þús. fyrir hvert barn á framfæri gjaldanda.
Í 6. gr. frv. er hins vegar lagt til, að þrepum útsvarsstigans verði fækkað úr 8 í 2. Reynslan hefur sýnt það, að ástæða er orðin til þess að breyta núgildandi álagningarreglum þegar af þeirri ástæðu, að útsvarsstiginn, sem nú gildir, gefur það háa útsvarsfúlgu, að svo að segja öll sveitarfélög hafa gefið afslátt af útsvarinu. Mestur hefur hann þó verið í hreppunum, þar sem afsláttur hefur á einstaka stað komizt upp í 80 og jafnvel yfir 80% af útsvörum. Þegar svo er komið, verður niðurstaða álagningarinnar óeðlileg, miðað við það, sem ætlað var, og megintilgangi ákvæðanna, þ.e.a.s. stighækkandi útsvari, verður ekki náð nema að takmörkuðu leyti. Þær reglur, sem hér er lagt til að lögfestar verði, leiða til þess, að lágtekjufólk og þeir, sem hafa marga á framfæri, fá lægra útsvar en eftir núgildandi álagningarreglum.
Í aths. við frv. er á 4. og 5, bls. gerður samanburður á útsvörum samkv. núgildandi l. og eins og þau yrðu samkv. frv. Samanburðurinn er miðaður bæði við einstaklinga, barnlaus hjón og hjón annars vegar með 2 og hins vegar með 3 börn á framfæri. Þar kemur í ljós, að útsvör lækka hlutfallslega langmest hjá fólki með lægri tekjur og lækka að vísu eitthvað á öllum gjaldendum. Það er því augljóst mál, að sveitarfélögin mundu fá lægri heildartekjur í útsvörum samkv. frv. en samkv. núgildandi lögum, sem mun þá í framkvæmdinni þýða það, að minni afsláttur verði gefinn af útsvörum og jafnvel að einhver sveitarfélög verði að bæta við stigann, samkv. heimild í 34. gr. tekjustofnalaganna. Sú heimild hefur til þessa ekki verið notuð af neinu sveitarfélagi, er manni tjáð. Heimildin er að núgildandi lögum um það, að bæta megi ofan á stigann allt að 30%. Nú er talið fært að lækka þessa hlutfallstölu niður í 20% og lagt til, að svo verði gert í 7. gr. frv.
Við 1. umr. um frv. í þessari hv. þd. lýstu 2 af þm. stjórnarandstöðuflokkanna afstöðu sinni til frv. og höfðu eitthvað við það að athuga. Hv. 1. þm. Norðurl. e., sem nú er hér því miður fjarverandi, kvartaði þá undan því, að með frv. væri ekkert dregið úr þörf sveitarfélaganna fyrir tekjuöflun. Ef létta á af sveitarfélögunum þörf fyrir tekjuöflun, yrði það líklega að gerast þannig, að létt væri af þeim einhverjum gjöldum, og hv. þm. hefur e.t.v. átt við það að létta af sveitarfélögunum þörfinni fyrir tekjuöflun með útsvarsálagningu. Hann talaði um það, að fyrirsjáanlegt væri, að tekjuþörf sveitarfélaganna mundi aukast verulega, nefndi í því sambandi áætlun um það í hans heimahéraði, í Húsavík, þar mundi tekjuþörfin aukast um 40% frá því, sem var í fyrra. Það er alveg rétt hjá hv. þm., að tekjuþörf sveitarfélaganna mun aukast og það allverulega, og til þess liggja ýmsar ástæður. Það má t.d. minna á það, að fastráðnir starfsmenn bæjar- og sveitarfélaga fengju yfirleitt frá miðju s.1. ári mjög miklar kauphækkanir. Ég býst við því, að fæst eða kannske engin sveitarfélög hafi við afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar fyrir s.l. ár gert ráð fyrir þeirri hækkun, enda var auðvitað ómögulegt að segja fyrir, hve mikil hún yrði. Þess vegna verða velflest sveitarfélögin á þessu ári að afla sér aukinna tekna, bæði til þess að standa undir stórhækkuðu kaupi starfsmanna þetta ár og einnig hálft árið sem leið:
Nú býst ég ekki við, að þessi hv. þm. eða aðrir þm. hafi talið það óeðlilegt, að starfsmenn sveitarfélaganna fengju kauphækkanir, og það var a.m.k. að vissu marki fyrirmynd við samningána eða hafður til hliðsjónar kjaradómur frá s.l. sumri, og það ætla ég, að hv. 1. þm. Norðurl. e. muni ekki frekar en framsóknarmenn yfirleitt hafa talið, að kauphækkanirnar væru of miklar; a.m.k. ekki fyrr en seinna meir, þegar átti að nota þær til þess að byggja á rök fyrir almennum kauphækkunum, þegar fór að liða á árið.
Hv. þm. nefndi líka hækkun á t.d. framlögum sveitarfélaganna vegna almannatrygginga, sem hann sagði að mundu hækka um 60% frá því í fyrra. Það er nú nokkuð ríflega mælt, því að ég hygg það muni vera 54%, en það er, eins og þm. er í fersku minni, svo um hækkun á útgjöldum Tryggingastofnunarinnar, að það hafa verið samþykktar hlutfallslegar hækkanir á bótunum til jafns eða til samræmis við almennar kauphækkanir, sem hafa orðið í landinu á þessu tímabili, og kauphækkanir, sem hv. þm. og flokkur hans. hafa stutt dyggilega og sízt talið of miklar, hafa numið hvorki meira né mínna en yfir 30%, en að öðru leyti stafar hækkunin á tryggingaramlögunum af því, að um s.l. áramót kom til framkvæmda mikil aukning og útvíkkun bóta, sem ég held að flestir hafi talið að væri sanngjörn, eðlileg og æskileg.
Það er sjálfsagt óhætt að segja það, að almenn kauphækkunaralda eins og sú, sem gekk yfir á s.l. ári hér á landi, hækki svo að segja hvern útgjaldalið sveitarfélaganna, og sú hækkun kemur til viðbótar öðrum hækkunum, sem margar hverjar eru ofur eðlilegar og nokkuð stöðugar jafnvel frá ári til árs. Þar á ég t.d. við hækkanir vegna fjölgunar íbúa og þá einnig vaxandi viðleitni sveitarstjórnanna til þess að verða við síauknum kröfum íbúanna til bættrar þjónustu og aukinna framkvæmda á ýmsum sviðum.
Þegar talað er um vaxandi tekjuþörf og síaukin útgjöld sveitarfélaganna, er í þessu sambandi rétt að minnast á það, að gjaldstofninn, þ.e.a.s. tekjur almennings, varð langtum hærri á s.l. ári en á árinu 1962 og mun fyrirsjáanlega hækka mjög á þessu ári.
Hv. 9. þm. Reykv. kvaðst m.a. vera andvígur því, að heimildin til allt að 800 kr. afsláttar í núgildandi l. verði felld niður, þótt hins vegar sé nú upplýst, að hún hafi verið sáralítið notuð. Um það vil ég segja, að hinar nýju frádráttarreglur frv, byggjast á því, að núgildandi persónufrádráttur af útsvörum falli niður. Og það er þaðan af síður ástæða til að halda eftir einstökum tegundum eða þáttum þess afaláttar, þar sem í þessu tilfelli er aðeins um að ræða heimildarákvæði, sem lítið hefur verið notað.
Hv. þm. taldi, að hinar nýju frádráttarreglur væru hagstæðari, eftir því sem tekjur manna hækkuðu, og nefndi dæmi í tölum, sem mér er nú reyndar ekki alveg ljóst, hvernig hann fær út. En hins vegar er það auðvitað ljóst, að persónufrádráttarreglur, eins og frv. gerir ráð fyrir, koma eitthvað misjafnlega út eftir því, hve tekjuhár gjaldandinn er, þ.e.a.s. hvort kúfurinn, sem frádrátturinn sneiðir af útsvarsskyldum tekjum, hefði ella lent í hærra þrepi í útsvarsstiganum samkv. frv: M.ö.o.: um persónufrádráttinn samkv. frv. gildir alveg það sama að. þessu leyti og um frádrátt frá tekjum yfirleitt.
Eins og fram kemur á nál. á þskj. 503, hefur heilbr: og félmn. ekki orðið sammála um afgreiðslu frv. Meiri hl. n., við 3 þm., sem stöndum að nál. á þskj. 503; leggur til. að frv. verði samþ. óbreytt. Minni hl., hv. 1. þm. Vesturl., hefur skilað séráliti og flutt brtt. við frv. á þskj. 521, og þá hefur einnig hv. 8. landsk. þm. flutt brtt. við frv, á þskj. 518. Ég skal ekki vera margorð um þessar brtt. Um 1. brtt. á þskj. 521 er það að segja, að þar er gert ráð fyrir, að hluti af umboðsþóknun og gengismismun gjaldeyrisbankanna; sem á tekjulið fjárl. fyrir yfirstandandi ár mun vera áætlaður 26 millj. kr., renni frá og með ársbyrjun 1964 í jöfnunarsjóð sveitarfélaga, en hætti þá frá og með sama tíma að renna í ríkissjóð. Þar sem þarna yrði um verulegan tekjumissi að ræða fyrir ríkissjóð, býst ég við, að hæstv. fjmrh. muni vilja eitthvað segja um þá brtt.
Um 2. brtt. á þskj. 521 er hins vegar það að segja, að þar er um að ræða mál, sem hv. framsóknarmenn þjörkuðu mikið um, þegar tekjustofnalögin voru til meðferðar á Alþingi 1962. Má í því samhandi minna á að það var einmitt liður í þeirri viðleitni að samræma útsvarsálagninguna í landinu, að fela skattstjórunum álagninguna, en eins og menn muna, beittu framsóknarmenn sér mjög gegn því á Alþ. 1962. Við í meiri hl. n. erum þessari brtt. andvíg, og er það í samræmi við afstöðu okkar, sem áttum sæti á þinginu 1962, til þessa máls.
3. brtt. á þskj. 521 er um það, að 65. gr. l. falli niður. M.ö.o. þýðir þetta það, að hér er lagt til, að 2. og 3, málsgr. í 8. gr. frv, falli niður, en þar er lagt til, að sveitarstjórnum verði gert að skyldu að endurgreiða skattayfirvöldum allan beinan, útlagðan kostnað, sem leiðir af starfi þeirra fyrir sveitarfélögin, samkv. l. þessum. Ég minnist þess, að við 1, umr. málsins, þá held ég, að hv. 1. þm. Norðurl: e. teldi hér um hreinan naglaskap að ræða. Ég held, að hann hafi orðað það þannig, ef ætti að fara að krefja sveitarfélögin um slíkar greiðslur, eftir að búið væri að þröngva aðstoð skattstjóranna upp á sveitarfélögin. Það má vel vera, að það hafi verið fyllilega réttmætt og réttlætanlegt í augum þeirra, sem telja, að þarna hafi verið framin einhver óhæfa gagnvart sveitarfélögunum, að bæta þeim það þá að einhverju leyti upp með því, að þau þurfi ekki að endurgreiða útlagðan kostnað skattayfirvaldanna við álagninguna. En hins vegar fæ ég ekki annað séð en það sé alveg eðlilegt og réttmætt að ætlast til þess, að sveitarfélögin endurgreiði útlagðan kostnað, eins og lagt er til þarna í gr., og ég geri ráð fyrir, að það mundi þá aldrei vera annað eða meira en í hæsta lagi það, sem þau yrðu hvort sem er að taka á sig, ef þau önnuðust sjálf álagninguna. Meiri hl. n. er þess vegna einnig andvigur þessari brtt.
Ég sé svo að svo komnu máli a.m.k. ekki ástæðu til þess að ræða frv. frekar. Ég hef þegar lýst afstöðu meiri hl, heilbr: og félmn. og þá um leið afstöðu hennar til brtt. hv. 1. þm. Vesturl., að svo miklu leyti sem ég þó ekki hliðraði mér hjá því að taka alstöðu til 1. brtt., ekki af því, að ég hafi ekki um það ákveðnar skoðanir, heldur tei ég eðlilegt, að fjmrh. tjái sig um þá brtt.