26.04.1965
Efri deild: 71. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1273 í B-deild Alþingistíðinda. (1091)

187. mál, lausn kjaradeilu atvinnuflugmanna

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Ég hefði nú alveg eins getað látið það bíða að taka til máls við 2. umr., en það er aðeins eitt atriði, sem ég vil ekki láta ósvarað nú strax, úr ræðu hv. 6. þm. Sunnl.,og undrar mig það, að hann, sem var með loftferðalögin fyrir framan sig og las upp úr þeim, vill láta að því liggja, að það sé ásökunarefni á rn, að hafa ekki gefið út reglugerð, sem er ákvarðandi um hvíldartíma flugverja, þar sem það stendur beinlínis í greininni, að þessar reglur skuli setja að fengnum till. frá flugverjum, flugfélögum og flugmálastjóra. Eins og ég sagði hér áðan, verður þessi reglugerð ekki sett, fyrr en þessar till. koma og till. hafa einfaldlega ekki komið, vegna þess að enn hefur ekki samizt um þetta milli flugverjanna og flugfélaganna og ég er hér um bil sannfærður um það, að einmitt nú í þessari deilu hefur verið rætt um þetta og er ákaflega nauðsynlegt, að till. komi um þetta og samkomulag geti fengizt um það, því að það er mjög þýðingarmikið og gæti vissulega orðið til þess, að flugmenn gætu fengið hærra kaup, ef þessum málum væri vel fyrir komið. En það er ekki á valdi rn. að taka fram fyrir hendurnar á þessum aðilum. Rn. bíður eftir till. frá þeim, því að það segir: „að fengnum till.“ skal þetta gert og þetta er ég alveg sannfærður um, að hv. 6. þm. Sunnl. skilur. Það, að málið sé komið í óefni vegna aðgerða ríkisstj., er ekki svara vert.

Að öðru leyti ætla ég að svara því, sem kann að vera ósvarað, við 2. umr. málsins. Eins og ég sagði, þá legg ég áherzlu á, að málið komist í n. í kvöld, svo að tími sé til að athuga frv., og læt þess vegna bíða frekari umr. þangað til seinna.