19.03.1964
Neðri deild: 71. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1230 í B-deild Alþingistíðinda. (912)

195. mál, húsnæðismálastofnun o.fl.

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að ræða sérstaklega um það frv., sem hér liggur fyrir, vegna þess að ég býst við, að um það verði nokkurn veginn samkomulag á Alþingi. Nú er hér á Alþingi önnur og ábyrgari stjórnarandstaða en sú, sem var, þegar skyldusparnaður var upphaflega tekinn upp í sambandi við þessar framkvæmdir. En ég man ekki betur en sú stjórnarandstaða, sem þá var, beitti sér mjög á móti því, að skyldusparnaður væri þá upp tekinn, þó að sá aðili sé því nú fylgjandi, að skyldusparnaður verði hækkaður.

En í sambandi við þetta mát vildi ég leyfa mér að beina nokkrum fsp. til hæstv. félmrh. Það er þá í fyrsta lagi sú fsp., hvort ekki séu væntanlegar frá ríkisstj. á þessu þingi till. um frekari fjáröflun fyrir byggingarsjóð en sú, sem felst í þessu frv.

Í öðru lagi vildi ég spyrja hæstv. ráðh. um það, hvaða áætlanir ríkisstj. hefði um það fjármagn, sem hún ætlaði byggingarsjóði að hafa til umráða á þessu árl. Það er nú það langt komið á þetta ár, að ríkisstj. ætti að vera búin að gera sér það nokkurn veginn ljóst, hve mikið fé hún ætlar byggingarsjóði að hafa til lánveitinga á þessu ári, og væri mjög fróðlegt að fá upplýsingar um það, og enn fremur, hvernig ríkisstj. ætlar að haga þessum lánveitingum, á hvaða tíma ársins þetta fé mundi koma til ráðstöfunar hjá húsnæðismálastjórn, því að það er mjög heppilegt fyrir þá, sem eiga von á þessum lánum, að hafa nokkra vitneskju um það, hvenær þeir geti átt von á þeim.

Í þriðja lagi vildi ég spyrja hæstv. ráðh. um það, hvort ríkisstj. hefði ekki í hyggju að hækka eitthvað lán þau, sem byggingarsjóður veitir nú, en hámark þeirra er ekki nema 150 þús. kr. Það þarf ekki að færa rök að því hér, hvílík nauðsyn það er, að þessi lánsupphæð verði hækkuð. Ég minnist þess í þessu sambandi, að eitt dagblaðanna í dag birtir ræðu eftir einn af nm. í húsnæðismálastjórn, sem telur það algert lágmark, að þessi lán verði hækkuð upp í 300 þús., en ég veit þó, að aðrir nm. í húsnæðismálastjórn telja þörf á enn meiri hækkun og að þessi lán ættu ekki að vera undir 400 þús., ef farið væri eftir hinni svonefndu Hoffmannsskýrslu, sem hefur verið útbýtt hér fyrir nokkru og kennd er við norskan sérfræðing, sem kynnti sér þessi mál. Ég vildi sem sé spyrja um það, hvort ríkisstj. hefði það ekki í undirbúningi að hækka verulega þá lánsupphæð, sem byggingarsjóður ríkisins veitir einstaklingum.

Í fjórða lagt vildi ég svo spyrja hæstv, ráðh. um það, hvort ríkisstj. hefði ekki hugsað sér neinar sérstakar ráðstafanir vegna þeirra íbúðaeigenda, sem eiga það á hættu að missa íbúðir sínar vegna lausaskulda, en þeir eru því miður margir. Það eru margir, sem hafa ráðizt í byggingar á undanförnum árum, en orðið að sæta því, að áætlanir hafa ekki staðizt vegna þess, hversu fljótt eða ört byggingarkostnaður hefur vaxið og framkvæmdir hafa þess vegna orðið miklu dýrari en gert var ráð fyrir í upphafi, þegar í þær var ráðizt. Það er þegar búið að veita útgerðarmönnum og bændum sérstaka aðstoð vegna lausaskulda, sem hafa orðið til af þessum ástæðum, og nú á þessu þingi mun í ráði að veita iðnaðinum alveg sérstaklega fyrirgreiðslu á þennan hátt, og þess vegna væri ekki óeðlilegt, þó að íbúðarbyggjendur fengju einhverja svipaða fyrirgreiðslu og þessa, þ.e.a.s., að lausaskuldum, sem þeir hafa stofnað til vegna íbúðabygginga, yrði breytt í föst lán eða þeim veitt úrlausn með einhverjum öðrum hliðstæðum hætti.