28.04.1965
Neðri deild: 74. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1113 í B-deild Alþingistíðinda. (1021)

188. mál, innlent lán

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Það eru nokkrar aths. við það frv., sem hér liggur fyrir frá hæstv. ríkisstj. um heimild til að taka innlent lán. Sams konar tilmæli voru flutt Alþ. þann 16. nóv. s.1. og þá mun ég við 1. umr. hafa tekið allvel í það, að þessi tilraun yrði gerð af hálfu hæstv. ríkisstj. til þess að afla fjármagns, en ég vil segja það, að nú þykir mér gerast nokkuð skammt stórra högga á milli og það sé farið að vega nokkuð oft í sama knérunninn. Ég var samþykkur þessari tilraun í nóv. s. 1. og hafði ég þó nokkrar aths. að gera við aðferðina við lánsfjáröflunina og ég tel rétt að minna á sumt af þeim a.m.k. hér í örstuttu máli.

Ég hreyfði því þá við 1. umr., að ég teldi eðlilegra og raunar sjálfsagt, að þegar leitað er heimildar Alþ. til slíkrar fjárútvegunar, væri jafnframt tilgreint, til hvers fjármagnið ætti að nota og það væri lögákveðið. Á þetta vildi hæstv. fjmrh. ekki fallast og vísaði til þess, að fjármagnið ætti að ganga til framkvæmda samkv. framkvæmdaáætlun. Ég tel enn þá óeðlilegt, að Alþ. ákveði ekki þær framkvæmdir, sem gera skal á vegum ríkisins og þess vegna vil ég enn á ný beina þeim tilmælum til hæstv, ríkisstj. og hæstv. fjmrh., að nú verði gerð þarna bragabót og inn í frv. sett ákvæði um það, til hvers fjármagninu skuli varið.

Megin ástæðan til þess, að ég taldi lögin í nóv. eiga rétt á sér, var það ákvæði þeirra að verðtryggja það sparifé, sem á þennan hátt yrði lagt til hliðar. Og sú ástæða er vissulega enn þá fyrir hendi. En ég vil minna á, að hér er ekki nema örlítið gert að því að verðtryggja sparifé, sem vissulega þyrfti að gera miklu meira að og þegar þetta mál var hér síðast til umr., tók hæstv. fjmrh, vel undir það, að slík breyting þyrfti að ná fram að ganga, og sagði, að að málinu væri þá unnið og er það vel. Nú eru liðnir fjórir mánuðir og ætti þá eitthvað að hafa þokazt í rétta átt í þessu sambandi. En hinu er ekki að neita, að slík lánsútboð með þetta góðum kjörum hljóta að verða til þess að rýra mjög getu viðskiptabankanna til þess að gegna hlutverki sínu, sem Alþ. hefur í öllum tilfellum falið þeim. Og það er fyrst og fremst það, sem ég óttast að þetta frv. muni hafa í för með sér. Rekstrarfjárskortur er nú mjög mikill í nálega öllum atvinnugreinum þjóðarinnar og mjög mikil ásókn á bankana, sjálfsagt aldrei meiri og þess vegna kemur það áreiðanlega mjög illa við bankana og getu þeirra til þess að leysa úr vandamálum viðskiptamanna sinna að bjóða nú út þetta lán með þeim kjörum, sem samkv. fenginni reynslu hljóta að vera aðgengileg fyrir alla þá, sem nokkurt sparifé eiga og geta við sig losað.

Þegar málið var til umr. hér síðast, mun hæstv. fjmrh. hafa látið þá skoðun í ljós, að hugsanlega mundi talsvert fjármagn koma til innlausnar á þennan hátt annars staðar frá, en úr bönkum, það mundu ýmsir frekar kjósa að kaupa þessi skuldabréf, en að geyma peningana annars staðar eða gera annað við peningana og má vera, að einhver brögð hafi verið að því. En ég held þó, að reynslan í desembermánuði s.1. og það veit ég a.m.k., að bankastjórar, sem hér eru staddir, geta staðfest með mér, sýndi, að það fjármagn kom að langmestum hluta, ef ekki að öllu leyti, úr bönkunum. Það var tekið út og keypt fyrir það bréf. Ég tel vera mjög varhugavert að halda nú eftir aðeins fjóra mánuði lengra áfram á þessari braut, ekki sízt þegar nú er komið á daginn, að hæstv. ríkisstj. ætlar ekki að láta við þetta sitja, heldur hefur hún jafnframt gert alvöru úr því, sem ýmsir bankamenn hafa löngum óttazt, að leggja þær kvaðir á viðskiptabankana til viðbótar þessu að knýja þá til þess að verja 10% af sparifjáraukningunni á þessu ári líka, eins og verið hefur 2 undanfarin ár, til þess að kaupa ríkisskuldabréf og það fé á enn fremur að ganga til margnefndrar framkvæmdaáætlunar. Ég tel, að hér sé um slíka blóðtöku að ræða, að viðskiptabankarnir geti trauðlega undir henni risið. Og ég tel það fullkomið athugunarefni fyrir hæstv. ríkisstj. að ganga ekki lengra á þessari braut, en þegar hefur verið gert. Enn fremur er þess að geta, að síðari tilhögunin, þ.e.a.s. 10% bindingin til viðbótar, kemur mjög misjafnt niður hjá einstökum bönkum, þar sem inn í framkvæmdaáætlun hafa, að því er ég bezt veit, verið tekin ýmis þau atriði, sem sérstakir viðskiptabankar eiga eðli málsins skv. að leysa úr, öðru sleppt, sem öðrum viðskiptabönkum er aðallega ætlað að greiða fyrir. Þannig ójafnast aðstaða bankanna að verulegu leyti.

Um frv. sjálft að öðru leyti skal ég ekki eyða mörgum orðum. Það gefast tækifæri til að skoða það betur í hv. fjhn., sem þetta frv. verður sent til umsagnar, ef að líkum lætur. Ég ætla þó að minnast aðeins með örfáum orðum á tvö atriði til viðbótar.

Annað er það, sem við nokkrir nm. í fjhn. þessarar hv. þd. hreyfðum, þegar málið var til skoðunar þar í nóv. s.1., en það er, hvort ekki væri rétt að hafa þessi skuldabréf a.m.k. framtalsskyld. Það voru talin ýmis tormerki á því af hæstv. fjmrh. að verða við þeirri beiðni og vísað til þess, að sparifé væri hvorki framtalsskylt né skattskylt og þess vegna yrði þessi sparifjársöfnun að lúta sömu lögum. Mér finnst þó, að hér sé talsverður munur á. Hér er þó óneitanlega um verðbréf að ræða og möguleiki fyrir hendi til þess að fylgjast með, hvert þau fara, hverjir þau kaupa. Og í framhaldi af þeim umr., sem urðu hér í fyrra, bárum við hv. 1. þm. Norðurl. v. fram brtt. um það, að þessi innlánsskírtefni eða skuldabréf skyldu skráð á nafn. Ég er enn þá þeirrar skoðunar, að það hafi verið réttmæt ósk, að þessi bréf yrðu nafnskráð. Því fylgja engin vandkvæði, sem ekki er hægt að leysa úr, en því fylgir mjög mikil auðveldun fyrir skattarannsóknardeild hæstv. fjmrh., sem með því hefði átt ólíkt auðveldara að fást við þau verkefni, sem henni er ætlað að leysa og væntanlega erum við allir einhuga um það, að sízt beri að torvelda það starf, sem henni er falið.

Ég tel því ástæðu til þess að freista þess nú enn á ný að fá þessa umbót inn í lagafrv. og mun gera ráðstafanir til þess.

Annað atriði, sem ég nefni, er að vísu miklu minna atriði, en þó umtalsvert, en það er, að ég tel, að þegar um slíka lagasetningu sé að ræða, þá eigi og það sé sjálfsagt að tilgreina þau kjör, sem bréfin eiga að vera seld á. Einnig þessa ósk bar ég fram hér í nóv. s.1., en var þá ekki sinnt. Ég vona, að nú takist betur til og það verði hægt að fá inn í frv. ákvæði um það, hvaða lánskjör verði á umræddum skuldabréfum.

Ég skal ekki, herra forseti, lengja þetta mál að svo stöddu, með því, eins og ég sagði, að það gefst tækifæri til þess að skoða það í nefnd, þó að nokkuð sé nú þrengt að tíma nefndarinnar í því skyni. En ég vil að síðustu leggja á það ríka áherzlu, að það verði upplýst, annaðhvort nú eða þá fyrir hv. fjhn., meðan á meðferð málsins stendur, í hvaða skyni á að nota það fjármagn, sem hér um ræðir. Enn fremur tek ég undir þá ósk, sem hér hefur komið fram frá tveimur hv. þm., sem um þetta mál hafa rætt, að æskilegt væri og raunar sjálfsagt að fá upplýsingar um það, til hvers það fjármagn, sem þegar hefur verið aflað, hefur verið notað. .Ég tel óeðlilegt, að það séu tvenns konar fjárlög í landinu, annars vegar þau fjárlög, sem Alþ. samþykkir, og hins vegar framkvæmdaáætlun, sem ríkisstj. gerir og það sé alger lágmarkskrafa a.m.k., að Alþingi sé leitt í allan sannleika um það, hvað það er, sem skv. henni er framkvæmt.