09.05.1964
Efri deild: 86. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1249 í B-deild Alþingistíðinda. (940)
195. mál, húsnæðismálastofnun o.fl.
Karl Kristjónsson:
Herra forseti. Ég hef sannfærzt um það við þessar umr., að við flm. skrifl. till. höfum ekki misskilið neitt í þessu máli. Hv. 6. þm. Norðurl. e. lýsti því mjög greinilega, að það, sem gerir það að verkum, að Búnaðarbankinn setur upp aðrar reglur en húsnæðismálastofnunin hefur, er, að hann treystir sér ekki til þess að fylgja reglum húsnæðismálastofnunarinnar gagnvart þéttbýlisfólkinu. Ég fyrir mitt leyti álít, að ríkinu sé skylt að búa þannig að Búnaðarbankanum, að hann geti veitt sveitaæskunni sömu kjör og húsnæðismálastofnunin veitir bæjaræskunni.
Ég verð að segja það um 4. mgr. 1. gr. frv., að hún er ákaflega óljós, hún færir á mjög ófullkominn hátt út þá hugsun, sem kom fram í ræðu hæstv. landbrh., og er mjög ófullkomin. Málið er ómótað, og það er verið þarna að fálma eftir því að rýmka starfssvið í þessum efnum. Ég álít fyrir mitt leyti, að það hefði þurft að móta þetta frv. að þessu leyti miklu betur. En ég er viss um það, að það er enginn tími til þess að gera það nú, og með tilliti til þess, að það er enginn tími til þess, þá get ég lýst því yfir, að ég geng inn á það að taka þessa till. aftur, ekki til þess að hvería frá þeirri áherzlu, sem kemur fram í till. á því, að sveitafólkið njóti sömu réttinda í þessum efnum og bæjaræskan, heldur til þess að taka tillit til þess, hve málið er nú komið í mikinn ótíma, og hugsa mér að taka það upp, þegar betri tími er til að endurbseta þá afgreiðslu, sem nú verður.
Ég tel, að hæstv. landbrh. hafi gefið yfirlýsingu, sem ég vil treysta í bili að verði unnið samkvæmt, og þess vegna er það, að ég tek f. h. okkar flm. till. aftur.
Ég ætla ekki að fara neitt út í að svara hv. 4. þm. Vestf. um það, hvernig Framsfl. hefur staðið að byggingarmálum. Hann viðurkenndi það nú sjálfur, að þessi till. um skyldusparnað ungmenna, sem Sjálfstfl. reis gegn, þegar hún kom fram, hefði reynzt betur en hann hefði búizt við, og ég hygg, að ef hún hefði aldrei komið fram, hefði núv. hæstv. ríkisstj. ekki látið sér detta í hug þessa leið til fjáröflunar. Og mér finnst, að hv. frsm. heilbr.- og félmn. hefði frekar átt að þakka Framsfl. og vinstri stjórninni heldur en að deila á hana í þessum efnum. En í heildinni leit ég nú satt að segja á ræðu hans eins og vestangarra, sem geisaði í sameinuðu þingi í nótt, en kom ekki við á hans bæ. Vestfirðingar virðast hafa þörf fyrir það að láta blása þessa dagana.