26.04.1965
Efri deild: 71. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1289 í B-deild Alþingistíðinda. (1094)

187. mál, lausn kjaradeilu atvinnuflugmanna

Frsm. meiri hl. (Jón Þorsteinsson):

Herra forseti. Það eru nokkur atriði, sem ég vildi leyfa mér að gera aths. við, einkanlega úr ræðu hv. 4. þm. Norðurl. e., sem var frsm. fyrir álíti minni hl.

Í nál. minni hl. segir, að flugmenn hafi lýst því yfir, að þeir muni ekki taka laun fyrir störf sín nema samkv. frjálsum samningum við atvinnuveitendur sina. Þetta er hér ritað í nál. með feitu letri og svo segir þar, að „þegar af þessari ástæðu erum við undirritaðir andvígir þessu frv.“ Það mun að vísu vera rétt, að frá flugmönnum hafi komið yfirlýsing þess efnis, að þeir muni ekki ætla sér að una þessari lagasetningu. Ég geri ráð fyrir því, að þessi yfirlýsing hafi verið samin af nokkurri hvatvísi og óskhyggju um það, að þessi ályktun kynni að hafa áhrif á afstöðu þm. til þessa frv. En ég verð að segja það, að mér kemur það ákaflega undarlega fyrir sjónir, að alþm. skuli geta tekið svona lagað upp sem rök fyrir því að berjast gegn frv., því að löggjafarsamkunda, sem ber einhverja virðingu fyrir sjálfri sér, getur auðvitað ekki tekið neitt tillit til þess, þó að þeir, sem lögunum eiga að hlýða, lýsi því yfir, að þeir ætli sér ekki að gera það. Ég veit ekki, hvernig ætti að halda uppi lögum og rétti í þjóðfélaginu, ef þessi regla væri viðurkennd.

Hv. frsm. minni hl. var að tala um það, hvað raunverulega bæri litið á milli og hversu reyndar ódýrt þetta væri fyrir Loftleiðir eða lítil fjárhagsleg útgjöld að semja við flugmenn. Að vísu hefur ekki verið gerður á þessu neinn tæmandi útreikningur, en mér skildist á hv. frsm., að hann reiknaði með því í dæmi, sem hann setti upp, að aðilarnir gætu mætzt á miðri leið. En það liggur ekkert fyrir um það, að flugmenn vilji lækka kröfur sínar þannig, að þeir mætist á miðri leið og ekki heldur neitt fyrir um það, að Loftleiðir vilji hækka boð sitt, þannig að það sé hugsanlegur einhver grundvöllur fyrir því, að aðilarnir mætist þar, þannig að forsenda fyrir þessum útreikningi er ákaflega veik. En í öðru lagi vantaði alveg hjá hv. frsm. allan útreikning á því, sem ég er ekki heldur reiðubúinn með, það er varðandi ágreininginn um flugstundafjöldann. Ég skal ekki ábyrgjast, að ég fari alveg rétt með tölur, en mér skilst, að flugmennirnir séu reiðubúnir til þess að fljúga 65 stundir á mánuði eða eitthvað nálægt þeirri tölu, en Loftleiðir hafi krafizt þess, að þeir flygju a.m.k. 85 stundir á mánuði og vitanlega er deilan um þetta ákaflega mikið fjárhagslegt atriði fyrir flugfélagið, það er ekki nokkur vafi á því. Hitt er svo annað, að ég nefndi hér áætlaðar tölur, þegar ég var að tala um, að deilan snerist gróft talað um 100 þús. kr. á ári, hvort árstekjur flugmanna skyldu vera 100 þús. kr. meiri eða minni. Það kann að vísu að vera, að mönnum finnist ágreiningur um 100 þús. kr. ekki svo mikill, þegar komið er upp í svona háar tölur, þegar verið er að deila um kannske 500 þús. eða 600 þús., en vissulega er það þó mikið atriði. Ég tel, að í raun og veru liggi hér ekki fyrir neinn fullnægjandi útreikningur á því, hver útgjaldaaukning Loftleiða yrði af því að ganga að kröfum flugmanna eða af því að mætast á miðri leið. Það getur auðvitað verið þannig, að útgjaldaaukning atvinnurekandans sé að vissu leyti meiri í prósentum, heldur en kauphækkun launþegans.

Þá nefndi þessi hv. þm. enn fremur laun hjá sænskum flugstjórum hjá SAS, en ég geri ráð fyrir því, án þess að ég viti það örugglega, að þar hafi hann átt við flugstjóra á þotum, en það er almennt viðurkennt, að þotuflugmenn eigi að hafa hærri laun, en flugmenn á Rolls Royce 400, þannig að ég tel þessa tölu þegar af þeirri ástæðu ekki sambærilega.

Þá spurði þessi hv. þm. og taldi sig ekki hafa fengið nein svör við því, þegar stendur í frv., að gerðardómurinn skuli miða við laun sambærilegra stétta. Ég get svarað því fyrir mitt leyti, að ég lít þannig á, að sambærilegar stéttir séu fyrst og fremst flugmennirnir á DC 6 vélunum og flugmennirnir á Viscountvélunum hjá Flugfélagi Íslands, sem eru í millilandaflugi. Ég tel, að þetta séu fyrst og fremst sambærilegar stéttir, en síðan verði að taka tillit til þess, hver sé eðlilegur launamismunur miðað við þessa flugvélagerð, sem þarna er verið að bera saman.

Þá gagnrýndi þessi hv. þm. það, að ríkisstj. hefði ekki skipað sáttanefnd. Ég sé nú ekki annað, en sáttasemjari hafi reynt allt, sem eðlilegt var að krefjast, í sínu sáttastarfi og orsakanna til þess, að þessi deila hefur orðið svona hatrömm og ekki leystst, sé engan veginn að leita í því, að það sé á neinn hátt ófullnægjandi sáttastarf. Ég held hins vegar, að það sé reglan, að sáttanefndir séu yfirleitt ekki skipaðar nema í almennum og víðtækum verkföllum, þar sem fjöldi félaga stendur að verkfalli og það er verið að semja við marga aðila í einu, þar sem sáttasemjarinn kemst ekkí yfir sáttastarfið. Ég hygg, að það sé fyrst og fremst undir þeim kringumstæðum, sem sáttanefndir hafa verið skipaðar, þannig að ég tel, að það sé ekki hægt að sjá neina skynsamlega ástæðu til þess að ætla, að sáttanefnd hefði náð þarna nokkuð frekari árangri en sáttasemjari.

Þá fer þessi hv. þm. enn fremur að tala um, að undir sáttameðferðinni hefðu Loftleiðamenn afturkallað fyrri boð sin. Flugmennirnir héldu þessu að vísu fram, á vissu sviði, en þeir Loftleiðafulltrúar, sem við töluðum við, könnuðust ekki við þetta. En ég skal ekki leggja neinn dóm á það, hvor þarna hefur rétt fyrir sér.

Þá kom þessi hv. þm. nokkuð inn á fyrri ræðu mína hér og það, sem ég sagði um vinnulöggjöfina, að ég teldi, að hún ætti fyrst og fremst að vera fyrir láglaunafólk, en ekki fyrir þá, sem væru tekjuhærri. Það kom að vísu hvergi neitt fram um það, að lagalega séð hafi eigi öll stéttarfélög, sem hafa það markmið að semja um kaup og kjör meðlima sinna, sömu réttindi eftir vinnulöggjöfinni. Hitt var ég að benda á, að í augum alls þorra manna væri fyrst og fremst litið á verkfallsréttinn sem nokkurs konar nauðvörn fyrir lágtekjufólk í landinu. Og við megum ekki gleyma því, að við lífum nú í öðru þjóðfélagi, en 1938, þegar vinnulöggjöfin var sett. Þá voru ýmsar stéttir tekjuhárra manna ekki til, sem eru til núna. Þá var flugmannastéttin t.d. naumast til á Íslandi. Og ég er þeirrar skoðunar, þó að þessi hv. þm. sé kannske þar á öndverðum meið, að það sé hægt að misnota verkfallsréttinn. Ég er þeirrar skoðunar, að það sé hægt og alveg þveröfugt við það, sem þessi hv. þm. telur, þá held ég einmitt, að það sé mjög vafasamt fyrir það fólk, sem mesta þörf hefur fyrir verkfallsréttinn og ætti að hafa mest not af honum, að líta þannig á eins og hann, að það sé vörn fyrir láglaunafólkið í landinu að styrkja og standa sem mest með hálaunamönnunum í þeirra verkfallsbaráttu. Það álít ég, að sé ákaflega vafasamt sjónarmið. Það þarf ekkert annað, en að líta t.d. 20 ár aftur í tímann. Mér skilst varðandi ýmsa af forustumönnum verkalýðshreyfingarinnar og flokksbræðrum þessa hv. þm., að það vanti ekki, að þessi verkalýðsfélög, sem þeir hafa stjórnað, hafi, t.d. eins og verkamannafélögin og önnur slík, Dagsbrún o.fl., þessi félög hafi mjög oft verið í verkföllum undanfarna tvo áratugi. Þó tala forustumenn þessara félaga um það, að aldrei hækki kaupmáttur launa hjá þessum stéttum. Þvert á móti skilst manni, að hann fari alltaf heldur niður á við. Að vísu fara þeir ekki alltaf rétt með tölur, en verkfallsrétturinn eftir þeirra kenningum virðist ekki vera gagnsmikill fyrir láglaunafólkið í landinu. Aftur á móti hafa á þessum árum ýmsar hálaunastéttir í landinu gegnum verkfallsréttinn fengið miklu meiri kjarabætur, en láglaunafólkið og ég álít einmitt, að þetta sé hættuleg þróun fyrir láglaunafólkið í landinu, því að verkfallsrétturinn getur þá orðið óvinsæll hjá þjóðinni og það verður að líta hann nokkuð öðrum augum, ef þessi þróun heldur áfram.

Þessi hv. þm. var að tala um það, að ég hefði áður fyrr starfað fyrir verkalýðshreyfinguna, unnið þar góð störf að vísu, en nú hefði ég valið mér aðra húsbændur. Ég vil láta þennan hv. þm. vita það, að ég hef ekki valið mér neina húsbændur, en hins vegar eru þetta ákaflega eftirtektarverð orð úr munni kommúnista, því að kommúnistar hugsa alltaf þannig, þeir þurfa að hafa húsbændur og hlýða. Þannig eru þeir innstilltir. Ég tel mig ekki, hvorki í þessu máli né öðru, hafa neina sérstaka húsbændur. Ég geri þetta bara upp við samvizku mína og skoðanir, hvort ég lít svona á málin eða öðruvísi. Ég þarf ekki að leita neinna húsbænda um það, hvaða skoðun ég eigi að hafa á málunum.

Þá var þessi hv. þm. enn fremur að tala um það, að Alþfl. hefði ekki alltaf haft þessa afstöðu. Ég tel í raun og veru, að hvorki Alþfl. né neinn annar flokkur ætti að hafa þannig skoðun, að hann sé í grundvallaratriðum óhagganlega þannig stemmdur, að hann sé alltaf á móti því, að kjaradeilur séu leystar á einhvern annan hátt en þann, sem vinnulöggjöfin gerir ráð fyrir. Þó að ég viðurkenni vinnulöggjöfina og telji hana vissulega eiga að vera grundvöllinn, tel ég, að þau atvik geti komið fyrir, að það sé óhjákvæmileg þjóðfélagsleg nauðsyn að víkja þar frá, alveg eins og í þessu máli. Og þess vegna verður alltaf, þegar um það er að ræða að leysa einhver kjaraágreiningsmál á þann hátt, sem hér er gert, hvort á að gera það eða ekki, það verður alltaf að taka afstöðu til þess í hverju einstöku tilfelli. Hygg ég, að sé ákaflega erfitt að leggja einhliða grundvallarreglu á þann veg að geta aldrei gengið inn á neitt slíkt. Og það er í raun og veru ekki takandi svo alvarlega, þegar maður litur á þessa ákaflega miklu umhyggju þessa hv. þm. fyrir verkfallsréttinum, þegar maður lítur á það, að í þeim ríkjum, þar sem kommúnistar hafa komizt til valda, eru

verkföll bönnuð, eru alls ekki leyfðar neinar vinnustöðvanir, en aftur á móti þar, sem þeir hafa ekki valdaaðstöðu, eru þeir allra manna mestir talsmenn verkfallsréttarins. Og þetta er í raun og veru skiljanlegt, ef málið er krufið til mergjar. Í raun og veru innst inni líta kommúnistar ekki á verkfallsréttinn eins og tæki í kjarabaráttunni fyrir verkafólkið í landinu. Þeir líta fyrst og fremst á þetta sem pólitískt tæki fyrir sjálfa sig til þess að komast til valda og þegar þeim hefur, gegnum þessa aðferð, stundum tekizt að komast til valda eða a.m.k. hún hefur stuðlað að því, er verkfallsrétturinn þurrkaður út, svo að frá svona mönnum þarf ekki að taka alvarlega ásakanir um það að vilja ekki fallast á algerlega einhliða verkfallsrétt og ófrávíkjanlegan.

Um ræðu hv. 9. þm. Reykv. er það að segja, að hún var að mestu leyti bergmál af niðurlaginu á ræðu hv. 4. þm. Norðurl. e., svo að það þarf ekki mikið um það að ræða. Hann vildi neita þeirri kenningu, að verkföll hefðu verið til tjóns. Hann sagði, að verkföll hefðu verið til góðs. Auðvitað hafa vinnustöðvanir tvær hliðar og vitanlega viðurkenndi ekki þjóðfélagið vinnustöðvanir og réttinn til þeirra, ef þær væru eingöngu þannig, að það leiddi af þeim tjón, en það kæmi ekki eitthvað jákvætt þar á móti. Þess vegna fer þetta í raun og veru eftir því, hvernig maður litur á málið. Það má segja að ,að sumu leyti séu vinnustöðvanir til góðs og að öðru leyti til tjóns. En það geta komið fyrir þau tilvik, að það verði að meta þetta, að tjónið af vinnustöðvunum sé svo yfirgnæfandi, miðað við þann árangur, sem hægt er að búast við af þeim, að það verði að grípa til sérstakra ráða.

Þá sagði þessi hv. þm., að gerðardómurinn væntanlegi mundi dæma flugmönnunum í óhag. Um þetta er vitanlega ekki hægt að fullyrða neitt. Það veit enginn í dag, hvernig þessi væntanlegi gerðardómur kemur til með að hljóða og það getur heldur enginn fullyrt um það, ef þetta verður að lögum, um hvað mundi að lokum hafa samizt milli flugmanna og Loftleiða, þannig að í raun og veru eru allar fullyrðingar um þetta út í bláinn.