20.04.1965
Neðri deild: 70. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1215 í B-deild Alþingistíðinda. (1067)

147. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Hv. 1. þm. Norðurl. v, spurði, hvaðan húsnæðismálastjórn eða ríkisstj, hefði komið heimild til þess að breyta vaxtakjörum á húsnæðismálalánum við síðustu úthlutanir húsnæðismálastjórnarinnar. Að nákvæmlega athuguðu máli taldi félmrn., að þessa heimild væri að finna í l.. frá 1957. í 6. gr. segir, með leyfi hæstv. forseta:

„A–lánin skulu vera jafngreiðslulán með 7% ársvöxtum til allt að 25 ára, B–lánin skulu vera með 51/2 % ársvöxtum og jöfnum afborgunum til allt að 15 ára, en að öðru leyti með hliðstæðum kjörum og vísitölubundnu verðbréfin. Enn fremur skulu lántakendur greiða 1/4 % ársvexti af þeim A–lánum, sem veitt eru af andvirði seldra bankavaxtabréfa, lánum byggingarsjóðs ríkisins og B–lánum, eins og þessi bréf eru á hverjum tíma, til greiðslu kostnaðar við starfrækslu veðdeildarinnar í þágu byggingarsjóðs.“

En síðan segir í F–lið greinarinnar:

„Heimilt er húsnæðismálastjórn að breyta vaxtakjörum og lánstíma á nýjum lánum, að fengnu samþykki ríkisstj.“