20.04.1965
Neðri deild: 70. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1219 í B-deild Alþingistíðinda. (1073)

147. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Ég skal víkja fyrst að því, sem hæstv. ráðh. nefndi síðast. Hann segir, að þetta ákvæði í 7. gr. frv. um, að lánsloforð skuli fengið, áður en bygging er hafin, sé til þess að hafa hemil á byggingarstarfseminni. M.ö.o.: það á að hindra menn í að fara að byggja. Ég nefndi dæmi um það, að maður hefði farið að byggja og ekki talið sig þurfa á slíku láni að halda, en svo hefðu fjárhagsaðstæður hans breytzt og hann þyrfti þá að sækja um lán og ég spurði hæstv. ráðh. beint: Á maðurinn þá aldrei að fá lán út á þetta hús? En hann kom sér hjá því að svara því. Ég nefndi, hvort ekki væri nóg að hindra þennan mann í að fá lán eitt ár, en svo gæti hann komið til greina á næsta ári þar á eftir, en hæstv. ráðh. kemur sér hjá að svara því. Hver hefur óhag af því, að sú regla yrði tekin upp, að þeir, sem hafi ekki loforð fyrir láni, þegar þeir hafa byggt, verði að biða? Það er þó annað, en að neita þeim ákveðið um lán út á þetta hús um alla tíð. Í hvers þágu á það að vera? Og ég óska eftir, að hæstv. ráðh. svari því, hvort það á að skilja þetta ákvæði frv. þannig, að slíkur maður fái aldrei lán út á húsið sitt, af hann hefur byrjað á botnplötunni, áður en hann fékk lánsloforðið? Ég tel óhjákvæmilegt að fá úr þessu skorið strax. Um hitt skal ég vera fáorður, sem hæstv. ráðh. vék hér að, að hagur húsbyggjenda yrði miklu betri, en hann hefði nokkurn tíma verið, og nefndi hann það, sem fyrr hefur heyrzt og sézt frá hv. stjórnarflokkum í því efni, að launin hafi hækkað svo mikið, nú sé þeim borgið, þegar lánsupphæðin sé komin upp í þetta mark og sé því betri hagur manna nú en var áður. Launin hafa þá orðið að hækka það mikið, að menn hafi getað lagt fé til hliðar til þess að byggja fyrir, er það ekki? Þeir hljóta að hafa fengið þá launahækkun eftir þessu að dæma, að nú geti þeir lagt verulega af laununum í bygginguna, þess vegna séu þeir betur staddir nú en var áður. En er þetta staðreynd? Hafa launin hækkað þannig?

Samkv. skýrslum Hagstofunnar nú í marz er framfærslukostnaður vísitölufjölskyldunnar tæp 100 þús. kr. á ári, þegar húsnæðiskostnaðurinn er ekki talinn með. Þegar húsnæðiskostnaðurinn er ekki talinn með, er framfærslukostnaðurinn tæp 100 þús. kr. yfir árið. En hvað eru laun verkamanna á þessum tíma? Þau hækkuðu 1. marz, og ég skal taka hækkunina með, þessi 3%, sem þau hækkuðu þá. Þau eru í 1. taxta Dagsbrúnar 83.600 kr. yfir árið fyrir 8 stunda vinnudag alla virka daga. Það vantar 16 þús. kr. til, að launin dugi fyrir lífsnauðsynjunum, án þess að nokkur eyrir fari í húsnæðiskostnað og af þessum launum telur hæstv, ráðh., að launamennirnir geti lagt í byggingu. Ef hann gerir sig ánægðan með þetta, þá er eðlilegt, að hann telji hag þessara húsbyggjenda núna góðan. En ég held, að fólkið, sem stendur í þessum byggingum og er með 83 til 90 þús. kr. árslaun fyrir 8 stunda vinnudag alla virka daga ársins, leggi ekkert í byggingu af launum sínum og hefði þess vegna þurft að fá meiri hækkun á lánum, en þessi 130 þús., sem gerir þó ekki nema hálfs annars árs verðbólguhækkun á meðal íbúð. Og þetta held ég, að séu nokkurn veginn glöggar tölur um það og verði ekki hraktar, að það er ekki batnandi hagur húsbyggjenda með þessu frv., þó að hann verði betri ,en hann var í fyrra. Það er öðru nær.