06.04.1965
Efri deild: 63. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1173 í B-deild Alþingistíðinda. (1046)

147. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Frsm. 2. minni hl. (Alfreð Gíslason):

Herra forseti. Þetta frv. til 1. um húsnæðismálastofnun ríkisins var ýtarlega athugað í hv. heilbr.– og félmn. N. varð sammála um að gera nokkrar breyt. á frv. og eru þær brtt. á þskj. 401 og fluttar þar í nafni meiri hl. félmn. Ég vil taka það fram, að ég fyrir mitt leyti er samþykkur öllum þeim brtt., sem á þessu þskj. eru. Hins vegar varð ekki fullt samkomulag í n. um afgreiðslu frv. Minni hlutar óskuðu eftir fleiri brtt. við það og flytja nú hvor á sínu þskj. brtt. til viðbótar. Brtt. mínar eru á þskj. 411,og vil ég nú fyrst og fremst gera nokkra grein fyrir þeim.

Eins og kunnugt er, eru meginbreytingar þær, sem um er að ræða í þessu frv. frá gildandi l., til orðnar fyrir samkomulag, sem varð milli hæstv. ríkisstj, annars vegar og verkamannasamtakanna hins vegar í júní 1964. Það samkomulag, sem þá var gert, hafði það meginhlutverk að stöðva verðbólgu og bæta kjör verkamanna. Um það snerist samkomulagið efnislega og þar á meðal samkomulagið um húsnæðismálin. Hæstv. ríkisstj. tók þá á sig skuldbindingu um að beita sér fyrir vissum atriðum til úrbóta í húsnæðismálum. Þær breytingar skyldu hafa þann tilgang annars vegar að létta efnalitlum fjölskyldum að eignast íbúðir, en hins vegar að tryggja nægar og stöðugar íbúðabyggingar í landinu. Hæstv. ríkisstj. hét því í þessu samkomulagi að lækka vexti og haga lánskjörum í samræmi við greiðslugetu alþýðufjölskyldna. Þetta voru þau meginatriði, sem hæstv. ríkisstj. hét að beita sér fyrir í júní 1964. Þar á móti komu svo skuldbindingar frá fulltrúum alþýðusamtakanna, m.a. að á næsta ári eftir að samkomulagið er gert skyldi ekki um að ræða neina hækkun grunnlauna almennt. Ég hef ekki heyrt, að Alþýðusambandið eða verkalýðsfélögin hafi verið vænd um, að þau hafi ekki fyrir sitt leyti staðið við júní samkomulagið. Hins vegar hafa ýmsir bent á og þar á meðal ég, að hæstv. ríkisstj. hafi ekki sem skyldi staðið við þetta samkomulag að sínu leyti. Ég bendi í því sambandi á, að skattaálögur voru óvenjulega þungar á s.l. ári og komu með eindæmum illa niður á fátækum verkamannafjölskyldum. Í öðru lagi má benda á, að hæstv. ríkisstj. beitti sér fyrir því hér á hinu háa Alþingi seint á árinu 1964 að stórhækka söluskattinn með þeim afleiðingum, að dýrtíðar alda reis á ný og verðbólguhjólið fór af stað. Að þessu leyti hefur hæstv. ríkisstj. óneitanlega að nokkru leyti brugðizt því heiti, sem hún gaf og undirritaði 5. júní 1964. Þetta er meginástæðan fyrir því, að ég legg til, að nokkrar breytingar verði gerðar á þessu frv., breytingar, sem telja verður allveigamiklar. Ég tel, að forsendur fyrir því, sem um var samið og alþýðusamtökin gengu inn á í júní 1964, hafi að nokkru leyti brugðizt.

Í frv. er mælt svo fyrir, eins og gert var ráð fyrir í júní samkomulaginu, að lánsupphæð megi nema allt að 280 þús. kr. á hverja íbúð. Þetta var samþ. af báðum aðilum samkomulagsins fyrir 10 mánuðum. Þá ríkti bjartsýni, að ég hygg, bæði hjá hæstv. ríkisstj. og meðal alþýðusamtakanna, bjartsýni um, að takast mundi að stöðva verðbólguna a.m.k. næstu 12 mánuði, en til svo langs tíma var samkomulagið gert. En þetta, eins og ég hef margtekið fram, fór á annan veg. Dýrtíð óx, verðbólgan fór af stað á ný og vísitala hækkaði. M.a. hefur vísitala byggingarkostnaðar á þessu 10 mánaða tímabili hækkað hvorki meira né minna en um 12%. Ef sú lánsupphæð, sem ákveðin var í júní 1964, á að halda gildi sínu, verður hún að hækka nú til samræmis við hækkandi dýrtíð. Það er ég viss um, að vakti fyrir fulltrúum alþýðusamtakanna, að þessi lánsupphæð mætti ekki lækka að tiltölu við vaxandi dýrtíð. Ég legg þess vegna til, að upphæðin 280 þús. kr. verði hækkuð nú í 310 þús. kr. Það samsvarar því og þó tæplega, að lánsupphæðin, hámarksupphæðin, sé hækkuð um 12% til samræmis við vísitölu byggingarkostnaðar. Í samkomulaginu og einnig í frv. er gert ráð fyrir því, að vextir af íbúðalánunum lækki verulega, lækki úr 81/2 og 51/2% niður í 4% . Þetta er í sjálfu sér mikilsvert atriði og þakkarvert, að samkomulag skyldi nást um svo verulega lækkun ársvaxta á lánunum. En við þetta var hnýtt þeirri skuldbindingu, að lánin, þ.e.a.s. afborganir, vextir og kostnaður, skyldu vísitölubundin. Að mínum dómi var mjög áhættusamt fyrirtæki af hálfu alþýðusamtakanna að fallast á þetta. En ég hygg, að meðal fulltrúanna svo og innan ríkisstj. hafi ríkt þessa dagana viss bjartsýni, að nú mundi takast að stöðva verðbólguhjólið a.m.k. næsta árið, en þessar vonir hafa brugðizt, eins og ég tók fram áðan. Dýrtíðin heldur áfram með svipuðu móti og mörg undanfarin ár. Af því leiðir það, að vísitölutenging lánanna er býsna varhugavert ákvæði í lögum þessum. Mér hefur skilizt, að dýrtíð hafi á undanförnum árum hækkað sem svarar 9% árlega. Ef gert er ráð fyrir, að dýrtíðin haldi áfram í svipuðum dúr, þá renna fljótlega í sandinn þeir kostir, sem í frv. felast og þá sérstaklega vaxtalækkunin. Hún verður á örskömmum tíma gerð að engu og síðan tekur við það ástand, að vaxtabyrðin á lántakendum verður miklu hærri en hún hefur nokkru sinni verið til þessa á þessu sviði. Ef gert er ráð fyrir 280 þús. kr. láni með 4% ársvöxtum til 25 ára og ef reiknað er með 9% hækkun dýrtíðarinnar árlega, þá verða raunverulegir vextir af þessum lánum eftir 6 ár ekki 41/2%, heldur 81/2%. Úr því að þessi 6 fyrstu ár eru liðin, fer vaxtabyrðin ört vaxandi og endar á því, að samanlögð vaxtagreiðsla verður margfalt meiri, en eftir þeim kjörum, sem gilt hafa hingað til um lán húsnæðismálastofnunar ríkisins.

Ég held, að ég fari rétt með, að ef gert er ráð fyrir þessu, dýrtíðinni á þennan veg, þá nemi sú vaxtabyrði, sem af þessum kjörum leiðir, um 300 þús. kr. meira, en eftir gildandi reglum. Þetta eru ekki góð kjör og það er því miður engin svartsýni að gera ráð fyrir áframhaldandi verðbólgu. Reynslan hefur kennt okkur að vera bölsýn í þessu efni með réttu. Ég hefði talið fulla ástæðu til með þá reynslu, sem fengin er af verðlagi í landinu s.l. 10 mánuði, að hæstv. ríkisstj. hefði tekið þessi atriði til gaumgæfilegrar athugunar og útreiknings á ný, áður en þetta frv. yrði afgr. frá Alþingi. Ég vil með brtt. minni í þessu efni gera tilraun til að draga nokkuð úr þessari þungu byrði, sem búast má við um vaxtagreiðsluna. Ég legg því til, að einungis árlegar afborganir verði vísitölutryggðar, en hvorki vextir né tilkostnaður. Þetta mundi muna miklu, ef dýrtíðin héldi áfram, svo sem verið hefur og skipta a.m.k. nokkrum hundruðum þús. kr. lántakendum í hag.

Mér voru það vonbrigði í hv. heilbr.– og félmn., að ekki skyldi fást samstaða um einhverja brtt. í þessu efni, annaðhvort þessa, sem ég geri hér, eða einhverja aðra til þess að tryggja það betur, að ársgreiðslur færu ekki úr hófi fram, eins og virðist vera að stefnt nú með þessu frv. og áframhaldandi dýrtíðaraukningu. Ef svo skyldi fara, að þessi till. mín um að takmarka vísitölubindinguna við afborganir einar yrði felld, þá flyt ég til vara aðra till. um það, að heildargreiðsla vaxta og kostnaðar skuli þó aldrei fara fram úr því, sem hún hefði orðið, ef miðað væri við 8 1/4 % vexti án vísitöluhækkunar. Með þessu móti hef ég viljað benda á, að fráleitt væri, að þessi byrði yrði nokkurn tíma þyngri, en verið hefur að undanförnu, að kjörin m.ö.o. gætu ekki orðið miklu verri, en þau hafa verið til þessa dags.

Í sambandi við þá brtt., sem ég gat um áðan, um hækkun hámarkslánsupphæðar úr 280 þús. í 310 þús., vil ég bæta við ákvæði um, að eftirleiðis skuli þessi upphæð breytast samkvæmt vísitölu byggingarkostnaðar. Ég tel, að eðlilegt sé að ganga út frá því, að lánin eigi ekki eftirleiðis að lækka raunverulega og þá er mjög hagfellt að láta þau breytast sjálfkrafa í samræmi við vísitölu.

Ég tel þessar brtt., sem ég hef nú gert grein fyrir, meginatriðið í mínum brtt., þær till., sem ég tel skipta langmestu máli. Aðrar brtt., sem ég flyt, varða minni atriði, sem alls ekki var samið um í júní samkomulaginu. Þó er svo um sum þessara atriða, að ég tel þau skipta allmiklu máli og um sum þeirra furða ég mig á, að gerðar skuli hafa verið breytingar í þeim efnum nú. Ég geri þannig brtt. við 7. gr. t þeirri gr., sem fjallar um útlánareglur .húsnæðismálastjórnar, a–lið, segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Lánin veitast aðeins til byggingar nýrra íbúða, meiri háttar viðbygginga eða til kaupa á nýjum íbúðum, en lán skal þó því aðeins veita, að loforð um lánveitingu hafi verið gefið, áður en hlutaðeigandi byggingarframkvæmd hófst eða kaup á nýjum íbúðum eru gerð.“ Hér er fortakslaust kveðið svo á, að lán megi ekki veita, nema loforð um lánveitingu hafi verið gefið fyrir fram. Nú varð ég þess var á fundum hv. heilbr.– og félmn., að eiginlega enginn aðili taldi æskilegt að framfylgja svo fortakslausu ákvæði. Aðstæður einstakra húsbyggjenda gætu verið þannig, að ekki væri sanngjarnt né réttlátt að framfylgja slíku ákvæði. Samt sem áður vildi meiri hl. n., og ég held, að það hafi einnig verið ósk formanns húsnæðismálastjórnar, að þessu ákvæði yrði haldið svo fortakslausu, sem það er í frv. Ég skildi þó svo, að ekki mundi verða meiningin hjá húsnæðismálastjórn að framkvæma þetta nákvæmlega eftir lögunum, þótt þetta yrði að lögum, heldur hugsaði hún sér þetta sem eins konar skjöld sér til varnar, ef á þyrfti að halda. Ef þetta er rétt skilið hjá mér, finnst mér hér vera ósamræmi á milli. Hvers vegna á að æskja eftir ákvæðum í lögum, sem ekki á að halda? Þetta er að mínum dómi fortakslaust ákvæði. Ég skil það vel, að stundum þarf að gera undantekningar í þessum efnum og er sanngjarnt og óhjákvæmilegt. Og það hygg ég, að allir, sem til þekkja, álíti. Þess vegna vil ég hafa þetta ákvæði í 1. svolítið rýmra. Það mætti orðast með ýmsum hætti, en í minni till. er stungið upp á, að það yrði orðað á þann veg, að í stað „en lán skal þó því aðeins veita, að loforð um lánveitingu“ o.s.frv. komi: „en setja má það skilyrði fyrir láni, að loforð um lánveitingu“ o.s.frv. Hér er sem sagt veitt heimild til hvers sem er í þessum efnum, þannig að ráðherra og húsnæðismálastjórn gætu haft það nokkurn veginn í hendi sinni, hvernig þetta yrði framkvæmt.

Við sömu gr., 7. gr., geri ég aðra brtt., sem að vísu er ekki ýkja mikilvæg ef til vili. En þar segir í c–lið, að lánið skuli greiðast upp á 25 árum með 4% ársvöxtum. Ég legg til, að inn í þennan málslið sé bætt orðum þannig að setningin hljóði svo: „En greiðast síðan á 25 árum eða skemmri tíma, ef lántakandi óskar þess, með 4% ársvöxtum.“ Ég tel rétt, að það komi ótvírætt fram í lögunum, að lántakendum húsnæðismálastofnunar sé heimilt að greiða lánið upp á skemmri tíma, ef þeir verða færir um það siðar meir. Ég tel það ekki sízt mikilsvert, að það sé greinilegt og ótvirætt, ef ekki fást neinar lagfæringar á þeirri þungu byrði, sem virðist samkv. þessu frv. eiga að Ieggja á þessa húsbyggjendur.

Þá flyt ég brtt. við 16. gr. Sú gr. fjallar um útrýmingu heilsuspillandi húsnæðis og um framlag sveitarfélaga og lán ríkissjóðs til þeirra framkvæmda. Í gildandi lögum segir svo, að sveitarfélag leggi fram fé til íbúðabygginga í því skyni að útrýma heilsuspillandi húsnæði og að þá skuli ríkissjóður lána jafn háa upphæð á móti. Þetta er ljóst og ákveðið, að ríkissjóður skuli greiða til jafns við sveitarfélögin til þeirra framkvæmda, sem miða að útrýmingu heilsuspillandi húsnæðis. Þetta hefur ekki alltaf verið svo í lögum. Frá 1958 og kannske fyrr og til 1962 var ákveðin hámarksupphæð, sem ríkissjóði var skylt að láta af hendi rakna í þessu skyni. En 1962 var 1. breytt og þá var þessu komið fyrir eins og það er í dag, að ríkissjóður skuli lána jafnháa upphæð og sveitarfélögin leggja fram. Fyrir þessu munu hafa barizt sérstaklega Sjálfstæðisfl.–menn á Alþingi, og raunar mun þetta hafa verið samþ. af öllum flokkum hér á Alþingi 1962. Nú á að breyta þessu. Nú eru sett inn viss takmörk á lánum ríkissjóðs til útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis. Það á að bæta inn í, að ríkissjóður skuli að vísu lána jafnháa upphæð á móti, en sagt, „eftir því sem fjárlagaheimild hvers árs leyfir.“ Til hvers er þetta sett inn? Greinargerðin segir, að þetta sé sett inn til þess að takmarka. Og hvað þýðir að takmarka? Það þýðir að draga úr. Eftirleiðis ber ríkissjóði ekki samkv. þessu að greiða til jafns við sveitarfélögin, heldur eftir því, sem ákveðið er í fjárl. hvers árs.

Hv. meiri hl. nm. benti á það, að í þessu væri í raun og veru engin takmörkun fólgin, og ef það er þeirra skilningur, sem ég skal ekki draga í efa, hvers vegna vilja þeir þá hafa þetta? Hér er um breyt. að ræða frá gildandi lögum. Ég sé enga ástæðu til að setja þetta inn í, frekar en það var ástæða til þess að setja neitt inn 1962. Ég tel þetta mjög mikilsvert atriði og hafa verið mikla bót gerða á löggjöfinni um þetta efni 1962, þegar ákveðið var, að ríkissjóður skyldi greiða til jafns við sveitarfélögin til útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis.

Ég hef þá gert nokkra grein fyrir þeim brtt., sem ég flyt á þskj. 411, og við þau orð hef ég ekki miklu að bæta. Það væri þó kannske rétt að benda á, bæta við nokkrum orðum í sambandi við vísitölutengingu lánanna, sem er mikilsvert atriði í þessu sambandi. Það er svo, eins og kunnugt er, að útlán hinna ýmsu peningastofnana til húsbygginga og annarra hluta eru ekki bundin vísitölu. Menn fá lán til framkvæmda og borga það í sömu krónutölu, þótt verðbólgan hafi vaxið í millitíðinni. á þessu hafa margir grætt á undanförnum árum og meðal annarra hafa grætt á þessu hinir smáu húsbyggjendur. Fátækir menn, sem hafa brotizt í því að koma þaki yfir höfuð sér og sinna, hafa blátt áfram margir hverjir bjargazt á því, að verðbólga var í landinu. Lánsvextir og lánskjör og öll aðstaða til að byggja var með þeim hætti og hefur verið með þeim hætti og dýrtiðin mikil, að þetta er það, sem hefur orðið mörgum til bjargar, að krónurnar, sem þeir þurftu að borga til baka, voru orðnar minni.

Nú á að taka algerlega fyrir þetta. Smáir, fátækir húsbyggjendur skulu hér eftir ekki hafa leyfi til að græða á verðbólgunni. En samtímis er öllum öðrum leyft að halda áfram að græða á verðbólgunni, þ. á. m. þeim húsbyggjendum, sem innangengt eiga í banka og sparisjóði og aðrar peningastofnanir, en húsnæðismálastofnun til þess að fá lán. Þeir fá að græða áfram á verðbólgunni, hvort sem þeir byggja sér íbúðarhús, verzlunarhús eða nota lánið til annarra framkvæmda. Ég hefði fyrir mitt leyti getað frekar fallizt á að vísitölubinda lán húsnæðismálastofnunar ríkisins, ef um leið hefði verið gerð ráðstöfun til að vísitölubinda alla lánastarfsemi, öll útlán, en það hefur ekki verið gert. Ef ætlunin er hjá hæstv. ríkisstj. og hennar flokkum að koma þessu á smátt og smátt, að verðtryggja lánin í heild í landinu, og hér sé verið að byrja, get ég ekki annað en lagt áherzlu á það, að þá tel ég byrjað á öfugum enda. Það er byrjað hjá þeim, sem efnaminnstir eru í þjóðfélaginu og væntanlega þá einnig endað á þeim ríku. Það liggur heldur ekkert fyrir um það, að hér sé um neina byrjun að ræða og lítur málið enn verr út, ef það er ætlunin til frambúðar að láta efnalitlar fjölskyldur standa undir verðbólgunni í þessum efnum, en alla aðra sleppa. Ég vil mjög beina þeim tilmælum til hv. stjórnarsinna að íhuga þessi mál ofurlítið betur innbyrðis, athuga, hvað hægt er að gera til að draga úr því, sem hér fer aflaga og það er óskynsamlegt að mínum dómi að gera við þá athugun ráð fyrir öðru, en dýrtíðin haldi áfram, að verðbólgan haldi áfram hér næstu árin.