26.04.1965
Efri deild: 71. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1296 í B-deild Alþingistíðinda. (1096)

187. mál, lausn kjaradeilu atvinnuflugmanna

Páll Þorsteinsson:

Herra forseti. Þó að ég kveðji mér hljóðs undir lok þessarar umr., þá er það ekki ætlun mín að tala hér langt mál eða tefja afgreiðslu þessa frv. Eins og nál. minni hl. samgmn. ber með sér, þá stöndum við, sem eigum sæti í samgmn. af hálfu Framsfl., að nál., og frsm. minni hl. hefur gert skýra grein fyrir mörgum efnisatriðum þessa máls, svo að ég hef ekki ástæðu til að fjölyrða um þau. En við teljum, að rétt sé, að þetta frv. verði fellt og það er samhljóða álit minni hl. n. Ég vil þó taka það fram, að í þessu felst ekki það, að við viljum dæma um launakjör atvinnuflugmanna eða greiðslugetu þess fyrirtækis, sem þeir vinna hjá, heldur viljum við leggja á það megináherzlu, eins og frsm. minni hl. hefur gert skýra grein fyrir, að þessi mál þurfi og eigi að leysa með samningum á milli aðila. Og ég sannfærðist um það við þær umr., sem fram fóru um þessi mál í samgmn., að mörg þau atriði, sem þarna koma til greina, eru svo sérfræðilegs eðlis, að það er næsta erfitt fyrir leikmenn, sem ekki þekkja inn á þessi svið, að meta rétt og taka eðlileg tillit til margra atriða, sem hér koma til greina, svo sem um vinnutímann og starfskjör og starfsaðstöðu. En meginforsendan fyrir þessu álíti okkar er sú, að aðferðin, sem hér á að beita, sé ekki rétt. Þetta mál eigi að leysa og þurfi að leysa eftir þeim reglum, sem lögin um stéttarfélög og vinnudeilur setja. Og það er enn fremur álit okkar, að samningaumleitanir hafi á engan hátt verið reyndar til þrautar. Og eftir því sem fram kom í umr. um málið í samgmn., þá virðist ekki bera svo mikið á milli, að a.m.k. þeir, sem vanir eru að fást við samninga, hafi ekki oft orðið að horfast í augu við stærri viðfangsefni. Ég vil enn fremur benda á það, að þeir menn, sem hér eiga í hlut, hafa þá sérstöðu, að þeir starfa aðallega á erlendum vettvangi og það fyrirtæki, sem þeir vinna hjá, hefur aðaltekjur sínar af viðskiptum við útlendinga. Þeir starfa enn fremur á því sviði og í samkeppni við menn af öðrum þjóðum, að það verður um þessi mál að taka tillit til og hafa hliðsjón af þeim reglum, sem gilda um þetta í nálægum löndum og það kom fram á fundi í samgmn. M.a. gaf upplýsingar um það sá lögfræðilegi ráðunautur, sem atvinnuflugmenn hafa, að nú að undanförnu hafi orðið til meira og meira samræmdar reglur um mörg atriði þessara mála, sem séu að verða meira og minna alþjóðlegar reglur, a.m.k. í hinum vestræna heimi. Og það er ekki hægt í máli eins og þessu annað, en að taka nokkurt tillit til þess.

Það kom fram í ræðu hv. frsm. meiri hl. n., að hann varpaði því fram, að það mætti kalla það furðulegt, að þeir þm., sem sættu sig við gerðardóm í málefnum bænda, skyldu vera á móti í gerðardómi þeim, sem hér um ræðir. Ég vil aðeins af þessu tilefni benda á, að hér er gersamlega ólíku saman að jafna. Gerðardómur sá, sem ræðumaður mun eiga við, er yfirnefnd, sem sker úr um ágreiningsatriði í sambandi við verðlagningu landbúnaðarafurða, en sú yfirnefnd eða sá gerðardómur starfar sem frjáls gerðardómur, þannig að stéttarsamtök bænda féllust á það á sínum tíma, að þetta ákvæði væri sett inn í löggjöfina og þau gerðu það gegn því, að inn í löggjöfina kæmu önnur ákvæði, sem bændastéttin metur mjög mikils sér í hag, svo sem ákvæðin um útflutningsuppbætur úr ríkissjóði á landbúnaðarafurðir og þetta ákvæði um yfirnefnd gildir aðeins á meðan útflutningsuppbætur eru greiddar eða verðlag á landbúnaðarafurðum innanlands er greitt niður. Hér hefur það aftur á móti komið fram í sambandi við þetta mál, að þeirri uppástungu að leggja þetta mál í gerð með samþykki beggja aðila hefur verið hafnað, svo að hér er alls ekki um gerðardóm að ræða, sem aðilar hafi samþ., heldur á hér að verða um lögþvingaðan gerðardóm að ræða. Af þessu tilefni vildi ég benda á, að hér er mjög ólíku saman að jafna.