30.04.1964
Neðri deild: 88. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1288 í B-deild Alþingistíðinda. (957)
201. mál, kísilgúrverksmiðja við Mývatn
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Ég vildi svara þessu strax til þess að taka af hér allan efa um misskilning.
Hv. 3. þm. Vestf. virðist líta svo á sem það samkomulag, sem hér er sem fskj. VII, sé það samkomulag, sem verða muni og annað ekki á milli félaganna, ef heimildir þær eru veittar, sem í frv. þessu felast. Liggur í hlutarins eðli, að hér er auðvitað um mikinn misskilning að ræða, því að það er í raun og veru ekki annað, þetta samkomulag, heldur en yfirlýsing frá beggja aðila hálfu um það, hvernig þeir í aðalatriðum ætla að haga sínu samstarfi. Og auðvitað var talað um það og gert ráð fyrir því í viðræðum hér við Hollendingana, að ef þessi heimild fengist hjá ríkisstj., þá yrðu teknir upp samningar, raunverulegir samningar um það, hvernig háttað skyldi skiptum sölufélagsins við verksmiðjufélagið. Það ber þess vegna að líta á það, sem segir á bls. 24, í fskj. VII, eins og ég reyndar hef tekið fram áður hér við 1. umr. þessa máls, sem stefnuyfirlýsingu af hálfu aðilanna um það, að þetta hlutafélag skuli eitt hafa rétt til þess að selja framleiðsluna á grundvelli þess nánari samnings, sem um það verður gerður bráðlega. Það getur vel svo farið, bæði af okkar hálfu og einnig af þeirra hálfu, að það takist ekki að ná endum saman um nánari samningagerðir. En það er auðvitað alveg tilgangslaust að fara að ganga nánar í samningagerðir, ef ekki fást heimildir af hálfu þingsins til þess að gera þær við viðkomandi aðila. En það sjá allir í hendi sér, að þetta getur ekki verið sá endanlegi samningur, sem um það yrði gerður, hvernig haga Skuli sölufyrirkomulagi, tímalengd samnings og uppsagnarákvæðum og öðru slíku, og þetta er Hollendingunum að sjálfsögðu fyllilega ljóst.
Mér var kunnugt um það, sem n. setti um þetta atriði sem hugleiðingar frá sér í nál., og taldi, að það væri alveg eðlilegt, og féllst fullkomlega á það. Ég vildi, að menn eyddu ekki tíma í að ræða um þetta atriði eða að það fjarlægðist í upphafi allur sá misskilningur, sem gæti orðíð um þetta atriði, því að menn hljóta að sjá það sjálfir, að hér liggur ekki fyrir samningur, sem hægt er að hefja samstarf um, heldur grundvallaryfirlýsing um það, að þessir aðilar vilji semja í stórum dráttum eins og þarna er lýst, þ. á m. um einkaréttaraðstöðu. En það getur vel farið svo, eins og ég sagði, að það samkomulag náist ekki, að það gangi ekki saman með okkur, þegar við eigum að semja um það nánar, og það getur alveg eins komið frá þeirra hálfu og okkar.