26.04.1965
Efri deild: 71. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1258 í B-deild Alþingistíðinda. (1088)
187. mál, lausn kjaradeilu atvinnuflugmanna
Björn Jónsson:
Herra forseti. Þó að hér hafi verið haldnar ágætar ræður bæði af hv. 9. þm. Reykv. og hv. 6. þm. Sunnl., sem ég er sammála að flestu leyti, vil ég þó skýra afstöðu mína til þessa máls með nokkrum orðum og það raunar því fremur sem ég er þeim ekki að öllu leyti sammála um skilgreiningu á þeim hvötum, sem ég hygg að liggi að baki þessu frv. og má raunar segja, að ég sé þar að sumu leyti meira sammála hæstv. ráðh., sem hér var að tala, sérstaklega því, sem hann sagði um það í sinni ræðu og í raun og veru varpaði að mínu viti talsvert réttara ljósi á þetta mál, en fram hefur komið áður og kem ég að því síðar.
Ég held, að ræða hv. 9. þm. Reykv. hafi verið mjög þörf lexía fyrir þá, sem a.m.k. eru lítið kunnugir kjaramálunum, þörf lexía um það, hvernig ferill þessarar hæstv. ríkisstj., sem nú er við völd í landinu, hefur verið í afskiptum hennar af kjaramálum og vinnudeilum. Það er vissulega rétt, sem kom fram í ræðu hv. 9. þm. Reykv., að það hafa ekki aðeins verið brotin þau skýlausu loforð, sem gefin voru við upphaf viðreisnarinnar um, að atvinnurekendur sjálfir verði að standa ábyrgir gerða sinna í samningum við verkalýðssamtökin og þeir fengju ekki a.m.k. viðstöðulaust að velta öllum þeim byrðum, sem kjarasamningar legðu þeim á herðar, yfir í verðlagið og fengju þannig náð raunverulega aftur því, sem um væri samið í kjarasamningum. Það hefur ekki verið aðeins um að ræða, að hæstv. ríkisstj. hefur algerlega brotið þetta loforð og reynzt næsta fundvís á aðferðir til þess að hjálpa atvinnurekendum í landinu til þess að ná aftur þeim kjarabótum, sem hefur verið samið um.
Hæstv. ráðh. var að tala hér um áðan, — og ég get ekki láð honum það, þótt hann yrði dálítið sár yfir ræðu hv. 9. þm. Reykv., — var að tala um það, að viðreisnin hefði gengið svo vel, að það hefði reynzt grundvöllur fyrir auknum kröfum og bættum kjörum. Það hefði verið dálítið öðruvísi, heldur en í tíð vinstri stjórnarinnar, þegar dýrtíðaraldan hefði risið og hefði verið að kaffæra öll lífskjör almennings í landinu. Þessi dýrtíðaralda, sem hann á við, mun vera 17 vísitölustiga hækkun, sem stóð til, þegar vinstri stjórnin var að fara frá, þ.e.a.s. þau vísitölustig höfðu helmingi minna gildi en þau vísitölustig, sem við nú miðum við, þannig að þarna var raunverulega um að ræða 8–9 stig. En í tíð núv. ríkisstj. hefur vísitala vöru og þjónustu nærri því tvöfaldazt. Á matvörum hefur vísitalan hækkað um 205 stig og vörum og þjónustu um 92 stig. Og útkoman úr þessu hefur verið sú, að launakjör a.m.k. lægst launaða fólksins í landinu, verkamanna, hafa versnað úr því að standa í vísitölunni 100 1959 og eru komin niður um 96 stig núna. Það eru kjarabæturnar, sem almenningur í landinu hefur fengið hjá viðreisninni. Og það er til marks um það, hvernig þessi hæstv. ráðh. meðhöndlar sannleikann, þegar hann er að reyna að halda því fram, að kjörin hafi batnað mikið á þessum tíma.
En út í þetta ætlaði ég annars ekki að fara, heldur aðeins að ræða frekar um, hvernig þessi viðskipti ríkisstj. og stéttarsamtakanna í landinu hafa verið. Þar hefur sem sagt ekki aðeins verið um að ræða þessi óbeinu afskipti í sambandi við aukningu dýrtíðarinnar, heldur hefur verið um að ræða bein afskipti og það met í beinum afskiptum af kjaramálunum og að minni hyggju hefur hæstv. ríkisstj. sett þar miklu meira en íslandsmet, því að mörg þessara afskipta hafa verið þess eðlis og hafa verið það tíð, að ég hygg, að varla sé til fyrir því fordæmi meðal lýðfrjálsra þjóða. Þessi afskipti hæstv. ríkisstj. hafa fyrst og fremst verið fólgin í því að rifta þeim réttargrundvelli, sem íslenzk stéttarfélög hafa nú starfað á í meira en fjórðung aldar, — réttargrundvelli, sem ekki var settur af verkalýðshreyfingunni, heldur af afturhaldssamasta hluta íslenzku borgarastéttanna og það er til marks um það, hvert stefna þessarar hæstv. ríkisstj. hefur leitt í þessum efnum, að hún skuli ekki lengur geta sætt sig við þann réttargrundvöll, sem þannig var settur. Það er hverjum ljóst eða ætti a.m.k. að vera það hverjum þeim, sem hlustaði á ræðu hv. 9. þm. Reykv., að þessi afskipti hafa verið á þann veg, að löglegir samningar, sem hafa verið gerðir á þeim eina réttargrundvelli, sem verkalýðssamtökin í landinu eiga að starfa eftir samkv. landsins lögum, hafa verið ógiltir. Það var byrjunin. Lögleg verkföll í alla staði í samræmi við ákvæði gildandi laga hafa verið bönnuð. Gerðardómar hafa verið hvað eftir annað lögþvingaðir. Tímabundin vistarbönd hafa verið reynd á heilum starfsstéttum. Og loks hefur svo verið reynt að festa kaupgjald lægst launuðu stétta þjóðfélagsins, eins og var reynt í nóv. 1963. Þó að það reyndar mistækist, þá var söm gerðin hæstv. ríkisstj. þá. Þar átti að vísu að vera um tímabundna ráðstöfun að ræða, en það lá vel rökstuddur grunur á því, að þessi tímabinding ætti aðeins að vera til reynslu og lögin ættu raunverulega að gilda til frambúðar. Og þessi rökstuddi grunur hefur fyrst og fremst byggzt á stöðugum hótunum þessarar hæstv. ríkisstj. um gerbreytingu á vinnulöggjöfinni, sem hefur verið haldið uppi í mjög ríkum mæli á valdatíma hennar og með geysilegum áróðri, sem blöð hæstv. ríkisstj. hafa haldið uppi fyrir því, að verkföll væru algerlega úrelt og óhæf baráttuaðferð. Það breytir ekki neinu um þetta, þó að þessi áróður og þessar hótanir hafi nú hljóðnað svolítið um sinn, enda var ríkisstj. þannig sett niður í nóvember 1963, að hún hefur ekki borið sitt barr í þessum efnum síðan, þ.e.a.s. þangað til núna, að virðist vera að sækja í sama horfið fyrir henni og áður.
Ég held, að þetta frv. verði ekki rétt metið af neinum, hvorki af verkalýðssamtökunum né öðrum, nema þessi forsaga sé einmitt höfð í huga og ég held, að það sé bæði eðlilegt og nauðsynlegt, að reynslan bæði af tilhneigingum hæstv. ríkisstj., sem svo berlega hafa sýnt sig og verklegum æfingum hennar í ofbeldisaðgerðum gegn verkalýðshreyfingunni sé höfð í huga, að það sé haft í huga í hvert skipti, sem þessi tilhneiging hæstv. ríkisstj, til þess að svipta stéttarsamtökin í landinu lögskipuðum réttindum lætur á sér bæra.
Það er sagt, að þessu frv. sé eingöngu beint gegn atvinnuflugmönnum. Ég er ekki á því, að svo sé og ég er ekki einu sinni á því, að svo sé, að þessu frv. sé fyrst og fremst beint gegn þeim. Reynslan sannar nefnilega, að sú hætta er á ferðum, að það verði ekki látið staðar numið við þær stéttir, sem taldar eru tiltölulega vel launaðar, eins og flugmenn eru alveg vafalaust. Það þykir aðeins hentugt núna að hefja árásirnar einmitt á þessa stétt, vegna þess að hæstv. ríkisstj. álítur eða ímyndar sér, að hún njóti ekki í sinni kjarabaráttu og jafnréttisbaráttu við erlenda stéttarbræður sína almennrar samúðar. Þess vegna þykir hentugt að skapa fordæmið á þessu sviði.
Nei, sú hætta er vissulega til staðar og ég vil undirstrika það, sem hv. 9. þm. Reykv. sagði um þetta, — sú hætta er til staðar, að síðar verði slíkar aðgerðir notaðar sem fordæmi til réttlætingar við það að svipta jafnvel lægst launuðu stéttirnar grundvallarréttindum sínum. Og það ætti reyndar öllum að vera ljóst, að ef einhver ákveðin laun eiga að skapa markalínuna milli réttinda eða réttindasviptingar, er erfitt að setja þeim mörk. Eða vill kannske hæstv. landbrh. upplýsa það, hvar hann telur þau mörk vera? Hverjir eiga að vera réttindamegin og hverjir eiga að sæta ofbeldinu, ef launin eiga að ráða? Nei, þessi ferill hæstv. ríkisstj. í þessum málum er vissulega ekki slíkur, að þeir, sem þekkja hann af eigin reynslu, klökkni neitt um hjartað, þegar ekki hvítþvegnari engill, en þessi hæstv. gerðardómsmálaráðh. er kemur fram og reynir að hafa fögur orð um þessa viðbótarlögþvingun, sem hann er að reyna að knýja hér fram á Alþ. Og ég held a.m.k., að enginn hv. þdm. klökkni neitt sérstaklega, þó að þessi hæstv. ráðh. sé að reyna að halda því fram, að hann sé að bjarga áliti Loftleiða eða jafnvel sjálfum sóma þjóðarinnar með þessu, því að hér er vissulega ekki efnt til neinna slíkra bjargráða, hvorki til þess að bjarga álíti Loftleiða né þjóðarsóma. Eða halda menn e.t.v., að hlutafélagið Loftleiðir vaxi eitthvað í álíti úti í hinum stóra heimi, þó að þeir íslenzku flugstjórar og flugmenn, sem eru af íslenzku bergi brotnir og starfa í þess þjónustu, séu sviptir mannréttindum eða hróður þessa félags vaxi, þó að flugmönnum verði ófrjálsum tildæmd lakari kjör, en jafnvel botnfallið á erlendum vinnumarkaði í flugþjónustu lætur bjóða sér? Eða halda menn, að það sé til sóma fyrir Loftleiðir eða fyrir Íslendinga yfirleitt, að t.d. lélegur aðstoðarflugmaður, — ég vil ekki segja úr botnfallinu á ameríska vinnumarkaðinum, — aðstoðarflugmaður á Rolls Royce 400 hafi 1/3 hærra kaup en íslenzkur flugstjóri, sem ber alla ábyrgð á flugfari, áhöfn og farþegum?
Svo er hæstv. ráðh. að tala hér um skapgerð íslenzkra flugmanna, þeir væru nú ekki á því að gefast upp. Ég spyr: Hafa nokkrir frjálsir menn slíka skapgerð, dugandi menn, að þeir láti bjóða sér slíka hluti? Nei, slíkar aðferðir sem hér er verið að reyna eru vissulega ekki til neins sóma, hvorki fyrir Loftleiðir né íslenzku þjóðina, heldur til vansæmdar. Og það er ekki annað sýnt en frv. sé m.a. ætlað að tryggja það, að íslenzku flugmennirnir geti ekki fengið hliðstæð laun við það, sem erlendir stéttarbræður þeirra njóta, því að í 3. gr. frv. er svo ákveðið, að þeir skuli fá laun með hliðsjón af kjörum annarra sambærilegra launþega hér á landi. Ég vil nú biðja hæstv. ráðh. um skýringar á þessu, hverjir þessir sambærilegu launþegar eru hér á landi. Mér er nefnilega ekki kunnugt um það, að nein störf sambærileg við flugstjórn á Rolls Royce 400 séu unnin hér á landi. Ef eitthvert réttlæti hefði átt að vera í þessum gerðardómi í grundvellinum, sem hann á að byggjast á, hefði vitanlega átt að miða við hliðstæð störf hjá erlendum flugfélögum, vegna þess að það eru þær einu hliðstæður, sem við höfum við að miða. Það fer því fjarri, að þessi gerðardómur, sem meiningin er að kveða hér upp, eigi að tryggja jafnrétti íslenzkra flugmanna við útlendinga, ekki einu sinni jafnrétti íslenzkra flugmanna við þá útlendinga, sem hjá Loftleiðum t.d. kunna að vinna. Það er greinilegt, að þar á að vera mismunun á.
En það má kannske spyrja: Fyrst sómanum og álítinu verður ekki bjargað með þessu frv., bjargar það þá ekki fjárhag Loftleiða? Hæstv. ráðh. sagði um verkfallið í sinni fyrri ræðu, að tjónið, sem orðið væri af verkfallinu, væri ómælanlegt, það væri nú þegar orðið ómælanlegt. Það eru nokkuð stór orð. Ég efast ekkert um, að þetta tjón muni vera orðið mikið og eigi eftir enn að aukast. En á siðari ræðu hans virðist mér a.m.k., að kröfur flugmannanna, sem hljóta að vegast á móti því tjóni, sem Loftleiðir verða fyrir af sjálfu verkfallinu, séu ekki ómælanlegar, því að þar munar aðeins 7–8 þús. kr. á mánuði fyrir tiltölulega fáa menn og getur þess vegna ekki, jafnvel þó að þau boð ein, sem þeim nú hafa verið boðin, væru lögfest, sem verður að telja ólíklegt að yrði gert í gerðardómi, þótt ekki sé gott um það að segja, — getur þar ekki verið um að ræða neinar þær upphæðir, sem geta bjargað Loftleiðum á nokkurn hátt fjárhagslega séð. Málið getur þess vegna ekki snúizt um það, það er útilokað, að félag, sem skilar árlega mörgum tugum millj. í hreinan gróða, ekki aðeins stórkostlegar afskriftir, heldur einnig í beinan, glerharðan gróða, geti dregið svo ákaflega mikið um þessar upphæðir, sem þarna er um að tefla. En jafnvel þó að svo væri, að það tækist að halda kjörum íslenzku flugmannanna eitthvað neðar, en almennt gerist meðal erlendra stéttarbræðra þeirra, verður þó líka að gæta að því, að okkar íslenzku flugmenn, sem a.m.k. margir hverjir og kannske flestir eru taldir afbragðsvel færir í sinni grein. Þeir menn eiga annarra kosta völ um atvinnu hjá öðrum flugfélögum í veröldinni heldur en þessu, og ég trúi því ekki, að þeir muni láta neinn gerðardóm fæla sig frá því að taka þau laun, sem menntun þeirra réttlætir. Og ef svo færi, ef stórkostleg mismunun yrði þarna lögþvinguð, fæ ég ekki betur séð en Loftleiðir yrðu þannig settar, að þær yrðu að meira eða minna leyti að byggja á erlendum áhöfnum á flugvélum sínum og yrðu þá auðvitað að gjalda þau laun, sem annars staðar tíðkast.
En það er annað, sem er rétt að ganga ekki alveg fram hjá í þessu sambandi og það er það, hvaða verkefni hlutafélagið Loftleiðir hefur sett sér, hvaða völl það hefur haslað sér í atvinnulífinu. Ég sé ekki betur, en það hafi valið sér það hlutskipti að keppa á erlendum vettvangi í loftferðum við erlend auðfélög og við erlend flugfélög. Og mér þykir afskaplega ólíklegt, að þeir hyggnu menn, sem hafa byggt upp þetta ágæta félag, hafi reiknað með því, að þeir nytu einhverra sérstakra sérréttinda í sínum rekstri, þeir yrðu ekki að búa við alþjóðleg rekstrarskilyrði með sínar flugvélar og það jafnt með laun til áhafnanna og annað og að þeir hafi reiknað með því, að þeir gætu fengið meira eða minna af ófrjálsu vinnuafli, það held ég, að geti ekki átt sér stað. Ég held, að þeir hafi þvert á móti hlotið að reikna með því, að þeir yrðu að gjalda hliðstæð laun sínum íslenzku flugmönnum og flugvélaáhöfnum yfirleitt eins og annars staðar tíðkast. Og ég held, að það a.m.k. væri ekki til neins sérstaks sóma, hvorki fyrir þetta félag né fyrir íslendinga, ef samkeppnin af hálfu þessa félags gæti því aðeins tekizt, að á þessu þyrfti að byggja. Það væri þjóðarskömm.
Nei, ég held, að við getum alveg strax strikað yfir þær röksemdir, að þetta frv. bjargi álíti eða fjárhag Loftleiða. Ég held, að það séu svo fráleitar röksemdir, að það sé ekki sæmandi, jafnvel ekki fyrir hæstv. ráðh., að bera þær fram. Og þegar að þessu er gætt, hljóta böndin að fara að berast að því, að hvatirnar, sem liggja að baki þessu frv., séu ekki alveg jafngöfugar og hæstv. ráðh. vill láta. Við skulum athuga örlítið, hvaða hvatir þetta geta verið. Hæstv. ráðh. kom hér með eina — ja, ég veit ekki, hvort það átti að kalla það tilgátu, a.m.k. voru það dylgjur í fyrri ræðu hans, sem hann þó dró ofurlítið í land með í þeirri síðari, að gerðardómurinn eða frv. væri nú eiginlega þess vegna borið fram, að flugmenn vildu endilega gerðardóminn. Hann sagði í seinni ræðunni, að innst inni í hjarta sínu vildu þeir hann og verð ég að segja, að hann er með meiri sannfæringu og hefur haft betra tækifæri til þess að skoða bæði hjörtun og nýrun í flugstjórunum, ef hann getur fullyrt þetta. En ég verð að segja það, að það er ljót ásökun, sem hæstv. ráðh. hefur í frammi gagnvart félögunum í Félagi ísl. atvinnuflugmanna og félaginu sjálfu, ef hann er að reyna að koma því inn hjá mönnum, að í raun og veru hafi þeir ekkert meint með þessari baráttu sinni, þeir vilji bara láta gerðardóminn skera úr, þeir vilji ekki hafa frjálst stéttarfélag, þeir vilji láta beita stéttarfélag sitt lögþvingunum. Og ég verð að segja það, að þessi ásökun er alveg einstaklega ótuktarleg og illkvittnisleg, ef hæstv. ráðh. getur ekki sannað hana. Og ég ætla a.m.k. að vona það, að flugmennirnir og Félag ísl. atvinnuflugmanna hreinsi sig af þessum óhróðri, sem hæstv. ráðh. er að bera á það, áður en málið fer út úr þessari hv. d. Og ef svo færi, að þessu frv. yrði vísað til n., vil ég skora á n. að ganga úr skugga um það, hvort þessi orð eða þessar dylgjur hæstv. ráðh. hafa við nokkuð að styðjast eða ekki. Og ég vil ekki trúa öðru, en stéttarfélagið Félag ísl. atvinnuflugmanna, geti fullkomlega hreinsað sig af þeim svívirðingum, sem ráðh. hefur hér í frammi gagnvart því.
Ég held, að við getum þá strikað líka yfir þá ástæðu fyrir flutningi þessa frv., að það séu atvinnuflugmennirnir sjálfir, sem séu þar að verki og séu á bak við tjöldin að reyna að ýta hæstv. ríkisstj. út í það að skipa lögþvingaðan gerðardóm í máli þeirra. Og satt bezt að segja vil ég einnig segja það, að ég hef ekki neina trú á því, að Loftleiðir vilji raunverulega þessa þvingunarleið eða hafi æskt hennar á nokkurn hátt af ríkisstj. til þess að siga henni á starfslið sitt. Ég vil ekki trúa því á Loftleiðir heldur. Mér finnst það ekki vera líklegt, að jafnhyggnir menn a.m.k. og hafa stjórnað því félagi og eins og rekstur þess hefur sýnt sig, þeir beri fram óskir um það, að starfsmenn þeirra séu sviptir mannréttindum, eins og nú á að gera gagnvart flugmönnunum. Ég held, að ástæðunnar fyrir þessu frv. sé annars staðar að leita og ég held, að leitin að þeirri ástæðu sé ekki mjög langsótt. Loftleiðir eru nefnilega ekki sjálfráður samningsaðili við Félag ísl. atvinnuflugmanna. Það er meðlimur í Vinnuveitendasambandi Íslands og Vinnuveitendasambandið fer, eftir því sem ég bezt veit, algerlega með samninga fyrir þess hönd og ræður öllum aðgerðum í sambandi við það. Ég er þá ekki að segja neitt ljótt um þann félagsskap, Vinnuveitendasamband Íslands, þótt ég hafi haft nokkur skipti við það. En tvennt er þó kunnugt um þann félagsskap og það er andstaða hans yfirleitt við allar kjarabætur, hverju nafni sem nefnast og hvaða launastétt sem á í hlut og í öðru lagi er þjóðkunn ást þessa félagsskapar á hvers konar þvingunaraðgerðum í sambandi við vinnudeilur og verkföll. Það er áreiðanlega ekki í fyrsta skipti núna, sem þessi hæstv. ríkisstj. gerist handbendi þessa félagsskapar og þessara sjónarmiða þess. Nú er svo ástatt, að Vinnuveitendasamband Íslands stendur andspænis mikilli sókn af hálfu verkalýðshreyfingarinnar, sem hyggst á vori komanda rétta hlut sinn eftir 5 ára viðreisn, eftir 5 ára tímabil ekki aðeins algerrar kynstöðu í kjaramálunum, heldur hreinnar afturfarar. Undir þessum kringumstæðum skoðar Vinnuveitendasamband Íslands það áreiðanlega hreinan voða í þessari baráttu, ef það gerðist nú, að tiltölulega vel launuð starfsstétt fengi kjarabætur. Og ég held, að þarna sé í raun og veru komin ástæðan fyrir því, hvers vegna Vinnuveitendasambandið með aðstoð ríkisstj. ræðst nú sérstaklega gegn flugmönnunum, en það eru ekki áhyggjurnar út af Loftleiðum út af fyrir sig, heldur áhyggjurnar út af komandi átökum við verkalýðshreyfinguna, við lægst launaða fólkið í landinu. Ég held, að um þetta þurfi engra frekari vitna við eftir síðari ræðu hæstv. landbrh., því að hann sagði, að það væri hreinn voði fyrir okkar þjóðfélag, ef það væri farið að gera samanburð við atvinnuflugmennina, ef slíkar hækkanir sem hér væri um að ræða yrðu að raunveruleika og þeir láglaunuðu færu að spyrja: Ef þetta er hægt, er þá ekki líka hægt að hækka við okkur? — Ég held, að þarna séum við alveg komnir að kjarna málsins. Það er þetta, sem um er að ræða. Það er ekki verið að deila um þessar 7–8 þús. kr. til 15–20 flugmanna eða flugstjóra hjá Loftleiðum. Það er verið að deila um miklu stærri hluti.
Ég held, að Vinnuveitendasambandið og ríkisstj. ætli sér að vinna þrennt í sambandi við þetta frv. og þessa vinnudeilu. Í fyrsta lagi að hindra, að fordæmi um kaupkröfur skapist, áður, en samið verður við verkalýðsfélögin. Í öðru lagi að skapa enn þá eitt fordæmi um lögþvingunaraðgerðir, sem e.t.v. væri svo hægt að beita í þeirri viðureign. Og í þriðja lagi og síðast, en ekki sízt að sanna launafólkinu í landinu það, að samtök þess megi sín lítils gegn sameinuðu afli bæði ríkisstj. og vinnuveitenda. Ég held, að það sé þetta, sem um er að ræða í þessum málum og það er þessara erinda, sem ríkisstj. er núna að ganga. Þó að hún hafi atvinnuflugmennina á vörunum, vegna þess að hún ímyndar sér, að almenningur sé í andstöðu við þeirra kröfur, er hugurinn bundinn við glímuna, sem er fram undan við lægst launuðu stéttirnar, sem starfa í landinu, við verkamennina. Það eru þess vegna áreiðanlega í raun og veru ekki síður þeir, sem geirinum er nú stefnt að með þessu frv., ekki síður, en að þeim, sem stýra glæsilegustu farkostum þjóðarinnar við mikinn orðstír. Og það er þessi ástæða, sem út af fyrir sig mundi nægja mér alveg ein til þess að vera í fullri andstöðu við þetta frv.
Ég er að vísu á því varðandi það, að hækkanir til flugmanna sköpuðu eitthvert fordæmi fyrir verkamenn, það held ég, að sé algerlega skakkt. Störf þessara stétta eru algerlega ósambærileg og staða þeirra alla vega og rök verkamannasamtakanna fyrir kauphækkunum eru áreiðanlega svo sterk, að við þurfum ekki að sækja neinn samanburð til flugstjóra eða flugmanna til þess að geta staðið á okkar kröfum. En ég veit, hver tilhneigingin er í þessum efnum. Ég veit, hver hætta er á því, að fordæmið verði notað gegn verkamönnum, og þess vegna fyrst og fremst er ég á móti því. Ég get alveg sagt hæstv. ráðh. það, að ég á ekkert undir flugmönnum og hef enga ástæðu til þess að koma mér neitt í mjúkinn hjá þeim, og afstaða mín mótast ekki af því. Og ég held, að áreiðanlega megi segja það sama um þá tvo hv. þm., sem hér töluðu gegn frv. á undan mér. Það er ekkert slíkt, sem okkur er í huga. En sú ástæða kemur svo auðvitað líka til og er líka veigamikil, að þegar grundvallarréttindi eru annars vegar, skiptir engu máli, hver í hlut á eða hvaða daglaun hann heimtir að kveldi síns vinnudags. Þá eiga allir jafnan rétt á því, að með þeirra mál sé farið að réttum landsins lögum, en ekki ofbeldislögum eins og þeim, sem hér á að reyna að þvinga í gegn.