20.04.1965
Neðri deild: 70. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1215 í B-deild Alþingistíðinda. (1066)

147. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Eitt af nýmælum þeim, sem þetta frv. hefur að geyma, er ákvæði um, að öll lán í húsnæðismálastofnuninni til íbúðabygginga skuli hér eftir vera vísitölubundin. Um þetta eru fyrirmæli í 7. gr. frv. Í C–lið þeirrar gr. segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Hver ársgreiðsla, afborgun, vextir og kostnaður, skal hækkuð eða lækkuð, eftir því sem við á, samkv. kaupgreiðsluvísitölu.“ Ég tel það óeðlilegt, að slík kvöð verði lögð á þá, sem taka lán hjá húsnæðismálastofnun ríkisins, meðan þetta er ekki orðin algild regla í viðskiptum manna í þjóðfélaginu. Það er kunnugt, að mjög margir aðrir, bæði einstaklíngar og félög, fá lán til framkvæmda, m.a. til húsbygginga, án þess að á þá hafi enn verið lagðar nokkrar slíkar kvaðir. Lán þessi fá þeir hjá bönkum landsins og öðrum stofnunum, eins og kunnugt er. En mér er sagt, að þetta ákvæði um að vísitölutryggja öll lánin í húsnæðismálastofnun sé þegar komið til framkvæmda. Stofnunin mun hafa veitt á miðju ári 1964 um það bil 100 millj. kr. samtals í lánum til íbúðabygginga og um næstliðin áramót nálægt 80 millj., og ég hef fengið þær upplýsingar, að þetta ákvæði um vísitöluuppbót á afborganir og vexti af þeim lánum hafi verið í þeim lánasamningum. Öll þessi lán hafa verið veitt með þessari kvöð. En mér er ekki ljóst, hvar er að finna lagaákvæði, sem þessi framkvæmd er byggð á og ég vil óska upplýsinga frá hæstv. félmrh. um það. Það getur verið, að mér hafi sézt yfir þetta, en ég vil sem sagt mjög óska eftir því, að hann veiti nú upplýsingar um það, hvar lagastafur er, sem þessi framkvæmd nú að undanförnu hefur verið byggð á.