13.02.1964
Efri deild: 47. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1311 í B-deild Alþingistíðinda. (979)
148. mál, tollskrá o.fl.
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Eins og mönnum er í fersku minni, voru á siðasta Alþingi sett upp ný tollskrárlög, en þau fólu í sér gagngerða breytingu á tollakerfinu. Þá voru m.a. sameinuð í einn verðtoll hin ýmsu gjöld og gjaldaviðaukar, sem hvíldu á flestum vörum og gerðu tollakerfið óhæfilega flókið. ýmsar lagfæringar voru gerðar til samræmis á tolltöxtum skyldra vara. Þó var að vísu ekki hægt til fulls að sníða af þann skakka, sem orðinn var á tollum sakir þeirrar að mörgu leyti handahófskenndu gjaldheimtu, sem hafði átt sér stað um langan aldur til stuðnings atvinnuvegunum í stað réttrar gengisskráningar. Með tollskránni var enn fremur lækkaður verulega tollur á fjölmörgum vörutegundum, og siðast, en ekki sízt var sú breyting á gerð, að við niðurröðun vörutegunda í skránni var fylgt hinni alþjóðlegu tollskrárfyrirmynd, Brüsselskránni svonefndu. Hér var um svo viðamiklar og veigamiklar breytingar að ræða, að öllum, sem að þeim unnu, var ljóst, að strax og farið væri að beita lögunum, mundi ýmislegt koma í ljós við daglega framkvæmd, sem nauðsyn bæri til að lagfæra.
Tollskrárnefnd, sem skipuð var að mestu sömu mönnum og þeim, sem sömdu tollskrárfrv., var falið að fylgjast með framkvæmd laganna, athuga erindi, sem borizt hafa frá félögum og einstaklingum, og gera till. um, hverju væri rétt að breyta og þá á hvern hátt. Þetta fn., sem hér liggur fyrir um breytingu á lögum um tollskrá, byggist á tillögum tollskrárnefndar. Þar er fyrst og fremst um að ræða ýmsar tæknilegar lagfæringar og samræmingu á tolli af skyldum vörum úr mismunandi efnum. Breytingarnar eru allmargar. Eins og sjá má á frv., er 1. gr. 91 liður og 2. gr. 5 liðir, þannig að í rauninni má segja, að 96 séu liðir þeir, sem breyta á, en í rauninni eru breytingarnar miklu fleiri, vegna þess að innan hvers liðs eru víða allmörg tollskrárnúmer, t.d. í einum þeirra tæplega 30. Hér er því um margar breytingar að ræða, og vil ég sérstaklega vekja athygli á því, að þessar breytingar á tollum eru svo að segja allar til lækkunar og sums staðar svo að verulegu nemur. Ég ætla, að um hið gagnstæðs séu aðeins 6 dæmi í þessu frv., og eru þau þannig til komin, að tollskrárnefnd taldi brýna nauðsyn til bera vegna samræmis að gera þær breytingar.
Um einstakar till. skal ég ekki ræða neitt að ráði, en vísa til grg. frv., en víkja þó að nokkrum breytinganna, sem einna mestu máli skipta.
Þess er fyrst að geta, að tollur á smíðatólum og ýmsum öðrum handverkfærum lækkar verulega, eða úr 50–100% niður í 35%. Við þessa breytingu er höfð hliðsjón af tolli á iðnaðarvélum, sem er almennt 35%, svo og af því, að í flokk með handverkfærum hafa fallið ýmis verkfæri, sem notuð eru sem hjálpartæki við vélar, en þær bera sem sagt 35% toll. Ég ætla að hér sé um réttmæta og sanngjarna lagfæringu að ræða, en sá óeðlilega hái tollur, sem nú er á þessum vörum, smíðatólum og verkfærum, á fyrst og fremst rót sína að rekja til þess, að á þau var á sínum tíma lagt hið svonefnda innflutningsgjald, eins og ýmsar fleiri hátollaðar vörur.
Þá er í öðru lagi tollur á varahlutum í rafmagnsheimilistæki lækkaður úr 80% niður í 50%. Má gera ráð fyrir því, að sú lækkun stuðli að því, að viðgerðir á slíkum tækjum verði ódýrari.
Þá er í þriðja lagi gert ráð fyrir í frv. að fella alveg niður toll af orgelum til notkunar í kirkjum, en samkvæmt gildandi ákvæðum er sá tollur 30%. Síðasta kirkjuþing samþykkti áskorun í þessa átt, um að fella niður aðflutningsgjöld af orgelum til kirkna. Eins og kunnugt er, þá er hér oft um að ræða dýr orgel, pípuorgel, og yfirleitt þykir rétt að fella niður tollinn og íþyngja ekki söfnuðum með tollum af þessum hljóðfærum, sem nauðsynleg eru hverri kirkju.
Þá er í fjórða lagi breyting varðandi tollaeftirgjafir af bifreiðum til öryrkja. Í gildandi tollskrárlögum er heimild til þess að fella niður gjöld á allt að 50 bifreiðum árlega fyrir lamað og fatlað fólk og fólk með ýmsa nánar tilgreinda sjúkdóma og örorku, og er heimildin bundin við 40 þús. kr. fyrir hverja bifreið. Að vísu hefur þessi bifreiðatala í tollskránni eða tollalögum, sem staðið hefur í allmörg ár, verið hækkuð nokkuð árlega undanfarin síðustu ár með sérstöku lagaákvæði, sem gilt hefur fyrir eitt ár í senn, en í þessu frv. er gert ráð fyrir, að heimildin verði bundin við 150 bifreiðar í stað 50, og jafnframt, að hámark eftirgjafar á aðflutningsgjöldum af hverri bifreið hækki úr 40 þús. upp í 70 þús. Hér er um að ræða mikið hagsmunamál fyrir þá, sem vegna fötlunar eða einhverra sjúkdóma þurfa á bifreið að halda til þess að komast ferða sinna eða stunda vinnu.
Þá er í fimmta lagi tekin upp heimild til þess að endurgreiða gjöld af vísindatækjum, sem samsvari því, að af þeim sé greiddur 35% verðtollur. Samkvæmt gildandi tollskrá er ákveðinn 35% tollur af vísindatækjum yfirleitt. Það hefur hins vegar komið í ljós, að ýmis slíkra tækja teljast til tollskrárnúmera með hærra gjaldi, þannig að það gæti jafnvel farið upp í 100 eða 110% eftir því, úr hvaða efni þessi tæki eru. Dr. Finnur Guðmundsson hefur fyrir hönd náttúrugripasafnsins vakið sérstaka athygli á þessu, m.a. varðandi fuglamerki og ýmsar aðrar þarfir náttúrugripasafnsins, og talið óeðlilegt, að ýmis slík tæki séu tolluð hærra en hin almennu tæki til vísindarannsókna, og hefur niðurstaðan því orðið sú, að setja inn í 2. gr. frv. slíka heimild sem ég gat um, til að endurgreiða gjöld af tækjum til vísindarannsókna, sem svari því, að af þeim sé greiddur 35% verðtollur. Hin aðferðin þótti of flókin, að fara að breyta hverjum einstökum lið tollskrárinnar, sem hér gæti komið til greina. Niðurstaðan verður því sú, ef þetta ákvæði verður samþykkt, varðandi vísindatækin, að af flestum þeirra greiðist 35% tollur, en ef einhver þeirra falla í annan hærri tollflokk, þá verður endurgreitt það, sem umfram er 35%.
Ég nefni hér nokkrar af þessum breytingum, en vísa að öðru leyti til grg. með frv., bæði almennt og sérstaklega með einstökum liðum.
Með þeim brtt., sem hér eru fluttar við tollskrána, er að sjálfsögðu ekki náð neinu lokatakmarki, og áfram verður að halda á þeirri braut, sem mörkuð hefur verið, að lækka tollana og færa tollakerfið til enn meira innbyrðis samræmis, því að eins og ég gat um áðan, er enn langt frá því, að það hafi tekizt. Við allar slíkar aðgerðir verður einnig að hafa í huga, að sanngjarnt og eðlilegt tillit sé tekið til innlends iðnaðar og hlutur hans ekki fyrir borð borinn.
Á síðasta iðnþingi var samþykkt ályktun á þá leið, að skorað var á ríkisstj. og Alþingi að lækka tolla á vélum til iðnaðarframleiðslu, en þeir eru yfirleitt 35% nú. Þetta mál hefur verið til sérstakrar athugunar, því að vitanlega hefur það ákaflega mikla þýðingu fyrir íslenzkan iðnað og pá ekki sízt fyrir útflutningsatvinnuvegina. Eftir nokkra athugun á þessu máli almennt, um möguleika á lækkun tolla af vélum, ritaði ég tollskrárnefndinni 12. des. bréf um þetta efni og vil lesa hér meginatriði þess.
„Það er og hefur verið stefna núv. ríkisstjórnar að hafa gjöld á innfluttum vélum og öðrum tækjum til atvinnuveganna eins lág og fjárhagur ríkissjóðs frekast leyfir. í samræmi við það var með setningu nýrra tollskrárlaga á síðasta vori ákveðin veruleg lækkun á tolli landbúnaðarvéla og sömuleiðis voru lækkaðir tollar á ýmsum vélum og tækjum til fiskveiða. Hins vegar var að svo stöddu ekki talið fært að lækka tolla á vélum almennt frá því, sem verið hafði. í nýju tollskránni er yfirleitt 35% tollur á vélum og tækjum, öðrum en þeim, sem notuð eru við fiskveiðar og landbúnað. Ráðuneytið telur nú tímabært, að kannaðir verði möguleikar á því, að tollar á vélum og tækjum verði lækkaðir, og er tollskrárnefnd falið að gera þá athugun, samkvæmt því, sem hér segir:
1) Athuga þarf, hvort og þá að hve miklu leyti sé framkvæmanlegt að ákveða tolla af vélum og tækjum til vinnslu útflutningsafurða lægri en á vélum og tækjum til annarra nota.
2) Athuga þarf, hve mikið það mundi kosta ríkissjóð, ef lækkaðir yrðu tollar af vinnuvélum og öðrum tækjum til þess iðnaðar, sem framleiðir vörur og veitir þjónustu fyrir innlendan markað. Í því sambandi verður að athuga, hvort framkvæmanlegt verður að takmarka tollalækkun við slíkar vélar og tæki eða hvort óhjákvæmilegt sé að láta hana einnig taka til annarra véla og tækja og þá til hverra.
3) Að athuga aðrar hliðar þessa máls, svo sem hvaða breytingar aðrar kynni að þurfa að gera á tollskránni, ef tollar á vélum og tækjum yrðu lækkaðir, og hverjar fjárhagslegar afleiðingar slíkt hefði fyrir ríkissjóð. Í því sambandi þyrfti að athuga áhrif lækkunar vélatolla á samkeppnisaðstöðu innlendra vélaframleiðenda.“
Eins og kemur fram af þessum útdrætti úr bréfinu, er þetta mál ákaflega víðtækt og flókið. Það, sem mörgum finnst ef til vill eðlilegast, er að lækka tolla á vélum til útflutningsframleiðslunnar. En þá er það athugandi, að sumar slíkar vélar eru sams konar og vélar, sem notaðar eru til annars en útflutningsframleiðslunnar, og í framkvæmd er ákaflega örðugt að hafa mismunandi tolla á sams konar vöru eftir því, til hvers hún er notuð. Í öðru lagi koma hér varahlutamálin mjög til athugunar, því að að því hefur verið stefnt og æskilegast að hafa tolla af varahlutum jafnháa tollum af sjálfum aðalhlutunum eða vélinni.
Ég skal ekki fara frekar út í þetta mál hér, en aðeins taka það fram, að hugmyndir voru uppi um það, þegar þetta bréf var ritað í desember, að unnt væri að taka inn í þetta frv. till. um lækkun á vélatollum. Fyrir nokkru tjáði hins vegar tollskrárnefndin mér, að málið væri svo víðtækt, að hún treysti sér ekki til að leggja fram rökstuddar till. á þessu stigi og taldi, að það yrði að bíða næsta hausts. Hér er um að ræða mál, sem hefur verulega þýðingu fyrir iðnaðinn í landinu og ekki sízt útflutningsiðnaðinn. Vegna þess að ekki er um þetta fjallað í frv., vil ég taka það fram til þess að sýna, að málið hefur verið í rækilegri athugun og er, og vænti ég þess, að till. um umbætur í þeim efnum, þ.e.a.s. lækkun vélatolla, geti orðið lagðar fyrir næsta þing.
Ég vænti þess, að um þetta frv. geti orðið samstaða á Alþ., og legg til, að því verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.