30.04.1964
Neðri deild: 88. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1332 í B-deild Alþingistíðinda. (995)

148. mál, tollskrá o.fl.

Fjmrh (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Á s.l. ári samþ. Alþingi lög um nýja tollskrá. Hún fól í sér gagngerðar breytingar í tollamálum, en þá var tekið fram, enda ljóst, að við framkvæmd hinnar nýju tollskrár mundi ýmislegt koma fram, sem lagfæra þyrfti og breyta í samræmi við framkvæmd, og hefur að þessu verið unnið síðan af hendi tollskrárnefndar, að athuga, hvaða atriði það væru, sem þyrfti að breyta af tæknilegum ástæðum eða til samræmingar.

Þetta frv. er í meginatriðum árangur af starfi þeirrar nefndar, síðan tollskráin var samþ. Þessar breytingar fela flestar í sér lækkun gjalda og sumar verulega. Það, sem einna mestu máli skiptir, er veruleg almenn lækkun á tollum af alls konar handverkfærum og enn fremur varahlutum í rafmagnsheimilistæki. Í Ed, var málið til rækilegrar athugunar, og flutti fjhn. nokkrar brtt. við frv. í samráði við fjmrn. og tollskrárnefndina, en allmörg erindi höfðu borizt til n. og ráðuneytisins, síðan frv. var lagt fram.

Ég tel ekki ástæðu til að gera ýtarlegri grein að sinni fyrir þessu frv., en legg til, að því verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.