11.03.1965
Efri deild: 53. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1155 í B-deild Alþingistíðinda. (1039)

147. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Helgi Bergs:

Herra forseti. Það voru aðeins örfá orð í tilefni af ræðu hv. 12. þm. Reykv. Mér þótti í sjálfu sér ánægjuefni að verða þess var, að hann hafði eins og ég mikinn áhuga á því að lagfæra ýmislegt á sviði skipulagsmála byggingariðnaðarins og ég verð að láta í ljós ánægju mína yfir því og vona, að það verði til þess, að hv. þm. sem formaður húsnæðismálastjórnar taki sig þá verulega á í þessu efni. En það voru nokkur atriði í ræðu hans, sem gáfu mér tilefni til þess að kveðja mér hljóðs á ný.

Mér virtist, að hann væri sammála mér um, að það væri æskilegt m.a. til þess að koma okkar íbúðabyggingum í betra horf að draga úr þeirri verðbólgufjárfestingu, sem grassérar svo alvarlega í landinu. En hins vegar virtist hann ekki sérlega úrræðagóður í því efni að ná þeim tilgangi, því að hv. þm. sneri sér að mér og spurði, hvort ég vildi höft. Það er nú svona með sumu menn, að þeir sjá aldrei neitt nema höft, ef eitthvað á að laga. Hvað hann meinar nákvæmlega með þessu veit ég ekki gjörla, en ef hann á við það, að hér séu reistar eitthvað svipaðar skorður við verðbólgufjárfestingu og gert er í Noregi, Svíþjóð og Danmörku, virðist mér, að slíkar skorður geti vel komið til athugunar og eigi að koma til athugunar. En hins vegar benti ég, þótt hv. 12. þm. Reykv. yfirsæist það, á aðra leið í þessu efni, sem kannske er þó ekki fullnægjandi, um það skal ég ekkert fullyrða, ég setti það bara hér fram sem óformaða hugmynd. Í sambandi við það kem ég að öðru atriði, sem hv. þm. virtist misskilja í ræðu minni, vegna þess að ég geri ráð fyrir, að þar sé um að ræða misskilning, en ekki vil ég gera því skóna, að um útúrsnúning hafi verið að ræða. Það var í sambandi við það, að hann taldi, að ég hefði gagnrýnt, að húsnæðismálalán eigi að verða verðtryggð. Það var í sjálfu sér ekki það fyrst og fremst, sem ég var að gagnrýna, heldur hitt, að á sama tíma er það vitað, að stórar fúlgur af sparifé landsmanna fara í verðbólgufjárfestingu óverðtryggt og ég taldi, að það væri full ástæða til að jafna þar metin og skaut fram þeirri hugmynd, hvort í því sambandi kæmi ekki til greina einhvers konar verðhækkunarskattur á þeirri fjárfestingu, sem í er bundið óverðtryggt sparifé landsmanna. Með þessu móti væru að sjálfsögðu slegnar tvær flugur í einu höggi, ekki aðeins að jafna metin við almenning, sem verður að hafa verðtryggt sparifé á sínum íbúðum, heldur mundi einnig með þessu móti verða dregið úr tilhneigingunni til þess að ráðast í verðbólguframkvæmdir.

Ég lagði í ræðu minni áðan í sambandi við verðtryggingu lánanna einnig áherzlu á það, að ég teldi það aðalatriðið að tryggja þann, sem sparaði féð, þann sem ætti féð. Og í þessu sambandi tel ég að sjálfsögðu eðlilegt, að eigið fé húsnæðismálastjórnar sé tryggt á sama hátt og eigið fé Péturs og Páls, sem þar á hlut að máli. Það, sem ég fyrst og fremst gagnrýndi í þessu sambandi og hv. 12. þm. Reykv. kom einnig inn á, var það, að hin frjálsu innlög í innlánsdeildina hjá húsnæðismálastjórn er ekki gert ráð fyrir í þessu frv. að verði verðtryggð. Mér þykir vænt um, ef hæstv. ráðh. getur bent mér á, að svo sé, en ákvæði um það er ekki að finna í 9. gr. frv., eftir því sem ég get skilið hana.

Í sambandi við það, sem ég sagði um tolla á byggingarefni, kom fram enn talsverður misskilningur hjá hv. 12. þm. Reykv. Hann taldi, að það mundi leiða til óhæfilegrar skriffinnsku.

Ég hefði nú álítið, að það hlyti að minnka mjög skriffinnsku, ef tollar væru afnumdir á slíkum vöruflokki. Það var ekki tillaga mín, að það væru aðeins afnumdir tollar af því byggingarefni, sem fer til íbúðabygginga, alls ekki. Ég benti einmitt á það, að í sambandi við kísilverksmiðju og alúminíumverksmiðju kemur í ljós, að það er talið, að þessar tollaálögur séu baggi á atvinnurekstrinum. Þær eru það vissulega á íbúðabyggingunum og ég sé enga ástæðu til annars en að tollar á öllu almennu byggingarefni, öllum almennum byggingavörum séu beinlínis afnumdir og tel, að í því mundi vera fólgin mikil úrlausn í þessum málum bæði fyrir atvinnuvegina og einnig fyrir allan almenning og þar með minnkaður þrýstingur á kaupgjaldið í landinu. Að sjálfsögðu mundi slíkt koma til góða einnig þeirri fjárfestingu, sem ég tel miður æskilega, en það breytir ekki afstöðu minni í þessu efni, því að slíka fjárfestingu tel ég að beri að takmarka eftir öðrum leiðum.

Ég held, að það hafi þá ekki verið fleira í ræðu hv. 12. þm. Reykv., sem gefur mér tilefni til andsvara. En ég vil sérstaklega láta í ljós ánægju mína aftur yfir því, að hann tók mjög undir það, sem ég hafði að segja um nauðsyn þess, að skipulagsmál byggingariðnaðarins, íbúðarbyggingaiðnaðarins almennt.