30.04.1964
Efri deild: 79. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1215 í B-deild Alþingistíðinda. (891)

209. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Frsm. meiri hl. (Auður Auðuns):

Herra forseti. Við 2. umr. um þetta frv. flutti hv. 8. landsk. þm. brtt., sem er á þskj. 518. Hann tók brtt. aftur til 3. umr. og mæltist til þess, að heilbr.- og félmn. fjallaði um hana milli umr. Það er ekki ástæða til þess að rekja efni þessarar brtt. Hv. flm. fylgdi henni úr hlaði og gerði grein fyrir henni nú fyrir örfáum klukkustundum. Heilbr.- og félmn. er sammála um að mæla með því, að till. verði samþykkt.